Alþýðumaðurinn - 20.07.1948, Síða 1
XVIII. árg.
Þriðjudagur 20. júlí 1948
25. tbl.
Ymsar blikur
á lofti,
E R L E N T.
Síðau Alþm. kom síðast út fyrir
réttum hálfum mánuði, hafa ýmis
athyglisverð tíðindi gerzt bæði á er-
lendum og innlendum vettvangi.
Verður hér aðeins á sumt drepið
lesendum hlaðsins til upprifjunár.
Er þá fyrst að telja, að fyrir rétt-
um hálfum mánuði hárust þau tíð-
indi um heiminn og vöktu feikna at-
hygli, að Kommúnistaflokki Júgó-
slavíu hefði verið vikið úr Komin-
forrn og Tító marskálkur, einræðis-
herra landsins, lýstur í hann.
Þetta er fyrsta verulega merki
þess, að ekki sé allt eins slétt og fellt
á kærleiksheimili kommúnistaríkj-
anna í austri og þau hafa viljað láta
vera. Albanir gripu strax tækifærið
til að losa sig við ofríki Júgóslava,
sem þeir töldu sig eiga við að húa.
en hins vegar virðast kommúnistar
í Júgóslavíu fylgja Titó fast, og eng-
ar ýfingar hafa orðið með honum
og nágrannajörlum Rússa. I Tékkó-
slóvakíu gerðust þau tíðindi, að
tékkneskir æskumenn hylltu Tító á
fjölmennu íþrótta- og æskulýðsmóti
í Prag. Virðast allskiptar skoðanir
á tiltæki Kominform meðaf komm-
únista, og fregnir eru uppi um það,
að hak við allt þetta standi átök
milli Molotov annars vegar, sem er
Títósvinur, og Shanov, aðalmanns
Kominforms, hins vegar, en þeir séu
hatursmenn og keppi um sæti Stal-
ins.
I Finnlandi fóru kosningar þann-
ig, að kommúnistar töpuðu veru-
lega. Misstu 15 þingsæti, þótt Rúss-
ar lofuðu Finnum lækkun skaðahóta
fyrir kosningarnar. Jafnaðarmenn
unnu mest á eftir. atkvæðum talið,
en Bændaflokkurinn vann fleiri
þingsæti. Samkvæmt seinni fréttum
hafa Rússar tekið aftur loforð sín
um lækkun stríðsbótanna. Einurð
Finna í þessum kosningum hefir
vakið mjög mikla athygli, og orðið
enn ný sönnun fyrir frelsishug óg
kjarki þessarar vösku þjóðar.
Framh. á 2. síðu.
Alagoing útsvara á
Akureyri 1948.
Um síðustu mánaðamót kom út
hér á Akureyri útsvarsskrá bæjarins
fyrir yfirstandandi ár. Oft hefir út-
koma útsvarsskrárinnar vakið mikla
forvitni og umtal hér —i hlandrð
furðu — en aldrei þó eins og í ár.
Mun það stafa talsvert af því, að út-
svör eru með hæsta nróti að krónu-
tölu, en þó fyrst og fremst af hinu.
að við endanlega ákvörðun útsvar-
anna urðu nokkur álök milli meiri-
lduta niðurjöfnunarnefndar annars
vegar og . fulltrúa Alþýðuflokksins í
nefndinni hins vegar. Hefir uintal
þetta gert almenningi ljósar en fyrr.
hve langt er frá, að niðurjöfnun út-
gvara sé unnin hér, svo að vel sé, og
hve geysimikið alþýða þessa hæjar
á í rauninni í húfi ár hvert, hver út-
svarsstiginn er og hvernig honum er
heitt.
ÞÁTTUR SKA TTSTOFUNNAR.
Sá kynlegi háttur hefir verið upp-
tekinn hér, þegjandi og hljóðalaust,
sem ekki mun þekkjast annars stað-
ar, að Skattstofan leggur í rauninni
öll útsvörin á. Hefir Skattstofan ein-
hverra hlula végna gengið hér út
fyrir verksvið sitt, og hefir meiri-
hluti niðurjöfnunarnefndar verið
svo metnaðarlaus í embætti sínu að
taka þessu sem sjálfsögðum hlut.
