Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1924, Blaðsíða 12
10
og framburði 1 stund í viku fyrra misserið og 2 stundir
i viku hið síðara.
Dócent Magnús Jónsson.
1. Fór yfir kirkjusögu frá upphafi Klúnýtimabils fram að
siðbót, 2 stundir í viku fyrra misseri en 3 stundir í viku
mestan hluta siðara misseris. Almenn kristnisaga eftir dr.
Jón Helgason notuð.
2. Fór með yfirheyrslu og viðtali yfir Jóhannesarguðspjall
eftir gríska textanum 4 stundir í viku fyrra misserið.
3. Fór með yfirheyrslu og viðtali vandlega yfir Rómverja-
brjefið á íslensku 3 stundir í viku síðara misserið meðan
til vanst, en að því loknu
4. yfir 2. Pjelursbrjef, Júdasarbrjef og 2. Pessalonikubrjef í
sömu stundum. »Die Schriften des N.T.« liöfð við allar
skýringarnar.
5. Flutti i siðustu kenslustundunum fyrirlestra fyrir stúdent-
unum um launhelgarnar í Elevsis.
Læknadeildin.
Prófessor Guðmundur Magnússon:
1. í handlœknisfrœði var á fyrra misserinu i 4 stundum á
viku farið yfir kviðslitskvilla og því næst yfir handlœknis-
sjúkdóma i þvagfœrum og gelnaðarlimum karla og kvenna,
en á síðara misserinu var byrjað á yfirferð yfir hand-
lœknissjúkdóma á útlimum, einnig í 4 stundum á viku.
2. Æfingar voru haldnar á líki með elstu nemendum i helstu
handlœknisaðgerðum fyrra misserið.
3. Nokkrar skriflegar æfingar með elstu nemendum, i hand-
læknisfræði, bæði misserin.
4. Æfingar í handlœknisvitjun bæði misserin, þegar verkefni
var fyrir hendi.
5. Bæði misserin, í 2 stundum á viku, var farið yfir al-
menna handlœknisfrœði með yngri nemendum.
Kenslan fór fram með viðtali og yfirheyrslum, og til