Tímarit lögfræðinga - 01.10.1955, Síða 4
Sigurðssonar og allmörg fleiri. Meginþorri þeirra rita og
ritgerða, er fjalla um stjórnfrelsisbaráttuna, fyrirfinnst
því ekki í skrá þessari, þótt ýmis þeirra séu öðrum þræði
réttarsögulegs efnis eða fjalli um réttarsamband Islands
gagnvart Danmörku.
1 skrána eru yfirleitt ekki tekin sérprentuð lög eða til-
skipanir, en mörg lagaboð hafa verið sérprentuð fyrr og
síðar. Undantekning er gerð um meiri háttar lagabálka,
sem sérprentaðir hafa verið með skýringum.
Æskilegt væri, að einhver tæki sér fyrir hendur að taka
saman skrá um lögfræðilegar ritgerðir í dagblöðum og
vikublöðum, en tafsamt mun það verk verða. Þá er ekki
síður æskilegt, að gerð verði skrá um rit erlendra höfunda
um íslenzkan rétt og réttarsögu. Það mun verða vanda-
verk, enda mikill fjöldi rita og ritgerða til um þau efni,
einkum þó um réttarsögu. Talsverðan stuðning má þó fá
í bókfræðiritum Halldórs Hermannssonar.
Skráin er í tveim hlutum. Fyrri hlutinn (A) er höfunda-
skrá og raðað eftir stafrófsröð höfunda eða heiti bóka, þar
sem ekki er um sérstakan höfund að ræða. 1 síðari hluta
(B) er flokkað eftir efni, en stafrófsröð höfunda látin
ráða innan hvers flokks. 1 fyrri skránni eru greinilegri
upplýsingar, og geta þeir, sem nota síðari skrána, leitað í
hinni fyrri um fyllri upplýsingar um hvert rit.
Vafalaust munu einhverjar villur vera í skránni, og þótt
ég hafi gert mér far um að forðast þær, geri ég mér ekki
vonir um að sh'kt hafi tekizt.
Ymsir hafa látið mér í té upplýsingar, er að gagni hafa
komið við gerð skrárinnar, og er ég þakklátur fyrir. Eink-
um hefur prófessor Ármann Snævarr veitt mér drjúga
aðstoð. Þá ber mér að þakka þeim prófessor Th. B. Líndal
og Sigurði Líndal, syni hans, margvíslegar lagfæringar og
leiðbeiningar.