Alþýðumaðurinn - 20.07.1948, Síða 3
j'riSjutlagur 20. júlí 1948
AL>f©UMAÐURINN
S
\
t”............... —— —■ —»1
|| ALÞÝÐUMAÐURINN
Utgefandi:
Alþýðuflokksfélag Akureyrar
Rifstjóri:
BRAGI SIGURJÓNSSON
I
Bjarkastíg 7. Sími 604.
: I ‘ r
Verð 15.00 kr. á ári.
|| Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f.
IL
ar aukin réttindi negra, nái hann
kosningu.
I N N L E N T.
Innanlands hefir þaS markverðast
gerzt, að ísland hefir gerzt aðilji að
Marshallhjálpinni. Voru samningar
um það undirritaðir milli íslands
og Bandaríkjanna laugardaginn 3.
júlí sl. Standa nú yfir athuganir á
lántökum í Bandaríkjunum fyrir Is-
iands hönd, og mun ætlunin, ef af
lántöku verður, að verja upphæðinni
að meginmagni til aukningar fram-
leiðslugetu þjóðarinnar.
Málgögn kommúnista hafa farið
hamförum gegn samningi þessum
og stimplað ráðherrana alla sem
landráðamenn. Sama hergmálið
endurómar nú í málgögnum allra
kommúnistaflokka Marshallland-
anna 16, og svíður forsvarsmönnum
flokka þessara mest, að engir virð-
ast á þá hlusta.
Kvittur er kominn upp um óhugn-
anlegt smyglmál, sem kommúnistar
kunni að vera riðnir við sem flokk-
ur. Er það í sambandi við kommún-
ista á Tröllafossi, sem uppvís hefir
orðið að því að reyna að koma stál-
þráðartæki í land í Reykjavík án
vitundar tollþjóna. Er sagt auðvelt
að nota tæki þetta með smávægis-
breytingu til ■ símahlerana. Rifjar
þetta mál óhugnanlega upp frásögn-
ina í bókinni Úr álögum, þar sem
sagt er frá þjónustusemi manna
meðal skipshafna á Eimskipafélags-
skipunum íslenzku við alþjóðasam-
tök kommúnista.
Þá er fullyrt, að tveir íslenzkir
menn hafi ráðið sig eða verið ráðn-
ir sem síldarlóssar á veiðiflota Rússa
hér við land. Slíks eru að vísu dæmi
fyrr, að íslenzkir menn hafi gerzt
ótrúir landi sínu á líkan hátt, en það
óhugnanlegasta í sambandi við mál
þetta er, að augljóst verður að telj-
ast, að venjulegir síldarlóssar ráða
sig ekki milliliðalaust á rússnesk
skip, og aðeins er um einn millilið
að ræða þá í þessu máli. Rís gremja
almennings fjöllunum hærra um
þessar mundir, og þykir honum að
vonum imdiilægj uháUuriim ganga
langt, þegar erlendum síldveiðiflota
er siglt með hjálp manna, sem þykj-
ast allra íslendinga íslenzkastir, fast
upp að landsteinum.
LÉREFTSTUSKUR
kaupum við hœsta verði
Prentsmiðja
Björns Jónssonar h.f.
Auglýsið í Alþýðumaiminum'
Auglýsing
nr. 24 1948 frá skömmtunarstjúra
Samkvæmt heimild í 3. gr. reglugerðar frá 23. septem-
ber 1947 um vöruskömmtun, takmörkun á sö'u, dreifingu
og afhendingu vara hefir viðskiptanefndin ákveðið, að
skömmtunarreiturinn í skömmtunarbók nr. 1 með áletrun-
inni SKAMMTUR 6 skuli vera lögleg innkaupaheimild fyrir
1 kg. af skömmtuðu smjöri á tímabilinu frá 18. júlí 1948
og þangað til annað verður auglýst.
