Alþýðumaðurinn - 02.10.1945, Page 1
Hlþíjíiumcul urimx
XV. árg._ Þriðjudaginn 2. Október 1945 39. tbl.
Lítil bót í máli.
Á Laugardaginn var gaf Land
búnaðarráðuneytið út svohljóð-
andi bráðabirgðalög:
„1. gr. Við útreikning vísi-
tölunnar 1. Október 1945, og
þar á eftir, skal aðeins reiknað
með því verði á nýju og söltuðu
dilkakjöti, hangikjöti og vinnslu-
vörum úr kjöti, sem talið var í
vísitölunni 1. Sept. 1945.
2. gr. Mismun á útsöluverði
og vísitöluverði kjöts þess, er
um getur í 1. gr., eiga menn, að
undanteknum þeim er í 3. gr.
segir, kost á að fá endurgreitt
ársfjórðungslega úr ríkissjóði
frá 20. Sept. 1945. Engum verð-
ur þó greidd niðurgreiðsla á
meira magni en 40 kg. á ári fyr-
ir hann sjálfan og hvern mann,
sem hann hefir á framfæri sínu.
3. gr. Rétt til niðurgreiðslu
samkvæmt 2. gr. hafa þó ekki:
1. Þeir, sem hafa sauðfjár-
rækt að atvinnu að meira eða
minna leyti.
2. Atvinnurekendur, sem hafa
3 menn eða fleiri í þjónustu
sinni.
3. Þeir, sem fá laun sín greidd
að nokkru leyti með fæði.
4. gr. Skattanefndir eða skatt-
stjóri í hverju umdæmi semji
skrá um alla þá, sem hafa rétt
til niðurgreiðslu, og skal skráin
miðuð við síðustu skattaskrá á
hverjum tíma. Synjun um upp-
töku á skrá má áfrýja til yfir-
skattanefndar, sem kveður upp
endanlegan úrskurð þar um.
5. gr. Ákveða má með reglu-
gerð um alla framkvæmd laga
þesara, þar á meðal um fyrir-
komulag niðurgreiðslna, ákvæði
er miða til tryggingar því, að
þeir, er fái niðurgreiðslur, hafi
notað tilsvarandi kjötmagn, og
um fyrning á niðurgreiðslu-
kröfu.
6. gr. Brot á lögum þessum,
reglugerðum eða öðrum fyrir-
mælum, sem sett kunna að verða
samkvæmt þeim, varða sektum
allt að 10 000 krónum, nema
þyngri refsing liggi við sam-
kvæmt öðrum lögum, og skal
farið með mál út af þeim að
hætti opinberra mála.
7. gr. Lög þessi öðlast þegar
gildi.“
Þá gaf ráðuneytið sama dag
út bráðabirgðalög um lækkun á
neytslumjólk svohljóðandi:
„1. gr. Aftan við 1. tölulið 6.
gr. laganna bætist ný málsgrein,
svohljóðandi:
Verðlag á mjólk má ákveða
mismunandi eftir því, hvort hún
er seld beint frá mjólkurbúum
eða beint fi*á framleiðendum til
neytenda, enda verði þá verð-
munurinn greiddur úr ríkissjóði
2. gr. Lög þessi öðlast þegar
gildi.“
Eins og sést á báðum þessum
lögum er með þeim gerð tilraun
til að draga svo úr áhrifum af-
urðahækkunarinnar, sem Verð-
lagsnefnd landbúnaðarafurða á-
kvað um daginn, svo að vísitala
framfærslukostnaðar fari ekki
upp úr öllu veldi. En stautið
með niðurgreiðslu kjötverðsins
síðar mun mörgun þykja leiðin-
legt, og hætt við að ýmislegt geti
þar farið í handaskolurn.
Og auðvitað er þetta engin úr
lausn. Meðan ríkissjóður greið-
ir verð varanna niður er í raun
og veru engin bót fengin á dýr-
tíðarfárinu. Og það sem hér er
reynt að krafsa í bakkann er
sennilega gert til að firra Al-
þingi því að byrja þegar á dýr-
tíðarmálunum, sem annars
mundu taka upp allan tíma þess.
Bótin, sem almenningur í kaup-
stöðum mun aðallega verða var
við, er lækkunin á mjólkinni.
(Sjá augl. í blaðinu í dag), og
ákvæðin um að láta verðhækk-
unina á kjötinu ekki hafa áhrif
á vísitölu framfærslukostnaðar
forðar frá kauphækkun, sem
myndi hafa stöðvað ýmsar grein
ar atvinnureksturs í landinu.
Hvorutveggja þetta eru und-
anbrögð, en ekki lækning á aðal-
viðskipta sýkingunni.
Verkfall
hófst í gær á skipum Eimskipa-
félagsins og Skipaútgerðar rík-
isins. Voru samningar útrunnir
frá og með 1. þ. m. og samning-
ar höfðu ekki tekist í tæka tíð.
