Alþýðumaðurinn - 20.02.1945, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUMAÐURiNN
Jarðarför dóttur minnar, Þórunnar Þórarinsdóttur, sem lést að
heimili sínu, Brekkugötu 5, Akureyri, þann 15. þ. m., fer fram frá
Akureyrarkirkju Laugardaginn 24. Febr. n. k., kl. 1 e. h.
Hólmfríður Jónsdóttir.
Innilega þökkum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og
hluttekningu við fráfall og jarðarför Benedikts Benediktssonar,
kaupmanns.
Margrét Sveinsdóttir.. Snorri Benediktsson. Asta Björnsdóttir.
Jarðarför konunnar minnar Guðrúnar Jónasdóttur, sem andað-
ist 10. þ. m. fer fram frá heimili hennar Aðalstræti 10, Akureyri,
Fimtudaginn 22. þ. m., kl. 1 e. h.
Fyrir mína hönd og barna okkar
Þorvaldur Jónasson
norðlenskri verklýðshreyfingu
stafa meiri hætta og smán af hon-
um en Steingrími Aðalsteinssyni.
Meðan Steingr. hafði aðstöðu
til að hafa áhrif á gang verklýðs-
mála hér nyrðra — og það voru
ekki mörg ár — drap hann undir
sér Verkamannafélag Akureyrar
og V. S. N. með öllum þeim fé-
lögum sem í því voru. Hann mun
enga hjálp þurfa til að drepa
Verkamannafél. Akurýyrarkaup-
staðar, ef hann fær að ráða þar
nokkru til lengdar.
Hlutur Framsóknar gat varla
orðið rýrari í áður umtöluðum
viðskiftum en hann nú er. Þeim
Framsóknarmönnum var sagt það,
þegar þeir slitu samvinnunni við
Alþýðuflokksmennina í Verklýðs-
félaginu, að það. væri verið að
ginna þá, og þeim væri ekki annar
hlutur ætlaður en að vera verk-
færi í höndum kommúnista til að
ná völdum í verkamannasamtök-
unum hér. Þeir stóðust ekki vanga-
veltur og hræsnismál Jóns Rafns-
sonar og hafa nú orðið að þreifa
á þeirri staðreynd að hafa verið
notaðir sem stökkbretti mótstöðu-
manna þeirra í verklýðsmálum til
að ná • þeim áfanga, sem áætlun
kommúnista hljóðaði upp á þegar
þeir sameiningar-Jónarnir voru
sendir hingað í liðsbón. Vinsældir
Marteins Sigurðssonar noluðu þeir
sér til að viða að sér liði til að
byrja með, ginna hann og aðra
Framsóknarmenn til að taka upp
konnnúnistisk vinnubrögð eins og
atvinnukúgun á hendur þeim, sem
ekki beygðu sig í hlýðni þegar í
stað. Kommúnistar stóðu álengdar
sem áhorfendur þegar M. S. var
að rölta á milli vinnustöðvanna og
krefjast þess af atvinnurekendum
að þeir rækju þá menn úr vinnu,
sem ekki væru í V. A. Sumir
keyptu sér vinnufrið með því að
ganga í V. A., með fulla andúð á
starfi Marteins. Aðrir gengu í
önnur verklýðsfélög í bænum og
eru nú óvirkir félagar í verklýðs-
hreyfingunni. Þannig unnu komm-
únistar að eyðileggingu þess at-
kvæðaafls, sem verkamenn ráða
yfir og tálguðu samtímis fylgið
utan af M. S. sem foringja and-
stöðunnar gegn kommúnistum í
félaginu.
Þannig hafa þeir kommúnistar
reynst þéim Framsóknarmö'nnum
sem samstarfsmenn og máttarstoð-
ir „einingarinnar“, sem þeim
verður svo tíðrætt um, og ættu þeir
síðartöldu að vera hyggnari eftir
en áður.
Spárnar um að þessi yrði
reynsla þeirra rættust fyr. en nokk-
urn grunaði, en orsakirnar til
þessa verða betur ræddar í næsta
blaði í saml)andi við átökin svðra.
Gistihús KEA
fullgert
S. 1. Þriðjudagskvöld hauð
stjórn Kaupfélags Eyfirðinga for-
ráðamönnum bæjarins, blaða-
mönnum o. fl. að skoða Hótel
K. E. A., en innanhússmíði þess
er nú lokið og útbúnaði, nenia
hvað eftir er að leggja teppi á
stiga og ganga. Fyrst sýndi fram-
kvæmdastjór KEA gestunum íbúð-
arhebergi gistihússins. Eru þau
öll með nýtísku sniði og þægind-
um og hin vistlegustu. Er skoðun
herbergjanna var lokið var gengið
í veislusalinn. Er hann sérstak-
lega fagur og haganlega gerður
þegar tekið er tillit til þess Iive
takmörkuðu rúmi er þar yfir að
ráða. Er hann þrískiftur. Tveir
veitingasalir með danssal á milli.
Er hann fagurlega skreyttur með
málverkum og ljósum. Fer ekki
hjá því að bæjarbúar kjósi hann
fyrir samkomuslað við hátíðahöld
sín.
Þá voru framreiddar rausnar-
legar veitingar og Jakob Frí-
mannsson, framkvæmdastjóri K.
E. A. sagði sögu húsbyggingarinn-
ar. Einnig töluðu þarna Steinn
Steinsen bæjarstjóri, Ingimar Ey-
dal stjórnarmeðlimur, Sig. Guð-
mundsson skólameistari og Einar
Árnason stjórnarformaður KEA.
Allt var þetta, móttökurnar,
veitingarnar og sýning hússins
með sérstökum myndarbrag og al-
úð. Var þessi kvöldstund hin á-
nægjulegasta að öllu leyti og eiga
bæjarbúar og aðrir, þeir, sem
gisla hótelið eftir að eiga þar
marga ánægustund og vellíðunar.
Hótelstjóri er Jónas Lárusson.
Er hann vakinn og sofinn í starfi
sínu og hinn ahiðlegasli heim að
sækja.