Jafnframt hefir verið ákveðið, að skömmtunarreitur-
inn í skömmtunarbók nr. 1 með áletruninni SKAMMTUR 5
skuli hinn 1. ágúst næstkomandi fal’a úr gildi sem lögleg
innkaupaheimild fyrir skömmtuðu smjöri. Verða þeir, sem
eiga þennan skömmtunarreit (skammt 5) að gæta þess að
nota hann fyrir 1. ágúst.
Reykjavík, 17. júlí 1948.
SKÖMMTUNARSTJÓRI.
Auglýsing
or. 23 1948 frá skömmtunarstjdra
/ .
Viðskiptanefndin hefir samþykkt að heimila skömmt-
unarskrifstofu ríkisins að veita nýja aukaúthlutun á vinnu-
fatnaði og vinnuskóm.
Bæjarstjórum og oddviium hafa nú verið sendir sér-
stakir skömmtunarseðlar í þessu skyni, og þeir auðkenndir
sem vinnufatastofn nr. 3, prentaðir með brúnum lit.
tleimilt er að úthluta þessum nýju vinnufataseðlum til
þeirra, sem skila vinnufatnaðarstofni nr. 2, svo og til ann-
arra, er þurfa á sérstökum vinnufatnaði eða vinnuskóm
að halda, vegna vinnu sinnar. Um úthlutanir til þeirra, er
ekki hafa í höndutn vinnufatnaðarstofn nr. 2, skal að öllu
leyti farið eftir því, sem fyrir er lagt í auglýsingu skömmt-
unarstjóra nr. 21/1947, og gilda að öðru leyti ákvæði þeirr-
ar auglýsingar, eftir því sem við á.
Heimilt er að úthluta þessum nýju vinnufatnaðarseðl-
um á tímabilinu frá 1. júlí til 1. nóv. 1948, og skulu þeir
vera lögleg innkaupaheimild á því tímabili.
Bæjarstjórum og oddvitum skal sérstaklega á það bent,
að klippa frá og halda eftir reitnum fyrir vinnuskónum,
ef þeir telja, að umsækjandi hafi ekki brýna þörf fyrir nýja
vinnuskó á umræddu tímabili.
Jafnframt skal það tekið fram, að vinnufátaseðlar þeir,
sem auðkenndir eru sem vinnufatastofn nr. 2, prentaðir
með rauðum iit, falla úr gildi sem lögleg innkaupaheimild
frá og með 1. ágúst 1848.
Reykjavík, 5. júlí 1948.
SKÖMMTUNARSTJ ÓRI.
Arflur til hluthata
Á aðalfundi félagsins 5. júní, var samþykkt að greiða
4% — fjóra af hundraði — í arð tii hluthafa fyrir árið
1947.
Arðmiðar verða inn'eystir í aðalskrifstofu félagsins í
Reykjavík, og hjá afgreiðslumönnum félagsins um allt
land.
Athygli skal vakin á þvi, að samkvæmt 5. gr. sam-
• þykkta félagsins er arðmiði ógildur, hafi ekki verið krafizt
greiðslu á honum áður en 4 ár eru liðin frá gjalddaga hans.
Skal hluthöfum því bent á, að draga ekki að innleysa arð-
miða af hlutabréfum sínum, svo lengi að hætta sé á, að þeir
verði ógildir. Nú eru í gildi arðmiðar fýrir árin 1943—1947,
að báðum árum meðtöldum, en eldri arðmiðar eru ógildir.
Þá skal ennfremur vakin athygli á því, að enn eiga all-
margir hiuthafar eftir að sækja nýjar arðmiðaarki^, sem
afhentar eru gegn stofni þeim, sem festur er við lúutabréf-
in. Eru þeir hluthafar, sem enn eiga eftir að skipta á stofn-
inum og nýrri arðmiðaörk, beðnir að gera það sem fyrst.
Afgreiðslumenn félagsins um land allt, svo og aðalskrif-
stofan í Reykjavík, veita stofnunum viðtöku.
- ^
H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.