Ægir

Árgangur

Ægir - 15.08.1974, Blaðsíða 5

Ægir - 15.08.1974, Blaðsíða 5
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 67.ÁRG. 12.TBL. 15. ÁGÚST 1974 Magnmælingar Kára EFNISYFIRLIT: Magnmælinjíar Kára 221 Ásgeir Jakobsson: Enn gerast ævintýr 222 Erlendar fréttir: Birgðir hrúgast upp 229 Útfluttar sjávarafurðir í apríl 1973 og 1974 230 tttfluttar sjávarafurðir S maí 1973 og 1974 232 tttgerð og aflabrögð 234 Ný fisljskip: Jón Vídalín ÁR 1 239 Guðsteinn GK 140 239 Aðalvík KE 95 240 E i skvinnsluskól anum sagt upp 240 ÚTGEFANDI: FISKIFÉLAG ÍSLANDS HÖFN. INGÓLFSSTRÆTI SÍMI 10500 RITSTJÓRN: MÁR ELlSSON (ábm.) JÓNASBLÖNDAL AUGLÝSINGAR: GUÐMUNDUR INGIMARSSON UMBROT: GlSLI ÓLAFSSON PRENTUN: (SAFOLD ÁSKRIFTARVERÐ 750 KR ÁRGANGURINN KEMUR ÚT HÁLFSMÁNAÐARLEGA Eins og fram kemur í við- talinu við Kára Jóhannesson hér í blaðinu, þá er það ekki ný aðferð að mæla fiskmagn, og þá aðallega magn uppsjáv- arfisks, með hljóðendurvörp- um. Hin svonefnda norska að- ferð (Bergenska aðferðin, sjá grein Kára) hefur verið notuð hér og með ágætum árangri s. 1. ár, þar sem voru mæl- ingarnar á magni íslenzku vorgotssíldarinnar. Seiða- magnmælingar hafa einnig verið gerðar með þessum hætti hér við land og með jákvæð- um árangri. Það er vitaskuld ekki á færi nema sérfróðra manna að fjalla um þær aðferðir til magnmælinga, sem um getur verið að ræða við hinar ýmsu aðstæður, en frá leikmanns- sjónarmiði, þá virðist sem sú aðferð Kára, að búa sér til eða reikna út stuðul fyrir hljóðendurvörpin við þær að- stæður, sem um er að ræða hverju sinni hafa skilað svo mikilvægum árangri, að hún verðskuldar sérstaka athygli okkar. Hans tillag virðist leik- manni fyrst og fremst liggja í því, að hann lagar þær að- ferðir sem þekktar voru til magnmælinga með endurvörp- um eftir hinum ýmsu aðstæð- um. Reiknar út nýjan stuðul hverju sinni eftir fisktegund- um og aðstæðum í sjónum. Þetta kostar hann jafnan tals- verðan undirbúningstíma, en eftir að þessum nauðsynlega undirbúningi er lokið, vinnast honum sjálfar mælingarnar vel og þær reynast nákvæmar. Eins og áður segir, er það ekki á annarra færi en sér- fróðra manna að dæma um það, að hve miklu leyti að- ferð Kára gagnaðist okkur hér t. d. við ákvörðun loðnumagns og síldar umfram þær aðferðir sem beitt hefur verið. Það er þó ljóst að FAO-fiskifræð- ingar og fleiri, svo sem Perú- fiskifræðingar telja að Kára hafi lánazt sérstaklega vel að mæla magn uppsjávarfisks, og ástæða sýnist því til þess, að okkar ágætu fiskifræðingar, sem eru mjög vakandi fyrir nýjungum, rannsaki það mál, og beri saman bækur sínar við Kára. Þó að það sé nátt- úrulega margsönnuð reynsla, að yfirleitt verðum við menn því vitlausari, sem við komum fleiri saman, þá á það sér und- antekningar eins og aðrar gildar reglur.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.