Alþýðumaðurinn - 24.07.1945, Side 1
|Uj>t(}kma<!lurum
XV. árg. Þriðjudaginn 24. Júlí 1945 30. tbl.
Svarfdælski risinn og
galdramaðurinn
Á Miðvikudaginn kemur, ann
að kvöld, sýna þeir Jóhann Pét-
ursson, svarfdælski risinn, og
Valur Norðdahl, galdramaður-
inn, listir sínar í Samkomuhús-
inu hér í hæ. Verður þar margt
stórmerkilegt að sjá, sem gera
mun alla áhorfendur algjörlega
agndofa. Undanfarið hafa þeir
félagar sýnt listir sínar í Rvík,
við húsfylli kvöld eftir kvöld,
og mikla hrifningu áhorfenda.
í frétt írá Reykjavík um skenunt
un þeirra segir: „Valur sýndi
þarna hina íurðulegustu galdra
svo að menu urðu algerlega agn-
dofa. Auk þess sagði hann hell-
ing af bröndurum, sem vöktu
mikla „stemningu“ meðal áhorf-
enda. Jóhann risi þurfti ekki
mikið fyrir því að hafa að vekja
hrifningu. Hann iabbaði hara
fram á leiksviðið í ýmsum bún-
ingum. Anuað þurfti hann ekki
að gera til ])ess að lófaklappið
dyndi. En til frekari bragðbæt-
is, hafði liann í frammi nokkur
' töfrabrögð,“
Alþýðumaðurinn vill hvetja
alla hæjarbúa til þess að sjá þá
félagana, Jóhann Pétursson, sem
nú er talinn stærsti maður lieims
ins, og Val Norðdahl, er talinn
er einhver slyngasti „galdra-
maður“ í Evrópu.
DANSSÝNING
ungfrú Sifjar Þórz á Miðviku-
daginn var, var ágætlega sótt
og forkunnar vel tekið af áhorf-
endum. Var hún marg-klöppuð
fram á eftir hvferjum dansi og
færður blómvöndur. Hr. Jóhann
Tryggvason lék á flygel fyrir
dönsunum af mikilli smekkvísi.
Einnig lék hann milli dansanna
við óblandna ánægju áheyrenda.
—o—
Sextugur
varð í gær Konráð Vilhjálms-
son, skáld frá Hafralæk.
ÁttrœS
verður frú Anína Arinbjarnar-
dóttir, Lundargötu 8, Fimmtu-
daginn 26. þ. m.
í fyrrinótt andaðist að heim-
ili sínu hér í bænum frú Björg
Guðnadóttir, kona Friðriks Sig-
urðssonar, bóksölumanns.
ÝMSAR ERLEND-
AR FRÉTTIR
Það hefir valdið töluverðu
umtali og nokkurri tortryggni í
garð Rússa, að þeir hafa enn
sem komið er neitað handa-
mönnum sínum um að fréttarit-
arar hreskra og amerískra hlaða
mætlu ferðast urn þau lönd, sem
Rússar hafa hernumið, kynna
sér ástandið þar og senda hlöð-
urn sínum fréttir. Þykir þetta
henda til að Rússar vilji ekki
láta kunngera heiminum hvern-
ig „frelsun“ þeirra meðal hlut-
aðeigandi þjóða er háttað, og
mjög óviðeigandi, þar sem Rúss-
ar hafa leyfi til að fylgjast með
ástandinu í þeim löndum, sem
Bretar og Bandaríkjamenn hafa
hernumið og ráða enn yfir.
★
Undanfarið hefir verið um
það rætt í Noregi, að Alþýðu-
flokku rinn og Kommiinista-
flokku rinn sameinuðust í einn
verklýðsflokk. Var fyrst eftir
uppgjöf Þjóðverja í Noregi svo
að sjá, sem sameiginleg barátta
flokkanna hernámsárin liefði
nálgað þá svo hvern ann-
an, að þetta gæti geng-
ið. —Sérstaklega virtust
kommúnistar í öðrum löndum
vera bjartsýnir á þessa liluti.
Nú hefir allt þetta farið rit unr
þúfur. Þegar á átti að lierða
virðist konunúnistana hafa hrost
ið mannlund til að ganga heilir
að því starfi sem bíður alþýð-
unnar í Noregi, eða þá að hús-
bændurnir í Moskva liafa sett
sig upp iá móti því að komm-
arnir sýndu þá þjóðhollustu, er
sameiningin hlaut að krefjast af
þeim.
★
Fréttaritarar hreska hlaðsins
„Observer“ flytur þá fregn eftir
fréttaritara sínum á hernáms-
svæði vesturveldanna í Þýska-
landi, að rússneskir og pólskir
hermenn, sem þar dvelja í þýsk-
um fangabúðum vilji helst ekki
hverfa heim aftur fyrst um siun.
