Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 11.08.1942, Blaðsíða 2

Alþýðumaðurinn - 11.08.1942, Blaðsíða 2
ALÞÝÐUMAÐURíinN ' ' Fundur í félaginu 7. þ. m. ræðir kaupgjalds- málin og veitir stjórninni umboð til að semja um kauphækkun við atvinnurekendur. — Félagið stofnar sérstakan sjóð til styrktar og menningarauka, fyrir félagsfólkið. — Eins og getið var í síðasta blaði, hóf stjórn Verklýðsfélagsins við- ræður, í síðustu viku, við atvinnu- rekendur um hækkun á grunnkaupi verkafólks hér á staðnum. Á Föstu- dagskvöldið var kallaði stjórnin saman félagsfund, þar sem málið var rætt og samþykkt eftirfarandi ályktun: »Fundur Verklýðsfélags Akureyr- ar haldinn 7. Ágúst 1942, telur sjálfsagt að kauptaxt* félagsins hækki til samræmis við þær kaup- hækkanir, sem orðið hafa víða á landinu, og felur stjórn félagsins að leita samkomulags við stjórn Vinnuveitendafélags Akureyrar um hækkun kaupfaxtans í samræmi við það,< Voru allir sammála um það að ekki yrði skemmra gengið í kröfum á hendur atvinnurekendum en fram er tekið í tillögunni. Verður að ætla að all-veruleg kauphækkun eigi sér stað, þegar gerðardómur- inn verður ekki lengur í vegi fyrir eðlilegum samningum milli atvinnu- rekenda og verklýðssamtakanna. En fundur Verklýðsfélagsins gerði meira en þetta- Samkvæmt tillögu stjórnarinnar var samþykkt að setja á stofn styrktar- og menningarsjóð fyrir fé- lagið. Og af þvf að skipulagsskrá sjóðsins lýsir best hlutverki því, sem honum er ætlað að ynna af höndum, er hún birt hér á eftir. 1. gr. Tilgangur sjóðsins er að veita þeim félagsmönnum styrk sem verða fyrir slysum þann líma, sem þeir fá ekki bætur úr Slysatryggingu ríkisins. Ennfremur að styrkja efni- lega unga menn, konur og karla, sem verið hafa í félaginu minnst 5 ár, til náms í einhverri þeirri náms- grein, sem veitir fræðslu um verk- lýðsmál, svo sem félagsfræði og fleira. 2. gr. Stofnfé sjóðsins er það fé sem var í sjúkrasjóði félagsins þegar starfsemi hans hæíti, kr. 2,200.oo ásamt eftirstöðvum af hagnaði af síldarsöltun félagsins, kr. 1300.OO, eða samtals kr. 3 500.OO. 3. gr. Árlegar tekjur sjóðsins eru vextir af innstæðu hans, svo og annað fé, sem sjóðnum kann að áskotn- ast. og félagið ákveður að renna skuli til sjóðsins, svo sem ágóði af samkomum félagsins og fleira. 4. gr. Allt að helmingi af árlegum tekj- um sjóðsins má verja samkvæmt 1. gr. en hinn helmingur teknanna leggst við höfuðstól sjóðsins. Pau ár sem tekjum sjóðsins er ekki varið samkvæmt 1. gr. Ieggjast þær óskertar við höfuðstól hans. . 5- gr. Um leið og reglur þessar eru samþykktar af félaginu, kýs félagið 3. manna nefnd, sem nefnist Styrkt- arsjóðsnefnd, sem dæmir um hæfni félagsmanna til þess að njóta styrks úr sjóðnum, og það hvor eða hver skuli njóta styrks úr sjóðnum, ef fleiri en einn sækja um styrk í einu, Til nefndarinnar skal senda styrk- beiðnir. Veita má sama manni styrk í fleiri en eitt skifti, Kosning nefndarinnar gildir tif næsta aðalfundar félagsins, og ber þá að kjósa hana að nýju, eftir sömu reglum og gilda um kosn- »'ngu stjórnar og annara starfsmannæ félagsins. Reglur þessar þannig samþykkt- ar á fundi félagsins 7. Ágúst 1942, Pegar búið var að samþykkja sjóðstofnunina og framanskráða skipulagsskrá var ákveðið að veita einum elsta meðlim félagsins, sem varð fyrir slysi sl. vetur, 100 kr. og starfserni sjóðsins hafin með því. Funduiinn var fjölsóttur, og ríktf þar einhuga áhugi fyrir þeim mál- um, sem til meðferðar voru. Var á engan hátt hægt að sjá á honum þann deyfðar- og sundrungarsvip, sem Steingrímur Aðalsteinsson hef-- ir verið að ræða um undanfarið, enda hefir Steingr. ekki tilkynnt þangað komu sína enn. Formannafélag Akureyrar var stofnað hér í bænum sl. Laug- aidag. Stofnendur voru formenre hjá erlenda setuliðinu. í stjórn voru kosnir: Sigurður Guðlaugsson, form. Gunnar Boga- son, ritari. Davíó Áskelsson. gjald- keri. Félagið setti kauptaxta og er hann 75 aurum hærri á kl.st. ere kaup almennra verkamanna — á hverjum tíma. Félagið hefir tilkynnt setuliðinu þetta. »Súðin< strandaði við Blönduós nú fyrir helgina, en náðist fljótt út aftur, lítið eða ekkert skemmd aó- því er virðist. Að minnsta kosti heldur hún áfram feröum sínum^ eins og ekkert hafi í skorist.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.