Alþýðumaðurinn - 05.12.1933, Side 5
Aukablað 5. Des. 1933.
ALf»ÝÐUMAÐURINN
5
Skæðadrífa.
Frá istefnunni<.
Af ráðstefnu »kommanna« um
fyrri helgi berast ýmsar góðar sög-
ur. Hér er ein*' Björn Grímsson
fulltrúi SjómarkHLjfélags Norðurlandsi
bar fram kveinstafi mikla á »stefn-
unni« yfir því, að sjómenn hér
nyrðra vildu ekki þýðast fyrirsjá hans
í dauða félaginu. Hefði hann eftir
ítrekaða baráttu, komist það hæst,
að ná saman 14 á fund. Hefðu þeir,
sem mættu, verið þessir:
Björn Grímsson, form. Sjómfél.
Björn Grímsson, ritari Sjómfél-
Björn Grímsson, gjaldk. Sjómfél.
Björn Grímsson, fulltr. Sjómfél.
Björn Grímsson, stjórnandi
Söltunarfél.
Björn Grímsson, ritari Verkamfél.
Björn Ga'msson, varar. V. S. N.
B örn Grímsson, fulltrúaráðsm.
Björn Grímsson, kauptaxtanefnd
Sjómfél.
Björn Grímsson, fyrv- kaupm.
Björn Grímsson, kennari
Björn Grímsson, kosningasmaíi E.O.
Björn Grímsson, samfylkingarm.
Björn Grímsson, á opinberu fram-
færi Sig'ufjarðar. Lét B.G. svo um
mælt, að hann væri mjög að þreyt-
ast við þetta strit.
Hjalti Árnason er maður nefndur,
Hann er frægur fyrir það, að fyrir
nokkru mætti hann á alheirnsþingi
sjómanna í Hamborg. sem fulltrúi
íslenskra sjómanna, en hafði auð-
vitað ekki umboð frá einum einasta
íslenskum sjómanni. Á þingi þessu
sagði Hjalti að kjör íslenskra sjó-
manna væru svo góð, sem þau eru,
af því að kommúnistar hefðu alltaf
ráðið málum þeirra, og réðu enn!!.
Hjalti þessi var staddur á stefnunni
sem fulltrúi »Samfylkingar sjómanna
í Reykjavík* en í þeirri samfylk-
ingu eru engir siómenn. Er B. G
hafði lokið ræðu sinni, reis upp
Hjalti þessi og bað B. G. að ör-
vænta ekki. Samfylkingin í Rvík
væri e'nmitt mjög hliðstæð félagi
þeirra Grímssonanna, og svoleiðis
ættu sjómannafélög að vera. »Sjó-
mannafélag Reykjavíkur* væri ekkert
sjómannafélag, því í því væru yfir
1300 sjómenn, en svoleiðis ættu sjó-
mannafélög ekki að vera. Var ræðu
Hjalta tekið með ódæma fögnuði á
»stefnunni«, og héltPorst. Þorsteins-
son eina af sínum hjartnæmustu
ræðum f tilefni af þessu og kvaðst
vænta mikils í framtíðinni af þeim
Björnunum og samfylkingu þeirra.
Tók »stefnan« undir það með lófa-
taki. —
Snúa baki við Aiþýðusam
bandinu.
»Verkam « segir nýlega að nú séu
verklýðsfélögin á norðurlandi »hvert
af öðru« að snúa bakinu við Al-
þýðusambandinu »vegna svika krata-
broddanna«. Pví til sönnunnar segir
blaðið frá því að félagið á Blöndu-
ósi hafi sótt um inngöngu i V.S.N.
Pað eru engir smáræðis »sigrar«
sem V.S.N. hefir unnið hér vestur
undan undanfarið, og verða sjálf-
sagt að sama skapi langgæðir. Á
Hvammstanga náðu »kommar«
stjórninni í félaginu, en höfðu ekki
bolmagn til að sprengja félagið út
úr Alþýðusambandinu, eða koma
fulltrúum á »Stefnuna hér á Akur-
eyri«. Á fámennum fundi á Blöndu-
ósi fengu »kommar« samþykkta
inngöngubeiðni í V.S.N. með 15
atkv. gegn 14. Á Sauðárkróki —
þar eru yfir 100 manns í félaginu
— var samþykkt með 10 atkv. gegn
9 að senda menn á »stefnuna«.
Það er von að »Verkam.« sé boru-
brattur yfir »sigrunum«,
Verðlaunitt.
Verkamaðurinn segir frá því, að
styrkur bæjarins til félaganna hér
sé »verðfaun fyrir að svlkja í stétta-
baráttunni og sundra samtökum
verkamanna.* — Porsteinn, fulltrúi
sprengingakommúnistanna í bæjar-
stjórn, virðist hafa sama skilning á
þessu og Verkam., því hann heimt-
aði 600 króna slyrk af bænum
handa sínu verkamannafélagi og
500 kr. handa félagi Elísabetar, en
greiddi einn allra bæjarfulltiúa atkv.
á móti styrk til Verklýðsfélags Ak-
ureyrar.
yHávaði og áflog í Verklýðs-
húsinu.«
f
Einhver B..... segir frá því í
Verkam, að það sé *hávaði ogáflog
í Verklýðshúsinu« á böllum þeim,
sem Elísabet og Porsteinn standa
fyrir þar. Miklar Ijómandi samkom-
ur eru það, sem B ið er þarna að
lýsa þar, sem >hávaði og áflog*
er aðal skemtunin. Það er einnig
kunnugt að lögreglustjóri hefirgert
sérstakar ráðstafanir í sambandi við
»hávaðann og áflogin« á þessum
skemmtisamkomum Elísabetar og
Þorsteins, og hafa stundum þrír
lögreglubjónar í einu haft eftitlit
með þessum nýmóðins skemti-
atriðum, sem B ið skýrir frá. Pótt
öll lögreela bæjarins hafi á þennan
hátt verið kvödd til starfa, hafa
lausir munir í námunda við húsið
verið brotnir, svo sem stigar, og
rúðubrot framin þar sem við hefir
þótt eiga, flöskur og glös, heilt og
brotið, legið kringum samkomu-
staðinn, og ælur úr þátttakendum
prýtt vettvang eftir skemtinæturnar.
Tilhæfulaus lýgi
er það, sem saursnepill kommúnista
segir að Edingur Friðjónsson hafi
greitt atkvæði á móti því á síðasta
bæjarstjórnarfundi, að *farið yrði
ftam á hœkkaðan atvinnubótastyrk «.
Engin tillaga lá fyrir fundinum um
slíkt, og gat því hvorki komið þar
til greina með eða mótatkvæði. -
En hins má geta, að Þorsteinn
Porsteinsson, málpípa kommúnista,
hagaði sér svo bjánalega á fundin-
um, að ætla að koma inn á fjár-
hagsáætlun bæjarins ímynduðum
tekjum, sem hann kallaði styrk til
atvinnubóta, og kemst hann þar
jafn langt og þeir allra sparsöm-
ustu í aftuihaldsliði bæjarins, sem
mjög eru þekktir að því að búa til
tekjur á pappírnum, sem aldrei
koma í bæjarkassann, til þess eins
að losna við að leggja útsvör á
gialdþegnana og hlífa eigin pyngju.
— En bæjarfulltrúunum ofbauð svo
þessi íhaldsvitleysa Þorsteins, að
allir greiddu atkvæði á móti henni