Segir hann að rússnesku her-
mennirnir kvíði því að verða
sendir til Síberíu í hegningar-
skyni fyrir að hafa látið taka
sig til fanga. Og pólsku hermenn
irnir vilja ekki fara heirn til
Póllands meðan Rússar eru í
landinu.
Fréttir frá Danmörku herma
að „Frelsishreyfingin“ svo-
nefnda verði leyst upp nú um
mánaðamótin, og reglulegur her
og lögregla verði látin taka við
þeim störfum, sem „frelsisvin-
irnir,“ eins og kommúnistar titla
þá, hafa haft með höndum.
★
Vinnuhjú Rússa í Finnlanjli
undirhúa nú „hreinsun“ þar í
landi, að rússneskum sið. Þef-
dýr þeirra þykjast hafa feng-
ið sakir á hendur 50 finnskum
hershöfðingjum fyrir að hafa
meiri vopnahirgðir í fórum sín-
um en leyfilegt sé.
★
r
Ymsar raddir eru nú uppi
um það, að Japanar muni gefast
upp á næstunni. Orðrómui var
á kreiki fyrir nokkrum dögum
um að Stalin væri með vopna-
ldésbeiðni frá Japanskeisara
upp á vasann, þegar hann kæmi
á fundinn í Berlín. Þetta hefir
ekki reynst satt. Undrun vekur
það hve lítið hefir verið um
varnir af hendi Japana í stórá-
rásum Bandamanna á heima-
land þeirra undanfarna daga.
En japönsk hernaðaryfirvöld
skýra þetta með því, að varalið,
flugher og floti sé geymt til úr-
slitaátakanna. En eru ekki úr-
slitaátökin þegar hafin?
Héðan
og
þaðan
Slysavarnasveit Flateyjar á
Skjálfanda hefir tekið Þöngla-
hakka í Fjörðum á leigu og út-
húið í bæjarhúsunum skýli fyr-
ir sjóhrakta menn, í líkingu við
skiphrötsmannaskýlin á suður-
strönd landsins. Þönglabakki
hefir verið í eyði undanfarið og
er enn. Hendir það oft að sjó-
menn leita þarna lands ])egar
vont sjóveður er.
Talið er að undanfa rin ár hafi
lögreglunni í Reykjavík horist
um 2000 kærur og umkvartanir
útsaf ólöglegum og ógætilegum
akstri bifreiða í Reykjavík og
nágrenni. 463 umferðaslys áttu
sér stað og 11 dauðsföll orsök-
uðust af sömu völdum. Mjög oft
var ölvun við akstur orsök slys-
anna, þá of hraður akstur og
ógætni vegfarenda.
Jón Krabbe, sendifulltrúi ís-
lands í Kaupmannahöfn, hefir
heðist lausnar frá störfum. -—
Hann er nú 72 ára gamall og
orðinn heilsuveill. Hann gegnir
þó störfum þar til ísland hefir
skipað nýjan sendiherra í Kaup-
mannahöfn.
Nýstofnað er félag freðfisks-
matmanna. Er meiningin með
þessari félagsstofnun aðallega
sú, að matsmennirnir hafi sam-
vinnu um allt það, sem lýtur að
framför í verkun og meðferð
þessa fiskjar. Formaður félags-
ins er iíaukur P. Ólafsson frysti-
hússtjóri hjá Kaupfélagi Eyfirð-
inga.
Erfiðlega gengur með síld-
veiðina. S. 1. vikur var aflinn
mjög lítill og síðustu daga hefir
varla orðið síldai' vart. Engin
ástæða er þó til að örvænta um
vertíðina. Oft hefir það hent, að
síldarafli hefir ekki byrjað fyrr
en í Ágúst-byrjun.
„Burt með áfengið.44
Niðurlag.
Aðálfundur íþróttasambands
Islands (7. S. 1.) lialdinn hér á
Akureyri nú í vor, samþykkti
eftirfarandi ályktanir í áfengis-
málunum:
Arsþing ÍSÍ lýsir ánægju
sinni yfir því samstarfi, sem
verið hefir milli Bindindisnefnd
ar ÍSÍ og Stórstúku íslauds.
Ársþing ÍSÍ skorar á öll sam-
handsfélög, að þau sæki ekki
um vínveitingaleyfi á skemmt-
anir sínar.
Ársþing ÍSÍ skorar á ríkis-
stjórnina, að láta héraðabönn
koma til framkvæmda þegar í
stað.
Ársþing ISÍ skorar á Alþingi
og ríkisstjórn að láta loka Á-
fengisverslun ríkisins.
ÍSÍ er fulltrúi fyrir fjölmenn-
an hóp æskumanna. Forráða-
menn þess félagsskapar vita vel
hvílíkur höfuðóvinur áfengið er
í baráttunni fyrir því að skapa
heilhrigða sál í hraustum lík-
ama.
Með áframhaldandi, hvað þá
vaxandi, nautn áfengra drykkja
Framh. á 6. síðu.