Árbók Háskóla Íslands

Árgangur

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1916, Blaðsíða 32

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1916, Blaðsíða 32
30 kcnslumálastjórnarráðs Dana. Vilji þessi sljórnarvöld halda áfram að veita þennan styrk til umráða guð- fræðisdeildarinnar, er háskólaráðinu kunnugt, að guð- fræðisdeildin óskar helst, að styrkurinn verði veittur með því skilyrði, að honum verði varið til náms- slyrks handa gud/rœdiikamlídötuni jrá Háskóla íslands, sem vilja jnllkomna sig í námi sínu við háskólann í Kaupmannahöjn, og er háskólaráðið því fullkomlega samþykt«. Stjórnarráðið sendi þvi næst kirkju- og kenslumála- ráðaneytinu þessa ályktun háskólans og bar ráðaneytið hana undir háskólaráð (Konsistorium) Kaupmannahafnar- háskóla, er tjáði sig henni algjörlega samþykt. Að lokum kom svo úrslitasvar frá kirkju- og kenslu- málaráðaneytinu þess efnis, að í fyrsta lagi hefði það sam- þykt fyrgreinda útborgun styrktarfjárins fyrir árin 1912—’15 og gæti Háskóli íslands nú þegar ráðstafað þessari 1800 kr. fjárhæð til styrktar guðívædiskandídölum, eins og að ofan er grcint, og í öðru lagi kvaðsl ráðaneytið hafa gjört breyt- ingartillögu við fjárlögin dönsku 191G—’ 17 um heimild til breytingar á útgjaldalið kommúnitetsins i samræmi við þelta. í lok júnímánaðar 1916 ráðstafaði háskólaráðið í fyrsta sinni þessum utanfararstyrk guðfræðiskandídata. Samkvæmt tillögum guðfræðisdeildar hlaut styrkinn í þetta sinn cand. theol. Asgeir Ásgeirsson. Var honum veittur styrkurinn tvö- faldur, eða 1200 krónur, með lilliti til þess, að vegna slríðs- ins er miklu dýrara að lifa erlendis nú en endrarnær.

x

Árbók Háskóla Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.