Alþýðumaðurinn - 24.07.1945, Blaðsíða 6
ALÞYÐUMAÐURINN
Þriðjudaginn 24. Júlí 1945
Jóhann Svarfdælingur og Vaiur Norðdahl
haida
KVÖLDSKEMMTUN
í Samkomuhúsinu á Miðvikudags- og Fimtu-
dagskvöfdið, kl. 9 e. h.
Sýndir verða hinir furðulegustu galdrar og töfrabrögð.
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzl. Eddu.
TILK YNNING
um framlengingu gjalcleyris- og innflutn-
ingsleyfa.
Viðskiptaráðið vekur athygli á því, að innflutnings- og
gjaldeyrisleyfi, sem gefin hafa verið út fyrir s. 1. áramót,
en eru nú fallin úr gildi eða falla úr gildi á þessu ári,
verða ekki framlengd nema lögð séu fram skilríki fyrir
því, að búið sé að greiða vöruna, eða aðra álika hindandi
ráðstafanir til vörukaupa liafi verið gerðar áðúr en leyfið
féll úr gildi.
Beiðnir um framlengingu slíkra leyfa verða að vera skrif-
legar og fylgi þeim sönuunargögn um, hvenær varan sé
pönluð, hvenær hún hafi verið eða verði afgreidd frá
seljanda og hvort útílutningsleyfi sé fyrir hendi.
16. júlí 1945
VIÐSKIPTARÁÐID.
En lieima ræktaða ávexli jarð
ALÞÝÐUMAÐURINN
Utgefandi:
Alþýðuflokksfélag Akureyrar
Abyrgðarmaður:
Erlingur Friðjónsson
Blaðið kemur út á liverjum Þriðjudegi
Afgreiðslumaður:
1 Jón Hinriksson, Eiðsvallagötu 9
Argangurinn kostar kr. 10.00
] Lausasöluverð 30 aurar
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.j.
TIL MINNIS
Opinberar skrifstofur opnar:
Bæjarfógetaskrifstofan 10—12 og 1—3
Skrifstofur bæjarins 10—12 og 1—5
— byggingafulltrúa 11—12
! --- framfærslufulltrúa 4%—5 %
— jarðræktarráðunauts 1—2
Skömnrtunarskrifstofan 10—12
Vinnumiðlunarskrifstofan 2—5.
Póststofan:
Bréfastofan 10—6
Bögglastofan 10—12 og 1—5
Bankarnir opnir:
Landsbankinn 10%—12 og 1%—3
Búnaðarbankinn 10%—12 og 1%—3
Útvegsbankinn 10%—12 og 1—4.
Viðtalstími lœkna:
Héraðslæknirinn 10%—11%
Sjúkrasamlag'slæknirinn 11—12
Árni Guðmundsson 2—4
Jón Geirsson 11—12 og 1—3
Pétur Jónsson 11—12 og 5—6
Stefán Guðnason 12%—2 og 5—6
llelgi Skúlason, augnl. 10—12 og 6—7
Friðjón Jensson tannl. 10—12, 1—3 og 4-6
Gunnar Hallgrímss. tannl. 10-12 og l%-4
Berklavarnastöðin 2-4 á Þriðju- og Föstud.
Sjúkrasamlagið 10—12 og 3—6.
Kaupgjald og vísitala:
Almennt kaup karla .... kr. 6,88 á klst.
Almennt kaup kvenna .. kr. 4,26 á klst.
Kaup ungl. 14—16 ara .. kr. 4.54 á klst.
Vísitala framfærslukostnaðar 275 stig.
Alþýðublaðið
kostar 5 krónur á mánuði fyrir áskrif-
endur. Hvert sérstakt blað 40 aura. Af-
greiðslan í Lundargötu 5. Er selt á Ráð-
bústorgi eftir komu liraðferðanna á kvöld-
in. Er einnig selt í Bókaversl. Gunnl. Tr.
Jónssonar, Versl. Baldurshagi og Kaupfél.
Verkamanna, nýlenduvörudeild.
Alþýðumaðurinn
er seldur í lausasölu í Versl. Baldurs-
hagi og í Kaupfél. Verkamanna. — Af-
greiðslan er í Eiðsvallagötu 9.
Árróði
blað ungra jafnaðarmanna, er blað, sem
allt ungt fólk þarf að kaupa og lesa.
Ræðir áhugamál unga fólksins á prúðan
og fræðilegan hátt, en af fullri einurð óg
hreinskilni.
Blaðið keur út mánaðarlega að vetrin-
um. Árroði fæst á afgr. Alþýðublaðsins
hér, Lundargötu 5.
Skutull,
blað Alþýðuflokksins á Vestfjörðum,
fæst keypt á afgreiðslu Alþýðublaðsins
hér í bænum. — Skutull er vel ritað blað
og fjölbreytt að efni. Hver sá, sem fylgj-
ast vill með landsmálum, verður að iesa
Skutul. Vestfirðingar liafa lengi staðið
framarlega í baráttu þjóðarinnar fyrir
auknu frelsi, umbótum í atvinnumálum
hennar og heilbrigði í félagsmálum. —
„Skutull“ er rödd Vestfirðinga á þessum
yettvangi.
„BURT MEÐ ÁFENGIГ
Framh. af 1. síðu. .
er vonlítið verk að starfa að
jafn manngöfgandi málum og
heilhrigð íþróttaþjálfun er, og
þótt samtök íþróttafólks brýni
fyrir félögum sínum bindindis-
semi, vill ætíð nokkuð á skorta
að fullur árangur náist á því
sviði. Því vilja framherjar í-
þróttamálanna fá áfengið burt
frá fólkinu. Það eitt tryggir góð
an árangur af þjálfun líkama og
sálar.
