Alþýðumaðurinn - 08.05.1951, Blaðsíða 1
XXI. árg.
WCjÍiumculluma
Þriðjudagur 8. maí 1951
17. tbl.
Vinnuskðlinn teknr til
starfa i vnr.
Varnarsamningur við
Bandarikin nndirritadnr
5. maí s.l. 1 Reykjavlk.
Samningurinn er gerður á grundvelli Átlantshafsbanda-
logsins og a'S ósk Atlont'shafsráðsins.
Þingmenn a'Ira lýðræðisflokkanna höfðu tjáð sig sam-
þykka samningnum. Með honum fellur úr gildi Keflavík-
urflugvallarsamningurinn og taka íslendingar sjálfir við
almennum rekstri og þjónustu va'larins.
Bandarískt lið kom til Keflavíkur í gærmorgun.
í gærmorgun tilkynnti íslenzka ríkisstjórnin hlustendum ríkisútvarpsins,
að 5. maí síðastliðinn hefði hún undirritað varnarsamning við Bandaríkin
á grundvelli Atlantshafsbandalagsins. Tækju Bandaríkin að sér að verja ís-
land gegn hugsanlegri árásarþjóð, en þó skyldi staðsetning liðs og liðs-
fjöldi háð samþykki íslenzku ríkisstjórnarinnar hverju sinni. í tilkynningu
stjórnarinnar var þess getið, að þingmönnum allra lýðræðisflokkanna hefði
verið kynntur sanmingurinn, áður en hann var undirritaður, og hefðu þeir
allir, 43 að tölu, tjáð sig honum samþykkan að athuguðum aðstæðum öll-
um og gefnum upplýsingum. Hins vegar hefðu þingmenn Sósíalistaflokks-
ins eigi verið kvaddir ráða um öryggi landsins.
Jafnframt þessu tilkynnti svo ríkisstjórnin, að bandarískt lið væri þegar
komið til Keflavíkur, en hins vegar væri Keflavíkursamningurinn svonefndi
úr gildi fallinn, og tækju nú Islendingar að öllu við rekstri Keflavíkurflug-
vallar, hvað almenna umferð snertir, svo og þjónustu þar.
Ekki fylgdi það tilkynningu ríkisstjórnarinnar, hve mannmargt hið ný-
komna lið væri, eigi heldur til hvaða staða annarra en Keflavíkur liðs væri
von. Hins vegar var þess getið, að eigi hefði þótt rétt af öryggisástæðum
að geta um samning þennan fyrr en varnarliðið var komið til landsins.
Svo sem lesendur Alþm. mun reka
minni til var kosin vinnuskólanefnd
í fyrrávetur af bæjarstjórn Akureyr-
ar. Var það gert samkvæmt tillögu
fulltrúa Alþýðuflokksins, enda eitt
af stefnuskrármálum flokksins fvrir
síðustu kosningar að stofnað yrði
til unglingavinnu af hálfu bæjarins.
Málið hlaut strax góðar undirtektir
hjá öllum flokkunum og voru menn
úr öllum flokkum skipaðir í vinnu-
skólanefndina, sem þegar tók til
starfa í fyrravor og skilaði ítarlegu
áliti um vinnuskóla, hugsanlegt
starfssvið hans og kostnað við hann.
Eigi þótti þó fært að ráðast í stofn-
un vinnuskóla strax í fyrravor, held-
ur var horfiö að því ráði, að undir-
búa hana sem bezt fyrir þetta ár,
land valið og brotið til garðræktar,
leitað eftir færum manni til að veita
skólanum forstöðu o. s. frv. Hefir
garðyrkj uráðunautur bæj arins stutt
nefndina í öllu þessu af miklum á-
huga og dugnaði. Hafa foreldrar
mjög spurzt fyrir um væntanlega
starfsemi skólans og fylgzt af áhuga
með undirbúningi hans. Nú er svo
komið, að skólinn mun hefja starf-
semi sína í vor, og hefir blaöinu
borizt eftirfarandi greinargerð frá
vinnuskólanefndinni:
Að öllu forfallalausu mun Vinnu-
skóli Akureyrar hefjast um mánaða-
mótin maí og júní. Skólinn mun
mest fást við garðrækt, en þó einnig
snúa sér að öðrum hentugum við-
fangsefnum, þegar þess er kostur.
Á síðastliðnu hausti fékk skólinn
ca. 6 ha. lands til umráða sunnan
við Miðhúsaklappir og umhverfis
skíðaskála Barnaskóians. Landið
var að mestu vélunnið í fyrrahaust
og framræsla þá hafin. Skólinn hef-
ir nú útvegaö sér það, sem til vinn-
unnar þarf af verkfærum og útsæði.
Björgvin Jörgensson, kennari, veitir
skólanum forstööu. Að þessu sinni
mun skólinn aðeins geta tekið við 25
til 30 börnum á aldrinum 12 og 13
ára (aldurinn miðast við áramót).
Skólinn starfar í 3 til 4 mánuði, en
börnin fá viku sumarfrí í samráði
við kennarann.
Vinnutilhögun verður í aÖalatrið-
um þannig:
1. Kartöflur verða settar niður í
2 ha. lands, en rófur og gulrætur í
1.5 ha., og vinna börnin sameigin-
lega að þessu. Uppskeru úr þessum
görðum fær vinnuskólinn. og geng-
ur andvirði hennar upp í kostnað
við skólahaldiÖ.
2. Hálfum ha. lands verður skipt
milli barnanna, þannig, að hver
nemandi fær ákveöinn reit er hann
ræktar í eftir vild, og sér um að öllu
leyti undir umsjá kennarans. Skól-
inn leggur nemandanum til verkfæri
og áburð, en hann greiöir sjálfur út-
sæði og annan kostnað, ef einhver
verður, enda á hann sjálfur upp-
skeruna úr sínum reit.
3. Vinnuskólinn mun hafa sérstak-
an reit, þar sem nemendum gefst
kostur á að fylgjast með tilraunum,
sem gerðar verða með áburð og út-
sæði.
Onnur vinna en garðavinna, sem
til kann að falla.
Þrjár krórtur um tímann.
Skólinn er jafnt fyrir stúlkur sem
drengi. Vinnutími barnanna verður
allt að 6 stundum á dag, og verður
hver vinnustund, sem unnin er í
þágu vinnuskólans, greidd með 3.00
kr. Skólinn tekur aðeins við þeim
börnum. er hugsa sér að taka þátt í
störfum hans allt tímabilið.
Þeir, sem hafa hug á því að koma
börnum sínum í vinnuskólann, geta
snúið sér til Tryggva Þorsteinsson-
ar, kennara, Munkaþverárstræti 5,
sími 1281, eða til Finns Árnasonar,
garðyrkjuráðunauts, Hafnarstr. 103,
simi 1497, og fengið hjá þeim nán-
ari upplýsingar. Umsóknir um skóla-
vist þurfa að berast fyrir 14. þ. m.
Á uppstigningardag opinberuðu trúlof-
un sína Kristín Guðmundsdóttir frá Siglu-
firði og Ríkharð Jónsson, stýrimaður,
Lögbergsgötu 3, Akureyri.
Barnaskóla Akureyrar veröur sagt
upp n.k. föstud. kl. 2 e.h. Verður þá
minnzt 80 ára afmælis skólans.