Tímarit lögfræðinga - 01.11.1985, Blaðsíða 66
DOMASKRA UM BÓTAÁBYRGÐ
HINS OPINBERA
Komin er út 2. útgáfa dómaskrár undir heitinu „Dómar um bótaábyrgð hins
opinbera 1920-1984“. Arnljótur Björnsson prófessor tók saman. Fyrsta útgáfa
ritsins 1977 náði yfir tfmabilið 1920-1976, þ.e. til allra íslenskra hæstaréttar-
dóma um skaðabótaskyldu hins opinbera frá upphafi til ársloka 1976, að ör-
fáum dómum undanteknum. Hin nýja útgáfa hefur að geyma sömu dómaágrip
og fyrsta útgáfa auk ágripa af dómum frá þeim tíma til ársloka 1984. Efni
dómaskrárinnar og efni eldri dómaskráa um almennan skaðabótarétt uían
samninga skarast nokkuð. Hér er hins vegar ekki að finna dóma um bætur
fyrir slys við vinnu hjá hinu opinbera. Þeir eru reifaðir í dómaskrám um al-
mennan skaðabótarétt. Námssjóður Lögmannafélags íslands er útgefandi.
NÝTT RIT UM UMHVERFISRÉTT
Komið er á markaðinn nýtt rit um umhverfisrétt eftir dr. Gunnar G. Schram
prófessor: Umhverfisréttur. Um vernciun náttúru íslands. Ritið, sem er um 250
bls. að stærð, er gefið út af Úlfljóti, tímariti Orators, félags laganema, í tiiefni
af Norræna laganemamótinu, sem haldið var hér á landi sumarið 1985. i bók-
inni er fjallað um helstu reglur íslensks réttar um umhverfismál, svo sem
skipulagsmál, náttúruvernd, vernd menningarverðmæta og mengun lofts, láðs
og lagar. Þá er og gerð grein fyrir alþjóðasamningum, sem ísland er aðili að
á þessu réttarsviði, m.a. hinum nýja Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna.
204