Alþýðumaðurinn - 21.03.1933, Qupperneq 1
ALÞYÐUMAÐURINN
[. árg. Akureyri, Þriðjudaginn 21. Mars 1933. | 17. tb
Valdarán 09 hótanir
uppreistarmanna.
Þó skýrt hafi verið hér í blaðinu
frá ólátum þeim og yfirgangi, sem
hafður var í frammi af uppþots-
mönnum hér í bæ, þegar Nova var
á suðurleið, hefir ekk? enn verið
skýrt frá þeim þætti málsins, sem
eðlilega hlýtur að vekja mesta undr-
un bæjarbúa og annara áhorfenda.
Svo er að sjá á málgagni uppþots-
manna, sem deila sú, er þeir hafa
vakið við bæjarstjórn Akureyrar, sé
eingöngu um kaup það, er greitt
yrði við tunnusmíðið. En frá hendi
bæjarstjórnar er óhætt að fullyrða
að deila þessi er ekki eingöngu
vegna kaupkrafanna, heldur vegna
þess að uppreistarmennirnir heimta
að bæjarstjórnin afhendi þeim það
vald, sem henni einni að sjálfsögðu
ber að hafa yfir vinnu þeirri, sem
unnin er á hennar vegum. í bréfi
því, er stjórnir Verkamannafélagsins
og Verkakvennafélagsins hér rituðu
bæjarstjórninni áður en Nova kom
með tunnuefnið, var þess krafist af
þessum stjórnum, að þœr réðu því
hvaða menn ynnu við tunnusmíði
bæjarins, en eins og kunnugt er,
hefir bæjarstjórnin falið atvinnu-
bótanefnd sinni að ráðstafa þessari
vinnu eins og annari atvinnubóta-
-vinnu. —
Er bréfið birt hér til sönnunar
því að rétt er frá skýrt:
Vegna þess að kunnugt er, að
bæjarstjórn Akureyrar hefiríhyggju
að láta framkvæma smíöi á ca. 20
£úsund síldartunnum, án þess að
iaka tillit til þeirra krafa, sem Verka-
mannafélag Akureyrar hefir gert, í
þessu efni, tilkynnist yður hérmeð,
að Verkamannafélag Akureyrar og
Verkakvennafélagið »Eining«, hafa
ákveðið að líða ekki framkvæmd
þessa verks, nema bæjarstjórn Ak-
ureyrar undirriti samning við þessi
félög, um að vinnulaun við þetta
verk verði greidd samkvæmt kaup-
taxta Verkamannafélags Akureyrar,
en það er kr. 1,25 á klukkustund,
ef um tímavinnu er að ræða, en kr.
250,00 á mánuði yfir vetrarmánuð-
ina, ef ráðið er til minst tveggja
mánaða.
Ennfremur krefjast félögin þess,
að við tunnusmíðið vinni ekki aðrir
en þeir, sem stjórnir félaganna sam-
þykkja. — (Leturbr. hér).
Óskum svars fyrir kl. 6 síðdegis
13. þ. m. — Ef svar verður ekki
komið fyrir tilsettan tíma, skoðast
það sem neitun, og munu félögin
haga sér samkvæmt því.
Akureyri, p. 13. Mars 1933.
( stjórn Verkakvennafél. »Eining«:
(Sign.) Elísabet Eiríksdóttir.
— Steinunn Jóhannesdóttir.
— Aðalbjörg Helgadóttir.
— Kristjana Grímsdóttir.
— Margrét Vilmundardóttir.
í stjórn Verkamannafél. Akureyrar:
(Sign.) Steingr. Aðalsteinsson,
— Magnús Gíslason■
— Björn * Grímsson.
— Sigurjón fóhannesson-
— Sigurður Vilmundarson.
Til
bæjarstjórnar Akureyrarkaupstaðar
Akurey ri.
Annar þáttur þessa máls gerist,
er þrír menn úr iiði uppþotsmanna
fara á fund bæjarstjóra með áskor-
ISMB N YJ A BI O H
M ið vikudags- og
Fim tudagsk völd kl. 9:
Kvikmyndasjónleikur í 8 þátt-
um. — Aðalhlutverkið leikur
hinn heimsfrægi cowboy
T O M M I X.
Óvenjulega skemtileg og
spennandi mynd. með einum
besta og hetjulegasta reið-
manni heimsins.
Aukamynd;
MICKY MOUSE
í SKOTGRÖFUNUM.
un um að haldinn sé opinn fundur
í bæjarstjórninni, og þar sé gengið
að öllum kröfum, sem setlar séu
fram í ofanrituðu bréfi, og skýra
menn þessir þannig frá, að ef ekki
verði tafarlaust gengið að kröfum
þessum, þá geti fyrirliðar uppþots-
manna ekki borið ábyrgð á þvi þó
einhverjir úr þeirra liði fari að mis-
þyrma vissum mönnum, sem þó
eru ekki nefndir á nafn. Að sönnu
er bæjarstjórinn einn til frásagna
um ummæli þessara manna, en
engum mun til hugar koma að
hann skýri rangt frá um að ofan-
greindar hótanir hafr verið hafðar í
frammi við hann.
Er áskorun þessi um opinn fund
birt hér til sönnunar um heimsókn
þremenninganna til bæjarstjórans,
og geta menn séð á uncfirskriftun-