Alþýðumaðurinn - 28.07.1931, Blaðsíða 2
2
ALt’ÝÐUMAÐtJRINN
aö þeita setur blett á verklýðs-
hreyfinguna, séð frá sjónarhól
þeirra manna, sem ekki vita jafn
glögg skil á kommúnistum annars-
vegar og verkaiýðnum hinsvegar’
eins og raun er á. Petta verður
því til að rýra álit íslensks verka-
lýðs, sem ekkert hefir til saka unnið.
Kátlegast er þetta atriði í sam-
bandi við Rússland. Eins og nú
er Ijóst orðið, eru kommúnistar
umboðsmenn Rússa hér á landi.
og teljast grein á rússneska komm-
únistaflokknum. Öllum er kunn-
ugt, hve mikla vinnu auðvaldsblöð-
in og fréttastofur auðvaldsins leggja
f það að breiða út óhróður um
Rússland- — Jafnaðarmannablöðin
hamla þar upp á móti eftir getu.
Meðan kommúnistar klufu sig ekki
út ú»- Alþýðuflokknum. héldu blöð
flokksins uppi skynsamlegum vörn-
um fyrir Rússland og fræddu nokk-
uð um framgang socialismans þar.
Síðan kommúnistarnir fengu sín
egin blöð, hafa þau tekið upp vörn-
ina fyrir Rússland, því til lítils
gagns- Vegna ósannindahneigðar
Og fávisku kommúnistanna hafa
allar fréttir, er þeir hafa flutt frá
Rússlandi, verið svo lýgilegar og
fjarlægar öllu viti, að nú orðið trú-
ir enginn maður nokkru af því sem
blöðin (kommúnistanna) segja það-
an. Rússneski kommúnistaflokkur-
inn, sem þó heldur lífinu í þessum
saursneplum hér á landi, sem ann-
arsstaðar, hefir því ekkert annað
en ógagn af þeim. Kommúnist-
arnir eru sömu óheillakrákurnar á
þessum vettvangi sem öðrum.
Hér hefir nú verið dvalið við þá
hlið þessa máls, sem aðallega veit
að kommúnistunum sjálfum. Hún
er reyndar jafn skopieg og hún er
raunaleg. í næsta kafla verður
nánar vikið að því, hvílíkan skaða
og skömm alþýðusamtökin hafa
hlotið og hljóta af iðju þessa ó-
gæfulýðs, og hverra ráða verður
að neyta til að draga úr þeim ó-
fögnuði. (Meira).
I
— þrjú herbergi og eld-
hús — óskast frá 15.
Sept. n. k. Góð um-
gengni. Skilvís greiðsla. A.v.á.
JARÐ&RFÖR móður okkar, Friðriku Jónsdóttur, sem andaðist 19. þ.m., er
ákveðin Laugardaginn 1. Ágúst n.k., og hefst kl. 1 e.h. með kveðjuathöfn á
heimili hennar, Gránu'élagsgötu 19 á Akureyri. — Allir þeir, sem vilja sýna
vinarhug eða samúð, eru hjartanlega velkomnir.
Akureyri, 27. Júli 1931.
Jónasfna Þorsteinsdóttir, Rósa Rorsteinsdóttir, Kristjana Porsteinsdóttir,
Helga Þorsteinsdóttir, Jón Porsteinsson, Jónas Porsteinsson,
Porsteiun Porsteinsson.
Frá Alþingi.
Nýjum frumvörpum og tillögum,
fjárbeiðnum og fyrirspurnum, rignir
enn yfir Alþingi, og er útlitið alt
annað en það að þingið standi »að-
eins stuttan tíma« eins og Fram-
sóknarblöðin spáðu í vor. Ein lög
eru afgreidd, Lög nm heimild fyrir
ríkisstjórnina að ábyrgjast lán fyrir
Byggingafélag Verkamanna í Rvík
til húsabygginga. Ætlar félagið að
byggja yfir 40 fjölsk)ldur í sumar
og haust, og er öllu þessu hraðað
sem mest, bæði vegna húsnæðis-
vandræðanna og svo verða að þessu
nokkrar atvinnubætur, en þeirra er
meir en þörf
Fjöldi mála er búin að vera til
2. umr. í annari deildinni. Þar á
meðal fjárlögin í Nd. Eldhúsum-
ræður fóru engar fram, eins og þó
er venja til, en því var lýst yfir að
þær yrðu geymdar til 3. umræðu.
Flest eru málin þau sömu og lágu
fyrir síðasta þingi, en þó nokkur
ný. Guðrún Lárusdóttir flytur till.
um að breyta holdsveikraspítalanum
á Laugarnesi í hæli fyrir fávita
konur og börn, og að nýr spítali sé
reistur fyrir holdsveikt fólk. Laug-
arnesspítalinn er reistur fyrir 60
sjúklinga, en holdsveiku fólki hefir
fækkað svo mjög að þar eru ekki
nú nema 20 sjúklingar og engir
nýjir hafa bæst við þrjú síðustu ár-
in. Alþýðuflokksíulltrúarnir flytja
flest sömu frumvörpin og á slðasta
þingi. Far á meðal hinn stóra laga-
bálk um framfærslu þurfamanna.
Tvær tillögur eru komnar fram á
Alþingi um að ríkið áætli fé til at-
vinnubóta í landinu á þeim tíma
Innilega þökkum við ölium þeim
mörgu, sem á einn eður annan hátt
auðsýndu okkur samúð, hjálp og hlut-
tekningu, við andiát og jarðarför, ást-
kæra drengsms okkar, Hermanns
Leónhards. — Pá viljum við tjá þeim
hjartanlegt þakkteti, sem glöddu hinn
látna dreng i veikindum hans.
27. Júlí 1931.
Benedikta og Stefán.
ársins, sem atvinna er lítil eða eng-
in. Pá er og gert ráð fyrir að rík-
ið ábyrgist lán handa Síldareinka-
sölu íslands, alt að 1 milj. kr.
Þegar fjárlögunum sleppir mun
harðast verða deilt um tillögur þær,
er fram eru komnar í kjördæma-
skipunarmálinu. Ætlun stjórnarinn-
ar er að drepa því á írest með því
að setja það í milliþinganefnd. —
Ihaldið ber fram breytingar á stjórn-
arskránni með tilliti til þessa, og
jafnaðarmenn eru sér með sínar til-
lögur. —
Verkam. flutti á Langardaginn
kynjasögur um kaupkúgun Alþýðu-
flokksins á Siglufirði. f*ar áttu
verkakonur að ganga um og biðja
fólk að vinna ekki fyrir hátt kaup,
og þeir Finnur Jónsson á ísafirðiog
Guðm. Skarphéðinsson áttu að hóta
að reka verkafólkið úr vinnunni,
ef það léti sér ekki nægja það, er
þeir vildu skamta því o.s.frv.
Eins og við var að búast er alt