Alþýðumaðurinn - 20.06.1933, Síða 4
4
alÞýðumaðurinn
Dráttarvextir
falla á fyrri hluta útsvara f Akureyrarkaupstaö, ef ekki er greitt fyrir l'.
Júlí n, k. — Vextirnir eru \% á mánuði, og reiknast frá 1. Maí s. 1.
Bæjargjaldkerirm.
ÍJTVARPIÐ
Þriöjudaginn 20. Júní:
KI. 20,30 Upplestur,Jón Bergmann
— 21,50 Hljómleikar.
Miðvikudaginn 21. Júní:
Kl. 20,30 Frá útlöndum, S. E.
— 21,30 Hljómleikar.
I'iintudaginn 22. Júní:
Kl. 13 Setning prestastefnunar.
— Ræða í Dómkirkjunni.
— 21,30 Hljómleikar.
Föstudaginn 23. Júní:
Kl. 20 Ræða í ‘Dómkirkjunni.
— 21,30 Grammofónhljómleikar.
.Laugardaginn 24. Júní:
Kl. 20,30 Erindi, Margeir Jónsson
— 21,30 Hljómleikar og síðan
danslög til 24.
Ungírú lóhanna Jóhannsdóttir hef-
ir sungið hér tvisvar undanfarið við
dágóða aðsóku og ágætán orðstýr,
Fara vinsældir þessarar ungu söng-
konu vaxandi ' því oftar sem hún
lætur til sfn heyra, og það að verð-
leikum.
Bæjarbúar eiga von á alveg sér-
stæðri hliómleika- og söngskemtun
á Fimtudagskvöldið kemur. Sigfús
' Einarsson tóirskáld kemur hingað
með fjölskyldu sína og efnir til
þessarar fágætu skemtunar. Sonur
Sigfúsar og unnusta hans leika á
fiðlu, dóttir Sigfusar syngur einsöng
og kona Sigfúsar aðstoðar við
hvorutveggja. Mun mörgum leika
hugur á að sækja þetta réttnefnda
Sigfúsar-kvöld.
Á íþróttamóti K. A. á Sunnudag-
inn þreyttu þessi félög: K. A., UMF
»Efling« Reykjadal, UMF »Geisli«
Aðaldal, UMF Mývetninga og knatt-
syrnufélagið »Völsungur«, Húsavík.
Sigurvegarar í hinum ýmsu íþrótt-'
um urðu sem hér segir: —- 100 m.
hluup Tómas Steingrímsson, K, A.
Rann hann skeiðið á 119/io sek- —
Kringlukast samanl.: Helgi Schiöth,
KA, 55,90 m. — Langstökk: Tómas
Steingrímss,, KA, 5,79 m. — Spjót-
kast: (betri hendi) Illugi Jónsson,
UMF Mývetninga, 43,94 m. — Stang-
arstökk: Tómas Steingrímsson, 'KA,
2,71 m. - 800 m. hlaup: Karl Bene-
diktsson, KA. Rann hann skeiðið á
2,33 mín. — Hástökk: Tómas Stein-
grímsson, KA, 1,56 m. — Kújuvarp
samanl.: Helge Torvö, KA, 23,52 m,
íslandsmetið var áður 21,95 m. —•
Þristökk: Haraldur Jónsson, UMF
»Efling« og Helge Torvö, KA, jafn-
ir, 12,10 m.
Aðalfundur Sambands ísl. sam-
vinnufélaga hefir staðið hér i bæn-
um undanfarið og var lokið í gær.
Sátu hann fulltrúar víðsvegar af
landinu.
í nótt andaðist að heimtli sínu hér
í bænum, Jón Ó. Finnbogason banka-
ritari, 72 ára að aldri, sérstakur
reglu- og heiðursmaður, vel kyntur
af öllum.
Skæðadrífa.
Framboð kommúnistai.
Kommúnistaflokkurinn býður f'ram
í flestum kjördæmum landsins. Sum-
staðar hefir »samfyikingin«, »sellurnar«,
»A. S. V.« og »baráttuliðið«, saman-
lagt ekki verið nógu fjölmennt til að
skaffa nógu marga meðmælendur. —
En þetta hefir ekkert gert til. fhaldið
hefir lagt það til, sem á hefir vantað
á hverjum stað. Samvinnan er *hin
sama og jafn góð um allt land.
Ónýtisverk.
rað kom heldur en ekki á kom-
múnistana og aftaníossa þeirra, þegar
það fréltist, að Stefán Jóhann yrði hér
í kjöri af hálfu Alþýðuflokksins, en
ekki Erlíngur Friðjónsson. »Samfy!k-
ingin* hafði verið að búa sig undir
baráttuna gegn Erlingi frá því vetur
og var farin að bera út allskonar lyga-
og svívirðingasögur um hann, sem
»sellan« hafði búið til, endurbættar
voru af »ráðinu« og búið var að
kenna >baráíluliðinu« utan að, svo
öllum bæri sem best saman. En svo
kemur framboð Stefáns Jóhanns ofan
í allt saman. Hið »fagra« og »göfuga«
starf »verklýðsvinanna« er allt ónýtt.
Hvílíkt ástand!
Utan veitubesefar
Við kosningarnar núna hafa komið
fram ýmsir menn, sem enginn flokkur
vill kannast við. Vestur í Snæfellsness-
og Hnappadalssýslu er nú á ferðinni
Framsóknarmaður, sem Framsókn sver
fyrir, en hann lætur því meir yfir sér
sem meir er við honum amast. — í
Suður-Pingeyjarsýslu rær Jón H. Þor-
bergsson einu á báti í óþökk allra
flokka, og í Norður-Pingeyjarsýslu hef-
ir skotið upp þingmannsefni, sem
enginn veit deili á. Samt hefir frést,
að »hreyfingin« sé að gangast við
þessum utanveltubesefum síðustu dag-
ana. Kemur það vel heim við þá yfir-
lýsingu Gíslanna, að i »hreyfingunni«
sé »pláss fyrir a 1 I a .«
Nasistaflokkurinn í Austurríki hef-
ir verið bannaður, blöð hans og
tímarit bönnuð; foringjar flokksins
út um land handteknir og fiuttir til
Wien. Aðal áhrifamaður Nasista
við þýsku sendisveitina í Wien
rekin heim til Pýskalands. Hefir
austurríska stjórnin tilkynt að hún
inuni bæla nasismann niður með
öllum hugsanlegum ráðum. Aust-
urrísku blöðin eru ánægð með
þessa ákvörðun stjórnarinnar, og
segja þjóðverja mega eiga nasism-
ann eina, Austurríki hafl hans enga
þörf. —
(Frétt frá Berlín .í dag.)