Það hlýtur að vekja eftirtekt
að nýlega afstaðin prestastefna
fyrir allt landið virðist ekki
liafa séð ástæðu til að gera á-
lyktanir í áfengismálunum. —
Ekki heldur þing þeirra' stór-
huga kvenréttindakvenna, sem
heimta konur á Alþing að meiri
hluta, og í ríkisstjórn. Þessum
tveimur aðilum ætti þó að vera
það ljóst, að hvorki næst sæmi-
legur árangur í trúmálum, eða
mannbótamálum, sem konurnar
þykjast berjast fyrir, ef þjóðin
er drekkandi, sukkgjörn, and-
varalaus og eyðslusöm. Þessi
þing hinna göfuga aðila hefðu
því vel mátt láta sig áfengismál-
in einhverju skifta.
Það er ekki ofsagt og aldrei
of oft sagt, að ástandið í áfeng-
ismálunum er þannig, að þjóð-
arskömm er að. Gelur ekki hjá
því farið að erlendar þjóðir
hljóti að standa forviða er þær
kynnast þessu eins og það er,
þegar samgöngur liefjast við
landið nú á næstunni. Og aldrei
myndi fróman almenning hafa
dreymt um að svo samvisku-
laust væri hægt að reka ómenn-
ingarstarf það, sem við áfengis-
söluna er tengt og raun ber vitni
Menn minnast þess máske, að
uppi voru raddir um það síðast-
liðinn vetur, að ekki yrði hægt
að byrgja landið að nauðsynja-
vörum, bæði vegna tregðu á að
fá vörurnar erlendis og vegna
skipaskorts. En einmitt meðan
þessar raddir voru sem hávær-
astar var sagt að áfengisverslun
ríkisins hafi fengið, með þrem-
ur skipum á þremur vikum,
sex hundruð þúsund
flöskur af áfengi — og þessu
líkt og máske verra mun fram-
ferðið vera aðra tíma ársins.
Nú standa yfir anna- og fanga
tímar þjóðarinnar. Hið vinn-
andi fólk dregur ekki af sér. I
sveit og á sjó er vakað og starf-
að. Safnað föngum til vetrar, og
til sölu á erlendum mörkuðum.
Hvað er það annað en glæpur
að nota ávöxtinn af erfiði þjóð-
arinnar til kaupa á heilsuspill-
andi nautnavörum og seljahenni
svo aftur með því okurverði að
þvílíkt hefir aldrei þekkst hjá
mestu okurkörlum sem sögur
fara af.
arinnar og berin í haganum get-
ur þjóðin ekki nýtt, vegna dug-
leysis og þrjósku þeirra, sem
eiga að sjá um öflun erlendra
naúðsynjavara, sem gera það ó-
kleyft að búa að sínu á heil-
brigðan og heiðarlegan hátt, og
eins og siðaðri þjóð sænúr.
Úrslit
kosninganna í Bretlandi verða
kunngerð á Fimludagiim kem-
ur. Fer það ekki dult, að þeirra
er beðið með mikilli eftirvænt-
ingu og ýmsu spáð um leikslok-
in. Þeir, sem mestir þykjast spá-
menn, telja að Ihaldsflokkurinn
muni ganga með sigur af hólmi,
en þó við svo lítinn meirihluta
að vinstri flokkarnir hljóti að
verða allmiklu ráðandi í vænt-
anlegri stjórn, og all veruleg
stefnubreyting í vinstri átt rnuni
eiga sér stað.
Sigurður Magnússon,
fyrrúm yfirlæknir á Vífils-
stöðum, andaðist i Reykjavík sl.
Föstudag 76 ára að aldri.
Nefnd manna er bráðlega á
förum til Danmerkur til að
semja við dönsk stjórnarvöld
um rétt Dana hér á landi og ís-
lendinga í Danmörku. Þá er og
búist við að ýmislegt fleira beri
á góma, því um margt þurfa
hinar fyrverandi sambandsþjóð-
ir að semja áður en öll hin fyr-
verandi sameiginleg mál, og ým
islegt í sambandi við þau, eru
kláruð, svo báðir aðilar uni vel
við.
Stígandi,
2. hefti, 3. árg., er nýkomið
út. Efni ritsins er:
Morgunblær (kvæði) Sigur-
jón Friðjónsson. „Hugr einn
það veit“, Jakob Kristinsson. —
Indriði Einarsson, Brynleifur
Tobíasson. Ólafur í Kálfagerði,
Kristín Sigfúsdóttir. Brynjan
(kvæði), Sigurður á Arnarvatni
Myndir, Orlygur Sigurðsson.
Búendatal Sands í Aðaklal, I.
Þorkelsson. Kannske breytt
(kvæði), Grímur Sigurðsson.
Veðmálið, Sig. Róbertsson. Þitt
skóhljóð hverfur (kvæði), Sv.
Áskelsson. Æskuminningar, Sig
urjón Friðjónsson. Molar um
málið, Björn Sigfússon. Fyrstu
göngurnar mínar, Þormóður
Sveinsson. Vegir örlaganna. 0’
Henry. Um bækur, Bragi Sigur-
jónsson.
Margt er þarna læsilegt eins
og fyr í Stíganda og þess vert að
lesið\ sé með athygli.