Alþýðumaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Alþýðumaðurinn - 20.06.1933, Qupperneq 1

Alþýðumaðurinn - 20.06.1933, Qupperneq 1
ALÞÝÐUMAÐURINN Akureyri, f*riðjudaginn 20. Júní 1933. 33. tbl. III. árg. friMin á Akureyri 89 í Eyjafjaröarsýslu. Pótí Alþýðumaðurinn ætli sér ekki að ræða mikið um framboðin til þings í þetta sinn, þykir ekki annað hlýða en að minnast á það sem næst er, og það eru framboð flokkanna hér á Akureyri og í Eyja- fjarðarsýslu; ekki síst af því nokkr- ir nýir menn hafa komið þar fram á vígvöllinn. Hér á Akureyri bjóða samherj- arnir, »Sjálfstæðið« og »kommar«, fram sömu menn og við síðustu kosningar. Það myndi nokkurnveg- inn einu gilda fyrir auðvaldið í landinu hver þeirra kæmist á þing. Báðir mundu þar jafn áhrifalausir og trúir málstað burgeisanna. Báðir jafn fjandsamlegir heilbrigðum al- þýðusamtökum, Báðir jafnmikið úti á þekju í íslenskum stjórnmál- um- Báðum eiga því kjósendur bæjarins að hafna. Frambjóðandi Framsóknar mun hafa svo lítil ítök í kjósendum, að hann mun ekki taka stórt rúm á baráttuvellinum. Hann mun hallast að hægri armi Framsóknar, sem er allt of sterkur á þingi og því síst á bætandi þar. Frambjóðandi Alþýðuflokksins, Stefán Jóhann Stefánsson, er langt fyrir öllum hinum frambjóðendun- um um flesta hluti. Vegna ment- unar og margþættra starfa undan- farin ár, er hann þaulkunnugur ís- lenskum atvinnumálum og þjóð- itnálum yfirleitt, og hefir reynst ó- trauður fulltrúi hins vinnandi lýðs til sjávar og sveita, en gætinn og verkhygginn að sama skapi. Hann ér því það þingmannsefnið, sem verkalýð og miðstéttarmönnum ber að veita fylgi inn á þingið, svo fremi sem þeir vilja hlúa að hag aiþýðunnar, bæjarins og þjóðarinnar í heild. í sýslunni fara fram sömu menn frá Framsókn og »Sjálfstæðinu€ og við síðustu kosningar. Frambjóð- endur Sjálfstæðisins eru jafn lítið kunnir að gagnlegum störfum fyrir þjóðina og fylgi þeirra er lítið með- al kjósenda í sýslunni. Hlutverk þeirra við þessar kosningar er ein- ungis það, að halda uppi vonlausri baráttu í þessu fyrrum magnaða íhaldskjördæmi, ug sýna þverrandi fylgi flokksins. Framsóknarmenn- irnir koma heim af þingi, með norsku samningana sem gjöf til kjósenda, Er ekki ólíklegt að þeir verði þess einhversstaðar varir, að fólkið sé ekki þrungið af þakklæti við þá. Kommúnistarnir búa hér undir þeirri kaldhæðni örlaganna að bjóða fram þá menn, sem á vett- vangi verklýðssamtakanna ynna af hendi sama hlutverk og engisprett- ur og grasmaðkur á grænum grund- um. Hvar sem spor þeirra liggja, gefur að líta sviðna slóð ógæfu- mannanna í verklýðsmálum. Stein- grímur Aðalsteinsson er þegar orð- inn landskunnur fyrir verklýðsfé- lagadráp og alla hugsanlega óáran á því sviði- Og Ounnar Jóhanns- son, sem í vetur tók við einu allra öflugasta verklýðsfélagi landsins, Verkamannafélagi Siglufjarðar, er, eftir fjögra mánaða stjórn, kominn það langt niður á við með félagið, að í stað þess að áður voru fundir þess sóttir af 200 — 300 manns, mm n y j a b i o mm Miðvikudagskvöld kl. 9. Kátur piltur Norsk tal- og hljómmynd í 8 þáttum. Tekin eftir hinni ágætu sögu Björnstjerne Björnsons. Aðalhlutverkin leika: Tore Foss, Görrel Egede Nissen, Haraid Stormoen A/S National Tonefilm í Oslo hefir í tilefni af minningarhá- tíðarhöldum um BJÖRNSON í fyrra tekið á kvikmynd eina af vinsælustu sögum skáldsins, Og er ekkert sparað til að gera hana sem best úr garði. hefir hann verið að dingla með 30 tii. 50 menn á fundi, og hefir þurft að gera margar tilraunir til að fá kauptaxta kláraðann og yfirleitt framkvæmd vanaleg störf, sem ekki hefir verið hægt að komasí undan. Ekkert hefir verið gert, sem bent gæti á gróandi líf eða atorku undir hinni vesælu stjórn Gunnars. Er ekki annað sýnilegt en alger upp- lausn félagsins standi fyrir dyrum, nema menn þeir, sem áður fóru með völd í félaginu, Alþýðuflokks- mennirnir, taki við stjórninni aftur — og það helst strax á þessu ári. Pað geta víst aflir velunnar íslenskr- ar alþýðu verið sammála um það, að slíkir menn séu ólíklegastir allra til þingsetu, enda er hlutverk þeirra ekkert annað í kosningunum, en að

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.