Alþýðumaðurinn - 24.11.1931, Qupperneq 1
ALÞYÐUMAÐDRINN
I. árg.
AVureyri, í’riðjudaginn 24. Nóv. 1931.
71. tbl.
ra
Ingvar Ouðjónsson, sem kunnur
er hér um slóðir fyrir margra hluta
sakir, ritar í ísl. síðast alllangt mál
út af grein í Alþ.m. >Tunnusmíðið
drepið«. Ingvari skal ekki láð það,
þó honum séu aum kaunin eftir
greinina í Alþ.m., því það þarf eng-
inn að efa að hann hefir vonast
eftir að sakleysishjúpurinn á tunnu-
tilboði hans gæti hulið það svo
að ekki skini í tilganginn. En fyrst
hann Iangar til að meira sé sagt
um tunnutilboð hans, þá er Alþ.m.
vel til með að gera það.
Ingvar er að fræða lesendur
blaðsins á því, að hann sé umboðs-
maður fyrir norskt firma, sem hafi
selt Síldareinkasölu íslands, fyrir
milligöngu hans, »mjög mikið af
tunnum og satli«.
Er það saltið, sem skemdi síld-
ina fyrir sumum saltendum í fyrra?
Eða saltið með fiskruslinu sem
einkasalan fékk í sumar? Eða er
það eitthvað annan salt sem Ingvar
á við ? —
Annars virðist það all einkenni-
legt, aö einkasalan þurfi á Ingvari
að halda, sem millilið milli hennar
og þessa tunnufirma í Noregi. —
Pegar eígandi firmans var hér á
ferð í sumar, virtist hann rata fylgd-
arlaust inn til framkvæmdarstjóra
einkasölunnar hér, og hefði þá átt
að geta gert sín tunnutiiboð án að-
stoðar Ingvars, ef tilgangurinn væri
að þau ættu að takast alvarlega,—
Bréf Ingvars til einkasölunnar virð-
ist líka benda til þess, að alvaran
með lága tunnuverðið sé ekki mjög
sterk hjá honum. Fresturinn, sem
einkasölunni er settur til þess að
svara tilboðinu, er ekki nema einti
virkur dagur.
Bréfið, sem tilboðinu fylgir, er
dagsett 7. Nóv., sem er Laugar-
dagur, er tekið fram, að svars sé
óskað eigi síðar en næstkomandi
Priðjudag.
Bæjarstjórnin hafði ákveðið að
hafa fund um væntanlegt tunnu-
smíði í vetur þennan Þriðjudag,
sem talað er um í bréfi Ingvars,
svo það var ekkert undarlegt þó
Ingvar vildi vera búinn að binda
Einkasöluna með samningi um
tunnukaup, áður en bæjarstjórninni
gæfist kostur á að samþykkja nokk-
uð um smíði á tunnum hér í
vetur.
Á þessum stutta tíma — einum
degi — átti einkasalan að ákveða
um öll sín tunnukaup og saltkaup
fyrir næsta ár.
Henni átti sýnilega ekki að gef-
ast kostur á að leita tilboða víðar.
Ingvar verður að þola það bóta-
laust, þó almenningur geri ekki
mikið með slík tilboð, sem þetta
tunnutilboð hans, ekki síst þegar
á það er litið, að stjórn einkasöl-
unnar er sem stendur engin.
Hún hefir ekki einusinni þorað
að heita Akureyrarbæ því, að kaupa
tunnur af honum, af því að hún
hefir talið, og það réttilega, að völd
hennar væru úr sögunni.
Petta hlaut Ingvari að vera Ijóst,
þegar hann sendi einkasölunni um-
rætt tilboð, því þetta vita allir menn
hér í bæ; og maður, jafn tíður
gestur á skrifstofu einkasölunnar
eins og Ingvar er, getur ekki skot-
ið sér undir þekkingarleysi í þess-
um efnum, þó hann muni geta það
allvíða á öðrum sviðum.
Skemtileg verður frásögn Ingvars
um ástæðurnar fyrir lága verðinu á
tunnunum, þegar hún er athuguð
niður í kjölinn.
»Orsökin er aðallega sú«, segir
NÝJA BI Ó
Midvikudagskv. kl. 8xjr.
Raffles.
í aðalhlutverkunum:
Ronald Colman
Og
Kay Francis.
Spennandi tal- og hljómmynd
í 8 þáttum, sem allir þurfa
að sjá!
I
FUNDUR
i MKureyrar
verður haldinn f Alþýðuhúsinu
Miðvikudaginn25. þ. m. og hefst kl.
4 síðdegis.
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýrra fálaga.
2. Erindi frá fjárhagsnefnd um
tunnusmíði.
3. Síldareinkasalan.
Félagar, mætið stundvíslega, þvf
fundurinn verður stuttur.
Utanféiagsmenn hafa ekki aðgang
að fundinum, nema með sérstöku
Ieyfi. —
Akureyri, 23. Nóv. 1931.
Félagsstjórnin.