Alþýðumaðurinn - 05.05.1942, Síða 1
ALÞYSUMAÐURINN
XII. *rg.
Akureyri, briðjudaginn 5. Maí 1942.
18. tbl.
Thorvald Stauning
I á t i n n .
Á Sunnudaginn var lést einn af
kunnustu stjórnmálamönnum álf-
unnar, Thorvald Stauning, forsætis-
ráöherra Dana, 66 ára að aldri.
Taiið er að hjartabilun hafi orðið
banamein hans, en hann hafði ár-
um saman verið vanheill og þó
unnið eins og heill heilsu væri.
Thorvald Stauning á einn hinn
glæsilegasta stjórnmálaferil að haki
þegar það er athugað, að hann
lifði og starfaði með smáþjóð.
Nafn hans var þekkt um gervallan
menntaðan heim, og við það var
bundin sú kend, sem aðeins fylg-
ir nöfnum stórmenna.
Stauning var af fátæku alþýðu-
fólki kominn. Byrjaði ungur að
■vinna fyrir sér. Var fyrst vika-
drengur á tóbaksverksmiðju. Ung-
ur tók hann að starfa í verklýðs-
hreyfingunni dönsku. Ólst hann
upp með henni og varð brátt miklu
ráðandi á þeim vettvangi, Þegar
hann hafði aldur til varð hann for-
ingi f jafnaðarmannaflokknum, og
var aflt i senn, harðíkeyttur bar-
dagamaður, kænn og ráðslingur
foringi, og dáður af alþýðu nianna
meir en nokkur annar stjórmnála-
maður. Mótstöðumenn hans, eink-
um kommúnistar, töldu hann tæki-
færissinnaðan um of, en reynslan
var sú að verkalýðurinn tapaði
aldrei máli undir stjórn hans.
Stauning varð fyrst ráðherra 1916,
-en var það skamma stund. Aftur
varð hann forsætisráðherra í fyrstu
jafnaðarmannastjórn í Danmörku
1924, og slitalaust forsætisráðherra
frá 1929 til dauðadags, eða um 14
ára skeið. Hefir enginn maður
áður setið svo Iengi á forsætisráð-
herrastóli á Norðurlöndum. Og Al-
þýðuflokkurinn óx jafnt og þétt
undir stjórn Staunings. Vann hvern
kosningasigurinn af öðrum, og
stóð að stórfeldari þjóðfélagsum-
bótum í Danmörku. Þó var valda-
tími Staunings mikill óróatími í
Danmörku. Kommúnistar, og síð-
ar nasistar, ráku þar heiftúðuga
undirróðursstarfsemi og reyndu að
vinna Alþýðuflokknum allt það
mein sem unnt var. Fór það að
líkum að foringi hans fór ekki
varhluta að rógi, álygum og opin-
berum árásum vikapilta herranna í
Moskva og Berlín. En þjóðin
fylkti liði um Stauning, þvi fastar,
sem hann var ofsóttur meira, enda
náðu myrkvavöldin frá Moskva og
Berlín aldrei neinni pólitfskri að-
stöðu í Danmörku.
Daglega var Stauning hvers
manns hugljúfi, einkum alþýðu-
fólks. Þótt störf hans flyttust úr
verksmiðjunni upp í þingsal og
ráðherrabústaði, afrækti hann aldrei
»sitt fólk<. Hann var sístarfandi
fyrir félög þess. Tók þátt í
skenimtunum þess. Var sítalandi
á fundum þess, og leysti hvers
manns vanda. í garð auðmanna
og aðals var hann harður en þó
réttsýnn. Óáleitinn, en umsvifa-
mikill ef með þurfti. Allt þetta
aflaði honum trausts bæði æðri og
lægri,
Stauning var sfstarfandi að auk-
inni samvinnu Norðurlanda. Hann
lét sér mjög annt um mál íslands
og átti hér marga vini. Hann kom
hingað fjórum sinnum. Sagðist
sækja hingað hvíld og andlega og
líkamlega hressingu. Óskaði off
að hann mætti eyða sumarfrfunr
sínum í blátæra fjallaloftinu á fs-
landi.
Thorvald Stauning hlaut að lúta
sömu örlögum, og svo marg-
ir brautryðjendur verklýðshreyflng-
arinnar. Slitalaust starf, áhyggjur.
engin hvíld, eyðir kröftum þeirrs
fyrir aldur fram. &eir falla undir
merkinu fyr en skyldi. En dags-
verk þeirra er æilð margfalt á móti
þeirra, sem lengur lifa.
..-.... ^ -----------------
/arðarför
Axels Kristjánssonar kaupmanns
fór fram á Laugardaginn, að við-
stðddu svo miklu fjölmenni aA
kirkjan rúmaði ekki nærri þvf alla,
sem þangað komu. íþróttamenn
fylgdu undir fána frá heimili tif
kirkju og Oddfellovar stóðu heiðura-
vörð í kirkju. Norskir hermenn
stóðu heiðursvörð við kirkjudyr,-
Ö1I var jarðarförin hin virðuiegasta^
S/ys á Dalvík
i Laugardaginn varð þaöjslys á vél>
báti frá Dalvík, að maður, aA
nafni Tómas Jónsson, lenti í véf
bátsins með aðra hendina og meidd-
ist svo að taka varð hana af þegar
í land kom.
i
—
Nýlátinu er hér í bænum Sigfú*:
Axfjörð frá Krónustöðum, víða kun»
ur og vel tnetinn maður,