Alþýðumaðurinn - 29.09.1931, Qupperneq 1
ALÞYÐUMAÐU RINN
I. árg.
Akureyri, Priðjudaginn 29. Sept. 1931.
55. tbl.
Frá Menntaskólanum
i Aknreyri.
Inntökupróf, gagnfræðapróf og árspróf
allra bekkja hefjast Fimmtudaginn 1. Októ-
ber, kl. 8 árdegis.
Prófskrá verður fest upp á auglýsinga-
löflu skólans.
Skóli verður, að þessu sinni, settur Laug-
ardaginn 3. Október kl. 3. siðdegis.
Menntaskólanum á Akureyri, 28. September 1931.
Sigurður Guðmundsson.
Á erfiðleikatímum, eins og ís-
ienskur verkalýður hefir nú við að
búa, er honum brýn nauðsyn á að
skipuleggja störf sín sem best
hann má, ekki einungis innan
verklýðsfélaganna sjálfra, heldur og
einnig störf félagaheildarinnar, fé-
lagasambandsins — Alþýðuflokks-
ins. —
Pví meiri nauðsyn er á þessu,
þar sem innan verklýðssamtakanna
er nú risinn upp flokkur — Komm-
únistaflokkur íslands — sem hefir
það eitt hlutverk í verklýðsmáium,
að rugla þeim og draga úr sam
takamætti Alþýðuflokksfélaganna
eftir því sem honum er unt- —
Verklýðsfélögin komast því ekki
hjá því lengur, að taka aðstöðu til
þessa óaldarflokks í verklýðsmálum
og skipa málum sínum að ein-
hverju leyti í tilliti til hans.
Alþýðuflokkurinn gerði nokkrar
breytingar og endurbætur á lögum
sínum á þinginu s.I. ár. Félögin,
sem í Alþýðufl. eru, verða að
kynna sér þetta og haga sér þar
eftir. Verða því birtar hér á eftir
nokkrar greinar úr lögum Alþýðu-
flokksfundarins, sem taka verður til
athugunar og eftirbreytni:
8. grein laganna hljóðar svo:
»8. gr. Ekkert verklýðsfélag inn-
an sambandsins má hafa sem aðal-
meðlim, mann, sem er í öðru verk-
lýðsfélagi innan sambandsins, en
taka má hann inn sem aukameðlim.
Sama gildir um jafnaðarmannafélög.
Aukameðlimir hafa tiilögurétt og
málfrelsi, en ekki atkvæðarétt, og
geta ekki fengið fulltrúaréttindi *
NÝJA BIÓ
Þriðjudags- og 'Miðvikudags-
kvöld ki. 8,30 Ný mynd.
Slórfræg hljómmynd í 9 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Lila Lee,
Constance Bennett og
Richard Bartelmess
Þetta er framúrskarandi góð mynd
sem á erindi til alls hugsandi
fólks, enda ágætlega ti! hennar
vandað með hinum góðkunna
leikara, Richard Bartelm-
ess, sem nú er orðinn sjaldséð-
ur gestur hér.
í verklýðsfélögunum er töluvert
af mönnum, sem falla undir ákvæði
þessarar greinar. Eru í fleiru en
einu félagi og eru látnir hafa full
réttindi í öllum. Þessir menn fara
ef til vill með fulltrúaiéttindi í
mörgum félögum, sem er algerlega
ólöglegt. —
14- grein hljóðar svo:
»14. gr. Kjörgengi fulltrúa í full-
trúaráð, á fjórðungsþing, sambands-
þing og aðrar ráðstefnur innan
sambandsins, svo og í opinberar
trúnaðarstöður fyrir sambandsins
eða flokksins hönd, er bundið við,
að fulltrúinn sé Alþýðuflokksmaður
og tilheyri engum öðrum stjórn-
málaflokki. Hver fulltrúi er skýld-
ur, áður en kosning hans er sam-