Alþýðumaðurinn - 24.02.1931, Blaðsíða 1
ALÞYÐUMAÐURINN
. árg. | Akure)rri, í^rið.judagiim 24 Febrúar 1931. "■ 9. tbí
Kaupgreiðslur.
Fyrsta skilyrðið fyrir kaupgreiðslu,
er að kaupkrafa vinnandans sé við-
urkend af þeim sem á að greiða.
Verkafóiki sem yfirleitt hefir ekki
annað að lifa af en vinnu sína, er
mikils um vert að vinnulaunin séu
sæmiiega há, en engu síður að
kaupið sé greitt fljótt.
Það er kunnugt að útlánsvextir
bankanna eru svo háir sem raun
er á, vegna tapa sem orðið hafa
við útlánin. Það er einnig kunn-
ugt, að álagning verslana er yfir-
leitt gerð með tílliti til vaxtatapa
og áhættu við að lána vörurnar.
Væri skuldaverslun ekki rekin,
yrði verð varanna mun lægra.
Verkafólk, sem ekki fær strax
greitt kaup sitt, eg verður þar af
leiðandi að fá iánaðar vörur, mun
jafnframt verða að kaupa dýrara en
ella, og á þann hátt fá raunveru-
lega minna fyrir vinnuna.
Samkvæmt lögum á .að greiða
verkafólki vífíhulaun þess í lok
hverrar viku. — Þessu hefir verið
lítið sint af atvinnurekendum, enda
linlega eftir því gengið af verka-
fólkinu.
Þetta meinleysi hefir valdið verka-
fólki meira tjóni en með tölum
verði talið, og er- mál til komið að
reyna að koma í veg fyrir þann
skaða, því auk óhagstæðari versl-
unar, sem við það verður að verka-
fó!k fær ekki kaup sitt strax, er
miklu hættara við algerðu tapi. —
Bæði vegna breyttra kringumstæða
verkhafa og einnig vegna þess að
gjaldfresturinn veitir eignalausum
bröskurum tækifæri til að standa
fyrir verkum og hafa fyrir það fé
íil að gleðja sig og sína með, þó
verkafólkið, það raunverulega fólk
sem framleitt hefir, fái aldrei sitt.
Nokkur dæmi eru. þess, að vinnu-
veitendur hafa haldið dýrar veislur,
farið skemtiferðir og haldið rík-
mannleg heimili á sama tíma sem
verkafólk þeirra hefir ekki getað
staðið í skilum vegna vanskila
þeirra.
Svo langt hefir verið gengið í
því að treysta atvinnurekendum og
spara þeim fyrirhöfn, að verkafólk
hefir alloft ekki krafist að fá skrif-
Iega viðurkenningu fyrir inneign
sinni — vinnukaupinu.
Þessi tilhliðrun er orðin að
venju, sem einstaklingar eiga erfitt
með að breyta á móti. Sá sem
krefðist nótu að kveldi eða útborg-
unar við vikulok, ætti á hættu að
slíkt yrði tekið sem tortryggni.
Það sem hér þarf, eins og við
flestar aðrar umbætur, er að fjölmenn
félög beiti sér fyrir málinu, og að
margir geri samtímis sömu kröfuna.
Verklýðsfélögin verða að hlutast
til um, að ætíð séu vinnunótur af-
hentar verkafólkinu að kveldi, —
Þá máetti ganga inn á, að fastráðið
fólk fengi vinhunótur við vikulok,
og að vinnukaupið sé greitt í lok
hverrar viku, á vinnustöðvunum og
í vinnutímanum.
Það er ekkert aðalatriði að út-
borgun fari fram á fínum skrifstof-
um. Það getur vel gengið í
geymsluhúsum eða tjöldum. Aðal-
atriðið er að fólkið fái kaupið fljótt
og án þess að eyða til þess tíma,
sem það annars gæti fengtð pen-
inga fyrir.
Síðustu tímar ættu að kenná
okkur að meta kosti þess að fá
kaup sitt greitt strax.
Það verður oftast bæði til skaða
og leiðinda að 6iðja verslanir og
mm nýja bió mm
Miðvikudagskvöld kl. S'/i
Æfintýri
aðals-
mærinnar.
Þýskur kvikmyndasjónleikur
í 8 þáttum. Aðalhlutv. Ieika:
Liane Haid og
Frerí Louise Lerch.
Verkamaimafélag
Akureyrar.
heldur fund í Verklýðshúsinu,
Sunnudaginn 1. Marz n.k.
kl. 3,30 e. h.
FUÍJDAREFNI:
1. Inntaka nýrra félaga,
2. Kaupgreiðslur til verkafólks.
3. Tekjur og gjöld félagsins.
4. Kauptaxti félagsins.
STJÓRNIN.
einstaklinga að lána sér. Að geta
ekki greitt á tilteknum tíma, er
mannskemmandi.
Á síðastliðnu hausti og í vetur
hafa það orðið margir sem neyðst
hafa til að biðja um lán og brugð-
ist Ioforðum um greiðslur, vegna
vanskila atvinnuveitenda. Ég hefi
grun um. að ennþá eigi verkafólk
á Akureyri tugi þúsunda hjá vinnu-