Alþýðumaðurinn - 11.08.1942, Blaðsíða 3
ALPYÐDMAÐURINW
á
Hræðslan við kauphækkun
Þökkum auðsýnda samúð við minningarathöfn /óhanns
Kristjánssonar frá Sigríðarstöðum.
Vandamenn.
Frð Alþingi.
Eins og til stóð, var Alþingi sett
4. þ. m.
Ekki var liðið nema nokkuð á
annan þingdaginn, þegar kommún-
istar sviku samstarfið um kjördæma-
málið og ætluðu að tefla því í
tvísýnu, Eins og vitað er, er
Framsókn stærsti flokkur þingsins,
og gat, ef engin samvinna var með
hinum flokkunum um forsetakjör
og nefndakosningar, náð öllum for-
setum og meiri hluta í nefndunum,
en það hefði þýtt, meðal annars,
að kjördæmam^lið gat verið úr
sögunni á þessu þingi, þar sem
forsetar deildanna ráða því hvenær
mál eru tekin á dagsskrá. Þegar
til forsetakjörs kom, neituðu komm-
únistar að eiga samvinnu um það
við nokkurn flokk, og ætluðu að
kæra sig kollótta þótt kjördæma-
málið næði þá ekki fram að ganga.
Varð Alþýðuflokkurinn að kjósa
með Sjálfstæðinu til að bjarga mál-
inu. Skipa því menn úr þessum
flnkkum forsetasæti þingsins og
meiri hluta f nefndum, og helst sú
samvinna þar til kjördæmabreyting-
in hefir verið samþykkt og gerðar-
dómurinn lagður niður, en því
máli ætluðú kommúnistar líka að
tefla í hættu, og hafa þeir þó
ekki látið svo iágt um vilja sinn í
því- Er allt þetta ákaflega líkt
kommúnhtum og sýnir heilindi
þeirra í mjög skýru Ijósi.
Störf þingsins eru komin lítið á
veg. Þessa dagana berjast Fram-
sóknarmenn sinni góðu baráttu
fyrir að gerðardómurinn fái að lifa,
þó hann sé nú orðið ekki hafður
að neinu. Stjórnskipunarmálið er
ekkert á veg komið. Alþýðuflokks-
menn og kommúnistar bera fram
sitt lagafrumvarpið hver um hækk-
un á launum embættismanna. Al-
þýðuflokkurinn ^ber fram frumvarp
um orlof (sumarfri) vetkamanna og
sjómanna. Einnig frumvarp um
kjarabætur verkafólks og samvinnu
hins opinbera við verklýðssamtökin
um það að tryggja atvinnuvegum
landsmanna nægilegt vinnuafl. Þá
eru komnar fram margar þingsálykt-
unartiliögur, og lítur út fyrir að
störf þingsins muni ekki klárast á
eins stuttum tíma og í fyrstu var
fyrirhugað-
Framh. af 1. síðu-
hér á Akureyri fer nú fram á, er
mjög stillf í hóf. Það er langt frá
að hún vegi upp á móti þeim
vexti dýrtfðarinnar, sem orðin er,
hvað þá að hún geti tekið á sig
væntanlegar byrðar. Og einkis
annars hefði fólkið frekar óskað
eftir, en að hægt hefði verið að
halda dýrtíðinni svo í skefjum, að
hækkun kaups hefði ekki verið
nauðsynleg. En dagleg reynsla
sýnir hvernig það hefir gengið.
Nýlega era látin hér í bænum
Albína Helgadóttir, Aöalstræti 34,
öldruð kona. og. Baldvin SigurÖKSon
verkamaður, til heimilis aö Naust-
um. —
J TAKIÐ EFTIR! j
f Skóverksmiðjan ,,KRAFTUR“ f
J er tlutt í Hafnarstræti 85 (áður skóverk- J
5 smiðja J. S. Kvaran). |
f Smíðar nú kven-götuskó og skó með f
f Kínahæl. Enntremur inniskó úr tlóka, |
f skinni og striga, barnaskó og herraskó. J
f Nokkur skópör til sölu með tækifær- f
f isverði. , f'
f Pálmi Ó/afsson. f
£ f
■.............................
Tilkynning frá rikisstjórninni.
Brezka flotastjórnin hefir tilkynnt ríkisstjórninni, að þegar
íslenzk skip eða hafnarmannvirki verða fyrir skemmdum
af völdum brezkra herskipa, þá sé nauðsynlegt vegna
væntanlegra skaðabóta, að tilkynning um tjónið sé tafar-
laust send næsta hernaðaryfirvaldi og að fulltrúa herstjórn-
arinnar verði veitt tækifæri til að athuga tjónið.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið 5. ágúst 1942.