Árbók Háskóla Íslands

Árgangur

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1916, Blaðsíða 5

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1916, Blaðsíða 5
I. Stjórn háskólans Rektor háskólans var þetta háskólaár prófessor Guð- nmnduv Hannesson, kosinn á kennarafundi 17. júni 1915. Deildarforsetar voru kosnir litlu síðar: í guðfræðisdeild: prófessor Jón Helgason: - lagadeild: prófessor Jón Kristjánsson. - læknadeild: prófessor Guðmundur Magnússon. - heimspekisdeild: prófessor dr. phil. Ágúst H. Bjarnason. Þessir deildarlorsetar áltu sæti í háskólaráði, eins og lög standa til. í byrjun háskólaársins kaus háskólaráðið sjer vara- forseta, og hlaut prófessor Guðmundur Magnússon kosn- ingu. Enn fremur kaus það sjer skrifara, prófessor Jón Kristjánsson. Með samþykki forseta Alþingis, leyfði háskólaráðið slúdentum háskólans veilingastolu Alþingis, »Kringlu«, til afnota sem lestrarstofu. Stúdentafjelagi háskólans var einnig lánað húsnæði fyrir fundi sina. Dr. phil. Sigurður Nordal, sem nýtur styrks af legati Ilannesar Árnasonar, sótti um leyfi til að fresla notkun styrksins um eitt ár. Háskólaráðið samþykti, að leggja til að leyfið yrði veitt. Beiðni kom frá dr. phil. Alexander Jóhannessyni um leyfi til þess að halda fyrirlestra og æfingar í þýskum fræð- um í kenslustofum háskólans. Leyfið var veitt.

x

Árbók Háskóla Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.