Alþýðumaðurinn - 19.12.1933, Page 1
\
ALÞYBDMAÐURINN
III. árg.
Alcureyri, í’riðjudaginn 19. Desember 1933.
64. tbl.
A
Qíediíegva jó(a
óskar Alþýðumaðurinn les-
endum sínurn nœr og fjœr.
Listi
Jafnaðarmannafélagsins »Akur«, sem
um leið er listi Alþýðuflokksins á
Akureyri, við bæjarstjórnarkosning-
arnar eftir nýárið, var lagður inn
til formanns kjörstjórnar á Laugar-
daginn var. Listinn verður A listi
og eru á honum þessir menn:
Erlingur Friðjónsson kaupfélagsstj.
Svanlaugur Jóhasson verkamaður.
Guðmundur Jónsson vkm. Eyrarl.
Haraldur Gunnlaugsson skipstjóri.
Gestur Bjarnason hafnarvörður.
Jón Austfjörð smiður.
Halldór Guðmundss. vkm. Naustum
Stefán Árnason verkamaður.
Jón Stefánsson Vopni verkamaður.
Aðalsteinn Stefánsson verkstj.
Halldór Friðjónsson verkam.
Dorsteinn Sigurðsson vélstjóri,
Grundargötu 5.
Listar hinna flokkanna eru í fæð-
ingu þessa dagana, og gengur treg-
lega sumstaðar.
AIMðuflokksmerklð
þurfa allir góðir alþýðu-
flokksmean að fá sér fyrir
jólin. Kostar. 50 aura. Fæst
á afgr. Alþýðumannsins.
Bæjarstjórnar-
kosningarnar.
Alþm. hefir enn ekki þreytt les-
endur sína á umræðu-m um bæjar-
stjórnarkosningarnar, sem nú standa
fyrir dyrum. En nú dregur óðum
að því, að kjósendur í bænum fari
að gera upp við sig hvar í sveit
þeir skipa sér, og þykir þá hlýða
að gera nokkra grein fyrir afstöðu
Alþýðuflokksmannanna til kosning-
anna; þótt það þurfi ekki að verða
langt mál, þar sem bæjarbúum er
stefna flokksjns kunn af afskiftum
hans af bæjarmálum hartnær 20
síðustu ár.
Frá því Alþýðufl. sem flokkur,
fór að skifta sér af bæjarstjórnar-
kosningunum hér í bæ, hafa full-
trúar hans allt af haldið þeirii
stefnu, sem hvarvetna hefir reynst
heilladrýgst fyrir verkalýðinn, að
vinna með einbeitni, festu, en þó
fullri gætni, að framgangi þeirra
mála í bænum, sem eflt hafa vel-
gengni hins vinnandi lýðs og trygt
afkomu hans í einu og öllu. Pess-
ari stefnu fylgir flokkurinn og full-
trúar hans enn, og munu ekki frá
henni víkja.
Frá öndverðu hafa fulltrúar Al-
þýðufl. beitt sér fyrir hverju al-
mennu framfaramáli í bænum, má
þar til nefna jarðakaup bæjarins,
vatnsveituna, rafveituna, hafnar-
mannvirkin, endurbætur veganna,
holræsin, gangstéttirnar, byggingu
barnaskólans o. fl. — Pá hafa full-
trúar flokksins knúð fram margs-
konar aukna atvinnu í bænum, og
varnað kauplækkun af hendi bæj-
arstjórnar. Síðasti ávöxtur þessa
— NÝJA-BÍÓ m
Miö vikudagskvöld kl. 9.
Vald eyðimerkurinnar
Tal- og hljómmy-nd í 8 þátt-
um. Aðalhlutverkin leika:
Taiulah Bankhead —
Charies Laughton og
Gary Cooper.
Mynd þessi gerist að mestu
í litlum hafnarbæ í Norður-
Afiíku og aðalþáttur hennar
í neðansjávarbát á hafsbotni.
Myndin er óvenjulega spenn-
andi og stórvel leikin og
tekin.
Næsta-sýning verður 2. jóladag.
starfs er samþykt hafnarnefndar nú
fyrir nokkrum dögum um að hafn-
arsjóður leggi fram 33 þús. krónur
til byggingar smábátakvíar nú
þegar. —
Af þessari undanfarandi reynslu;
— reynslu, sem ekki verður vé-
fengd — má ráða í hvernig AI-
þýðuflokksfulltrúarnir muni starfa í
framtíðinni.
Þeir munu, eins og að undan-
förnu, beita sér fyrir hagsmunamál-
um verkalýðs tii lands og sjávar,
og á þann hátt að öllu miði áfram,
þótt hægar gangi, þegar engin sér-
stök verkefni liggja fyrir, en forðast
árekstra, sem vanhugsað flan og
yfirborðsbægslagangur leiðir til-
f samrææi við þetta stiilir flokk-
urinn upp til bæjarstjórnarkosning-
anna nú vetur og væntir þess að