Engin skip lágu í Rvík í gær, og
er því verkíallið óvirkt ennþá,
en hefst jafnóðum og skipin
koma í hcimahöfn. Málið er í
höndum sáttasemjara ríkisins.
Bragð er að
„Dagur" lýsir óhrifum sam-
þykkta sex-manna nefndar-
innar frægu á atvinnulíf í
landinu, og svikum Fram-
sóknarflokksins við som-
komkomulagið 1939.
í hinni ýtarlegu grein Br. S.
í síðasta blaði er rétt og skýrt
sagt frá hvern þátt Framsóknar-
flokkurinn hefir átt í því að
auka dýrtíðina í landinu, en
Framsóknarfl.blöðin gera allt
sitt til að æsa þjóðina upp gegn
núverandi ríkisstjórn vegna
þeirrar dýrtíðar, sem Framsókn
er aðalhöfundur að. í grein Br.
S. segir svo:
„1. Apr. 1939 voru lögleiddar
nokkrar varúðarráðstafanir gegn
hækkuðu verðlagi. Þessar ráð-
stafanir voru þær fyrstu, sem
gerðar voru áf hálfu þess opin-
bera hérlendis gegn þeirri dýr-
tíð, sem farið var að örla á. —
Þessar ráðstafanir voru fólgnar
í eftirfarandi ákvæðum:
1. Hækkun landbúnaðaraf-
urða skyldi hlíta sömu reglum
og hælkkun kaiípgjalds verka-
manna, þ. e. þáverandi hlutföll
milli afurðaverðs og kaupgjalds
skyldu haldast óbreytt.
2. Hækkun húsaleigu var
bönnuð.
3. Bannað var að hækka út-
lánsvexti.
4. Verðlagseftirlit skerpt.
Þessar ráðstafanir gáfust yfir
leitt mjög vel, því að verðlágið
hækkaði á tímabilinu Ap.—Okt.
eða fram til ófriðarbyrjunar að-"’
eins um 3%, en síðan fer hækk-
unar að gæta af völdum stríðs-
ins, og 1. Jan. 1940 er fram-
færsluvísitalan komin upp í 112
stig.
En í Janúar það ár er gerð á
alþingi að tilhlutun Framsóknar
flokksins sú ákvörðun, sem ör-
lagaríkust og óheillasömust hef-
ir gerð verið um langt skeið hér
á landi: Verðlag landbúnaðar-
afurða er slitið úr tengslum við
kaupgjald verkafólks.
Um haustið sama ár rýkur
vísitala landbúnaðarafurða upp
í 163 stig (1. Des. 1940J, en þá
er kaupgjaldsvísitalan 127 stig.
Vert er að minnast þess, að und-
ir forustu Alþýðuflokksins hafði
verkalýðurinn lagt fram stór-
TrúnaBarrábsmanna-
Imdur Alþyðu-
tlakksins
stendur nú yfir í Reykjavík.
Er hann sóttur af mönnum úr
öllum landsfjórðungum.. —
Mun þingflokkurinn hafa ósk-
að eftir að ráðfœra sig við
trúnaðarmenn flokksins áður
en Alþingi tekur til starfa.
Fijótir nú
Mig vantar eldri menn eða
unglinga til að bera Alþýðu-
blaðið til kaupenda í bæn-
um. Lítil vinna. Vel borg-
uð. Taliu strax við mig!
HALLDÓR FRIÐJÓNSSON
merkt framlag til að halda niðri
dýrtíð af hálfu kaupgjalds, þ.e.
full dýrtíðarvísitala var ekki
tekin á grunnkaup. Þarna komu
nú þakkirnar, og ótrúlegt er, að
íslensk alþýða gleymi því strax,
að það er Framsóknarflokkur-
inn, sem í dýrtíðarmálunum
stígur fyrsta og versta óhappa-
sporið.“
Hér er ekki farið með stór-
yrðin, en sannleikurinn sagður
hreint og beint. Og áframhald af
þessu var sex-mannanefndar-
samkomulagið.
Síðasti „Dagur“ lýsir því,
hvernig svik Framsóknar 1940
hefir leikið þjóðina undanfarin
ár og hvernig ástandið er nú
orðið. Segist blaðinu svo frá,
meðal annars:
„Hætt er við því, að almenn-
ingi þyki þunginn af því glap-
ræði, að dýrtíðardraugnum var
sleppt lausum, er verst gegndi
nokkuð mikill og átakanlegur,
þegar sól stríðsgróðans og hinn-
ar ímynduðu hagsældar er að
fullu af lofti.“ '
„Því miður er ekki annað
sýnna en að verðbólgan muni
innan skamms sigla öllu atvinnu
lífi okkar íslendinga í strand
og koma fjárhag þjóðarinnar á
vonarvöl að nýafstöðnum mestu
uppgripaárum, sem um getur í
allri sögu okkar frá öndverðu.“
Já, þau hafa orðið þjóðinni
dýr, svik Framsóknar við sam-
komulagið 1939, og kapphlaup
Sjálfstæðisins — og síðar komm
únista við hana um ..bændafylg
ið.“