Alþýðumaðurinn - 31.10.1931, Side 2
2
ALÞÝÐUM AÐ URINN
nóg með það. Á leikvöllum og
við skíðabrekkur, sem bærinn er
skyldugur að leggja börnunum til,
þurfa að vera eftirlitsmenn, sem
halda börnunum að leikjum, og
hafa eftirlit með því, að uppvöðslu-
samir og illa innrættir krakkar geri
ekki öðrum börnum vistina þar
ómögulega- Margir foreldrar þora
ekki að láta börnin sín fara til
leikvalianna, meðan þar er ekkert
eftirlit. —
Vínsalan á Hótel Borg.
Fá mál hafa farið meira í taug-
arnar á Reykvíkingum, en tilhliðr-
unarsemi dómsmálaráðuneytisins
við hótelhaldarann á Hótel Borg,
er það framlengdi vínveitingatímann
á hótelinu. Frá þessu hefir verið
lítillega sagt hér í blaðinu og einn-
ig getið þeirra mótmæia, er þetta
hefir hlotið í Reykjavík.
En nú er nýít komið upp í þessu
máli. Klögun á hendur hótelhald-
aranum, fyrir óleyfilega vínsölu, er
fram komin og hefir málið verið
undir rannsókn undanfarið.
Blaðið »Sókn«, sem gefið er út
af Síórstúku íslands, skýrir frá þess-
um málum 22. þ. m. á þessa leið:
»í síðasta blaði var sagt frá kvöld-
vínveitingaleyfi því, er dórnsmáia-
ráðherra veitti »Hótel Borg«, svo
og þeim mótmælum, er samþykkt
hefðu verið gegn þessari ráðstöf-
un. Dómsmálaráðh. er nú kominn
neim, en he'irekki breytt þessari ein-
kennilegu ráðstöfun. En fyrir nokkru
síðan iögðu 3 fyrverandi og einn
núverandi þjónn á »Hótel Borg«
fram skýrslu um hvernig vínveit-
ingaleyfi hótelsins væri notað, og
sendu hana til lögregiustjóra, með
ósk um rannsókn á málinu,
Lögreglan hefir tekið málið til
rannsóknar og hafa allir þeir þjón-
^r, er nú vinna á hótelinu, og
þjónar þeir er skýrsluna gáfu, verið
yfirheyrðir. Er skemst frá að segja,
að allir þjónarnir hafa borið það
að selt hafi verið vín út úr hótel-
inu, á óiöglegum tíma sem lögleg-
um, og að það hafi verið gert eftir
skipun húsbændanna. Að annað-
hvort þeirra hafi ætíð afhent allt
það vín sem selt er, því að þau
ein hafi lykla að vínkjallara húss-
ins. — Það er með öðrum orðum
fullkomlega sannað, að eigendur
hótelsins hafa þverbrotið svo sem
verða má allar þær reglur, er hótel-
inu eru settar um vínveitingaleyfi.
Og þar með sannaður sá almanna-
rómur er um bæinn hefir gengið,
að vínsalan á »Hótel Borg« væri
svo að segja takmarkalaus, og væri
stórkostlega að auka drykkjuskap í
bænum.«
Þannig segist blaðinu frá þessu
máli, en það sem hér fer á eftir,
sýnir hvernig margir Reykvíkingar
hugsa til þess:
»Þetía hótel, sem er uppbygt
með allskonar fríðindum af hendi
hins opinbera, svo sem: stórar á-
byrgðir, lága skaíta, gjaldfrest á
sköttum, vínsöiuleyfi og þriðju
hverja flösku í sölulaun, hótelið,
sem átti að vera prýði höfuðstað-
arins og alls landsins — og bera
átti vott um hve gott væri að gista
landið, og hve menning íslands
væri mikil — það heldur ekki sjálf-
sögðustu reglur um veitingaleyfi,
þótt það sé byggt með tilstyrk rík-
is og bæjarfélags, þótt það starfi í
landi, sem hafði gert vínið land-
rækt, enda eina hótelið á öllu land-
inu, sem Ieyft er eða trúað fyrir
vínveitingum. Sér er nú hver trú-
menskan!! !
Heimili Reykvíkinga var það
nefnt, fyrst í stað, og alment var
álitið, að nú hefðu bæjarbúar feng-
ið góðan samkomustað- Þar komu
menn af öllum flokkum og stétt-
um, og þar komu bindindismenn-
Þeir komu þar í þeirri trú, að vín-
inu væri haldið innan vissra tak-
marka og að það yrði ekki mis-
brúkað. —
En meðan þeir sátu þar, í þess-
ari fánýtu trú, var verið að selja
vín út, á ólöglegum tíma, í breyii-
legum umbúðum o s frv. — Þvílík
gestrisni! Þvílík virðing fyrír gest-
unum! Og svo — þegar þetta hef-
ir gengið svona um eins árs tíma
eða vel það, þá kemur nýtt leyfi
um aukna sölu. Sjálfur dómsmála-
ráðherrann veitir það, og það
verður svona eins og kóróna á alt
hneykslið, en er látið heita svo, að
það sé tilraun til að freista þess,
að kenna mönnum siðlegri með-
höndlun á víni — kenna mönnum
að vera samkvæmishæfir!! Þarna
fann ráðherrann skólann, sem var
ímynd þeirrar siðfræði og prýði, er
hyggst að kenna íslendingum að
drekka sér til gleði og gengis!!*
En dómsmálaráðherrann virðist
halda með Hótel Borg. Hann hef-
ir ritað um málið í »Tímann«, og
er ekki á honum að skilja, að hann
álíti þá hreifingu, er vaknað hefir
upp á móti vínfarganinu á Borg,
á nokkrum rökum bygða.
Hærri! Hærri!
Eins og sagt hefir verið frá hér
í blaðinu, fékk útflutningsnefnd
Síldareinkasölunnar lögskipaða menn
til að skoða síld þá, sem enn ligg-
ur óseld á Siglufirði og hér við
fjörðinn. Áður en þetta gerðist,
höfðu yfirsíldarmatsmennirnir skoð-
að síldina og gefið útflutnings-
nefndinni skýrslu um hana. Þessir
lögskipuðu skoðunarmenn eru þvf
nokkurskonar há yfirsíldarmatsmenn
og hafa þeir undanfarið verið að
skoða síldina á Siglufirði. Nú hef-
ir síldarsaltendum á Siglufirði fund-
ist þessir há-yfirmenn alt um of
fundvísir á skemda síld; hafa þeir
því haldið fund með sér og sam-
þykt að krefjast þess, að fá lög-
skipaða menn til að skoða hjá sér
síldina upp eftir þessa sendimenn
Einkasölunnar. Verði þetta gert,
fáum vér þarna h æ s t-yfirsíldar-
matsmenn, og hver veit, hve háa
menn vér fáum í framtíðinni.
En verst af öllu er, að hve háa
síldarmatsmenn sem vér fáum, er
síldin jafn skemd eftir sem áður,
og jafn fjarri því að vera verslun-
arvara, fyrst útflutningsnefndin ekki
bregður inn á það eina ráð, sem