Hið eina starf niðurjöfnunarnefnd-
ar er nú orðið það að sannreyna á
fáeinum dagpörtum, hvort útreikn-
ingur Skattstofunnar er réttur, og
getur hvert mannsbarn sagt sér
sjálft, að slík sannreynd er engin
sannreynd á svo naumum tíma, hvað
þá að jafnað sé niður „eftir efnum
og ástæðum“ eins og útsvarslögin
ínæla fyrir. Sannast mála er líka, að
sannreynd útreiknings úlsvaranna er
þýðingarlítil, því að ugglaust hefir
Skattstofan þann metnað að láta ekki
reikningsskekkjur finnast eftir sig
að ráði. Hift er rnergur málsins,
hvernig útsvarsbyrðunum er deilt
niður á gjaldendurna, hvort tekið er
tillit til þessa eða hins, hvort þeir.
sem hafa líka aðstöðu, beri líkt út-
svar eða ekki, hvort nægilegt tillit er
tekið lil þess. hver aðstaða manna er
við framtal o. fl. o. fl. Eins og mál-
um er nú komið, jafnar SkaUstojan
niður, cn níðurjöfnunarnefnd ber
siðferðilega úbyrgð á því, sem vel
er gert — og illa.
\
MISSKILIÐ TRÚNAÐARSTARF.
Þegar niðurjöfnunarnefnd hafði
lokið alhugun sinni á niðurjöfnun
Skattstofunnar í ár, sá nefndin, að
upphæð sú, er inn kæmi, ef jafnáð
væri niður eftir saina útsvarsstiga
og í fyrra (en Skattstofan hafði not-
að hann) tnundi verða um 530 þús.
kr. hœrri en gert var ráð fyrir á
fjárhagsáœtlun bœjarins, og var þó
5% álag það, sem lagt var á i fyrra,
fellt niður.
Eins og vitað er, þá er bæjarstjór-
inn formaður niðurjöfnunarnefndar
og hefði því átt sem röskur og vak-
andi bæjarstjóri að grípa tækifærið
og leggja málið fyrir bæjarstjórn og
æskja þess, að hún sækti um leyfi til
ríkisstjórnarinnar til að jafna hærri
útsvarsupphæð niður en fjárhags-
áætlunin mælti fyrir. Þetta var því
sjálfsagðara sem bæjarstjóri hefir
oft harið lóminn um getuleysi bæj-
arins íil ýmissa framkvæmda vegna
fjárskorts, og honum var einnig vel
kunnugt um, að ýmsir bæjarfulltrú-
ar höfðu við afgreiðslu fjárhagsá-
ætlunarinnar greitt atkvæði gegn
nokkrum útgjaldaliðum einungis af
ugg við of há útsvör.
En hvað skeður? Bæjarstjórinn
og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nið-
urj öfnunarnefnd gengu umyrðalaust
inn á þá tillögu skattstjórans, full-
trúa Framsóknarflokksins, að lœkka
öll rekstursútsvör um helming, fella
NÝJA-BÍÓ
Þriðjudaginn 20. júli kl. 9:
Aftnrgöngnrnar
(„THE TIME ÍN THEIR
LIVES“)
Amerísk gamanmynd frá
Universal Pictures.
Leikstjóri: Charles Barton.
Aðalleikendur:
Bud Abbott — Lou Castello
Marjorie Reynolds —
Binnie Barnes — Jess Barker
— Gale Sondergaard —
John Shelton.
Skjaldkorgarkfó
í kvöld:
BARDAGAMAÐURINN
(The Fighting Guardsman)
Skemmtileg og spennandi mynd
eftir skáldsögu Alexandre Du-
mas: „Félagar Jehús“.
Aðalhlutverk:
WILLARD PARKER
ANITA LOUISE
JANIS CARTER
JOHN LODER.
niður 120 kr. útsvör og lœgri og
iœkka síðan lœgri útsvör en 1000 kr.
um 20%, en önnur öll — líka rekst-
ursútsvörin — um 10%.
M. Ö. 0. ÚTSVARSBYRÐINA
ÁTTl FYRST AÐ LÉTTA UM
IIELMINC Á ■ BREIÐVSTU BÖK-
UNUM, FYRIRTÆKJUNUM, OG
SÍÐAN AFTUR UM 10%, MEÐAN
ALLUR ALMENNINGUR FENGl
AÐEINS 10% ÍVILNUN.
HRÖÐ HANDTÖK.
Ilöfuðrökin munu liafa verið þau,
að rekstursútsvör hefðu verið hér
óvenjuhá sl. ár og þetta væri léttasta
leiðin til að burtreikna 530 þús. kr.,
sem fram yfir voru fj árhagsáætlun-
ina.
Framh. á 2. síðu.