Austri - 13.05.1931, Síða 6

Austri - 13.05.1931, Síða 6
6 AUSTRI að létta örðugleikann vegna óhagstæðra sölumöguleika á aðal framleiðsluvöru þeirra, kjötinu. Um nýár var mikill hluti kjötsins óseld- ur, en bændur flestir hafa ekki það bol- magn, að þeir geti beðið mánuðum saman eftir að fá afurðir sínar greiddar. það, sem gert var, var ekkert annað en það, að Sam- band íslenzkra samvinnufélaga fær bráða- birgðalán í banka bændanna til þess að geta greitt þeim andvirði kjötsins. Þessu láni er svo skilað aftur þegar kjötið er selt. Um þetta talar íhaldið eins og einhver stórglæpur væri hér á ferðinni. Hér er þó ekki annaö á ferðinni en það sama, sem tíðkast hefir við afurðasölu sjávarútvegsins frá fyrstu tíð. Sjávarútvegs- menn og þeir, sem gjöra fiskinn að verzl- unarvöru, taka venjulega stór lán meðan á þessu stendur, þar til afuröir þeira eru seld- ar. Hefir þessi óumflýanlega tilhögun ekki verið álitin neinn glæpur af íhaldsmönnum, hingað til, og jafnvel ekki yfir því fárast þó þessum lánum, sumra útgerðarmanna, hafi aldrei verið skilað aftur. Árna frá Múla, sem einna ötulast hefir verið látinn ganga fram í því, að ófrægja Búnaðarbankann og yfirleitt alla viðleitni bænda til sjálfsbjargar, verður sennilega ekki orðfátt, þegar hann fer að skýra það fyrir bændum í Norður-Múlasýslu, hvers- vegna þeir megi ekki verða sömu hlunn- inda aðnjótandi eins og framleiðendur við sjávarsíðuna. „Heiöarleg vopn“. f skýrsiu Guðna nokkurs Jónssonar, sem birt er í Morgunbl. 1. marz um „Samband ungra sjálfstæðismanna“, er kom!st svo að orði: „Ungir sjálfstæðismenn ætla sér að taka eldri flokksbræður sína til fyrirmynd- ar í því að beita aldrei ööru eti heiöar- legum vopnum í hinni pólitísku baráttu“ / Mun þar átt við: 1. Sannleiksást og rithátt þeirra Valtýs, Jó- hanneaar Birkilands og Magnúsar Storms- ritstjóra. 2. Heiöarleikann í ráðstöfun veltufjár sem lýsir sér m. a. í viðskifíunum við Stefán Th. sem vitanlega fyrstog fremstátti sér stað til þess að íhaldið skyldi lafa é kjördæminu. 3. Framlög í pólitísk blöð frá bönkunum gegnum uppgjafamenn eins og St. Th. o. fl. 4. Atkvæðafölsunina á ísafirði sem Sigurður Kristjánsson Vesturlandsritstjóri og nú- verandi yfirritstjóri Morgunblaðsins hefir skrifað svo um frá upphafi og afsakað, eins og hann heföi í vasanum fyrirfram skriflegt loforð frá hæstarétti um, að sökudólgarnir skyldu verða sýknaðir. 5. Misnotkun barna, sem fólgin er í því að draga fl—14 ára börninn í pólitísk félög og telja þeim þar trú um að Framsókn- ar- og Jafnaðarmenn sitji á svikráðum við frelsi landsins. 6. Kviksetningartilraunina á Jónasi Jóns- syni fyrv. ráöheria, svo fátt eitt sé nefnt. Er það faguirt fyrirheit af hinum „ungu Sjálfstæðismönnum“ að ætla að taka eldri flokksbræður sína til fyrirmyndar í vopna- burði, og ekki minkar Ijóminn, þegar þeir taka það fram að það, sem aö framan er drepið á, séu „heiðarleg vopnu\ íhaldsblað Seyðfirðinga segir: „Framsóknarstjórnin komst til valda á margvíslegum b!ekking- um og ósannindum um fjármálastjórn Sjálfstæðismanna“. Hvað segja staðreynd- irnar um fjárstjórn Ihaldsins á stjórnarár- um þeirra? Eru plögg íslandsbankamálsins blekkingar ? En meðal annara orða: Á hverju ætiar íhaldsflokkurinn að vinna þessar kosningar? „Samvinnan“. Mikill þyrnir í augurn samkeppnismanna er þessi bók, og miklar eftirtölur hefir þetta sjálfsagða fræðirit, um vöxt og við- gang samvinnuhreyfingarinnar, kostað blöð fhaldsins. Hún er ar.nars merkilega áber- andi, þessi andúö kaupmannaflokksins gegn allri fræðslu bænda, um sín eigin hags- munamál. Nú eru bændur nálega helming- ur þjóðarinnar og þeirra atvinnuvegur þarfnast nú, miklu frekar en nokkur annar, fræðslu um allt, sem mætti verða honum til hagsbóta og viðreisnar, vegna þess, að allt þangað til að Framsóknarflokkurinn varstofnaður, voru málefni bænda algjörlega látin sitja á hakanum, en hlynnt að sjávar- útvegi og verzlun þeim mun meira. Mörg rit hafa verið gefin út af almannafé sjávar- útvegsmönnum til leiðbeiningar og hags- bóta. Aldrei hefir samvinnumönnum eða hændum dottiö í hug að telja það fé eftir, svo munað sé. — Ritstjóri Austfirðings ætti að athuga, hve miklu fé íhaldsflokkur- inn hefir varið til erindreka, sem aldrei gátu rekið erindi þau, sem þeim var trúað fyrir, áður en hann leggur út í næstu her- ferð á hendur þessari þörfu bókarútgáfu. Hvort mun hafa kostað meira: ferð Arna til „Ameriku" — á blómatíma íhaldsins — eða útgáfa þessarar bókar um samvinnu- mál, — að tilhlutun Framsóknarflokksins ? Hvort þessara fyrirtækja mun bera meiri menningarlegan ávöxt? „Heilindi* Skjöldunga. Þess er getið í forustugr. hér í blaðinu, að Seyðfirðingar myndu við þessar kosn- ingar „þakka“ Jóh. Jóh. fyrir áhrif hans á viðsklftalíf og atvinnuhætti þessa bæjarfélags. En það þurfti ekki að bíða svo lengi eftir svarinu. Skjöldungar fullyrtu fyrir nokkrum dögum aö Jóh. Jóh. hefði gefið kost á sér til framboðs hér af þeirra hálfu. Þegar framboð hans kom til umræðu á Skjaldar- fundi varð einn af hinum sögulegustu fund- um í því félagi. Mætti -framboð Jóhannesar svo sterkri andúð innan félagsins að ekki þótti viölit að leggja upp með hann sem frambjóöanda ennþá einu sinni. Er þetta orsökin til þess, að hann hefir nú „dregiö sig algerlega í hlé frá þingstörfum", eins og Austf. oröar það, í dag. Eftir að hafa þannig snúið baki við þessu átrúnaðargoði sínu, birtir svo málgagn í- haldsins hér, hin allra væmnustu „eftirmæli“ eftir þenna „dugandi" „glæsilega þingfull- trúa“ og „réttdæmasta og starfhæfasta yfir- valds.“ Mikil er einlægni og heilindi Skjöldunga !! Rödd úr sveit. í Þingrofsnaáiinu virðast mér að Reyk- víkingar hafa getið sér stóra vansæmd, en að Tryggvi hafi staðiö sig mjög vel og lát- ið sem minnst á sig fá allar vitleysur og ærsl nágranna sinna. Sjálfstæðismenn bæta ekki málstað sinn með útsendingu annara eins blaða og ísafoldar og Varðar. Ættu allir sannir íslendingar að snúa við þeim baki, því slíkur ritháttur og munnsöfnuður er ólesandi og óhafandi á heimilum siðaðra manna. Það er undarlegur skynsemisskortur hjá þeim herrum, aö sjá ekki hverja van- virðu þeir vinna sér hjá öllu skynsömu fólki, með þeim óþverra rithætti. Ætti það að nægja hversu málstaður þeirra er ó- hreinn og illur, þó þeir ekki í ofan á lag notuöu orðbragð verra en tíðkast hjá menntunarsnauðum dónum. Þó tekur út yfir, þegar þeir álíta að alþýðan sé svo heimsk, að hún trúi því að þetta séu menn- irnir, sem líklegastir séu til að ávinna ætt- jörðinni velgengni og heiður. Nei, þeim verður vonandi ekki að trú sinni. . . . Úr bréfi 28. apríl s. I. Árni Kristjánsson er flutturlí Steinholt. Þur saiífiskur fæst í Kaupfélag Austfjarða. Matsala. Tek menn í fæði. Einnig gisting og fæöi fyrir ferðamenn. Á bezta stað í ænum. Hólmfríður Imsland (Hús Sig. Baldvinssonar) Seyðisfirði. Prentsmiðja Sig. Þ. Guðmundssonar.

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/593

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.