Alþýðumaðurinn - 03.07.1951, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUMAÐURINN
ÞriSjudagur 3. júlí 1951
Samnorrænu §undkeppn'
iimi §enn lokið
Nú eru aðeins eftir nokkrir
dagar þar til hinni Samnorrænu
sundkeppni lýkur hér á landi.
Til þessa er eigi hægt að segja
annað en að keppnin hafi gengið
að óskum. Þjóðin hefir í heild
tekið henni vel. Allir sundstaðir
eru notaðir. Meira að segja hafa
þrír gamlir sundstaðir verið tekn-
ir aftur í notkun og ein torflaug
byggð. Aðsókn til sundstaðanna
hefur verið meiri og almennari
en dæmi eru til hér á landi. —
Sérstaklega hefir kvenfólkið auk-
ið sókn sína til sundstaðanna.
Margir sundstaðir hafa komið
á eða aukið sérstaka kvennatíma
og hafa þeir alls staðar yfirfyllzt.
ísfirðingar höfðu sett sér að
ná 700 þátttakendum. Af þeirri
tölu átti kvenfólkið að ná 300.
Þær hafa nú náð 260.
Að sundhöll Reykjavíkur hefir
aðsókn kvenna þrefaldast. —
Einn daginn sóttu 2400 manns
sundlaugar Reykjavíkur, 900
sundhöllina og 500 komu í Naut-
hólsvíkina.
Frá sundlaugarlausum byggð-
arlögum hefir fólk farið í stórum
hópum langan veg til sundlauga.
T. d. hafa Eyrbekkingar farið
margar hópferðir til Hveragerðis
og 70 íbúar þegar lokið keppn-
inni. í Höfn í Hornafirði, þar
sem synt er í kaldri tjörn, hafa
25 tekið þátt í keppninni.
Mörg samhljóða dæmi mætti
nefna frá öðrum byggðalögum
og sundstöðum. — Af einstökum
hreppum er þátttaka almennust,
eða um 30%, í Biskupstungum,
Skeiðum, Hrunamannahreppi og
Mosfellssveit. — Árnessýsla mun
vera hæst af sýslum, en Ólafs-
fjörður af kaupstöðum.
Hvað sem sigri í keppninni líð-
ur, þá hefir þegar verið unninn
stór sigur af þjóðinni með þess-
ari auknu sundsókn.
Þing hins norræna sundsam-
bands setti íslandi hæstu jöfnun-
artöluna, þ.e. 10.000, eða rúm
7% íbúatölu þjóðarinnar. Hinar
Norðurlandaþjóðirnar hlutu jöfn-
unartölur sem hér segir:
Svíþjóð 150.000 eða 2.14%
íbúafjöldans.
Finnland 105.000 eða 2.63%
íbúafjöldans.
Noregur 35.000 eða 1.93%
íbúafjöldans.
Danmörk 40.000 eða 0.95%
íbúafjöldans.
Landssundnefndin hefir áætlað
þjóðinni aðra tölu. Eftir fyrstu
20 dagana náðust 36.6% þeirrar
tölu, en að loknum 37 dögum
70%. Tekst þjóðinni á þeim fáu
dögum, sem eftir eru, að fylla
mælinn? — Landsnefndin efar
ekki að það takist. Hún veit að
margir eru við sundiðkanir og
þeim tekst flestum að synda 200
metrana. Hún treystir því að þeir
mörgu, sem enn hafa dokað við
með þátttöku, komi til keppninn-
ar. Nefndin hefir reynslu fyrir
því, að margir hafa efast um
sundfærni sína og hafa beðið
með að gera tilraun þar til þeir
sjá hversu jafningjum tekst til.
Hún treystir því að hinir yngri,
sem eru of margir eftir með þátt-
töku, komi, er þeir sjá hve vel
hinir eldri hafa lagt sig fram, já,
meira að segja blindir, lamaðir
og fatlaðir.
Æskunni er enn treyst, — til
þessa hefir hún látið híða um of
eftir sér.
Vér vitum, að þessa síðustu
daga muni aðsókn að sund-
stöðum enn aukast, og því heit-
um við á alla starfsmenn keppn-
innar að búa sem bezt í haginn
fyrir þá aðsókn, sem í vændum
er.
Það eina, sem skyggt hefir á
framkvæmd keppninnar er, að
ekki hefir verið unnt að afgreiða
þau sundmerki, sem þátttakendur
hafa óskað eftir að kaupa. Sumir
telja, að fólk fari ekki til þátt-
töku vegna þess, að það fái eigi
keypt merki. Treystum vér því,
að fáir hugsi þannig, en lands-
nefndin mun leitast við að út-
vega merkin og dreifa þeim þá
daga, sem eftir eru af keppnis-
tímanum.
Þér, sem eigið eftir að taka
þátt í sundkeppninni, en getið
það, komið sem fyrst til þátttöku,
évo að sundstaðirnir yfirfyllist
ekki síðustu dagana. Ekki er að
vita, nema fyrstu tilraunirnar
mistakist.
Frændþjóðirnar gerðu oss stór-
an hlut að keppa að, vér höfum
sjálf sett oss enn stærri hlut. —
Stöndum einhuga, svo að hlutur
íslands megi verða enn meiri en
hann var oss gerður.
Landssundnefnd
samnorrœnu sundkeppninnar.
Nýjo Bíó
í kvöld kl. 9:
Hæftur
stórborgarinnar.
(„The Naked City“)
Aðalhlutverk:
Barry Fitzgerald
Howard Duff
Dorothy Hart
Don Taylor.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
AF LEIKVANGINUM
Nokkrar athugasemdir og hugleiðingar um íþrótta-
mól ó Akureyri að aflokinni vígslu nýju
hlaupabrautarinnar.
Niðurlag.
Þær keppnir, sem ég hefi nefnt,
eru Drengj ameistaramót íslands
3.—5. ágúst, ein fjölmennasta
íþróttakeppni landsins, bæja-
keppni við Vestmanneyinga 18.—
19. ágúst (samkvæmt mótaskrá
Í.B.A.) og loks hefir komið til
tals að reyna að koma hér upp
Meistaramóti Norðurlands í
frjálsum íþróttum (sbr. Knatt-
spyrnumót og Handknattleiksmót
Norðurlands). — Oll þessi mót
krefjast vandvirkni, nákvæmni og
mikillár vinnu.
Enda þótt ég hafi sums staðar
verið nokkuð harðorður og ef til
vill smásmyglislegur í gagnrýni
minni hér að framan, efast ég
ekki um, að sumir, sem stóðu að
Í7. júní-mótinu, hafi unnið þar
vel eftir því, sem tími og aðstæð-
ur leyfðu, en þeir hafa greinilega
verið alltof fáir. Það þekkja ef-
laust flestir að félagsþroski
manna er á svo hörmulega lágu
stigi að undirbúningsstörf sem
þessi, ólaunuð og óþökkuð, mæða
oftast á hinum örfáu ósérhlífnu,
þeim, sem ábyrgðartilfinningu
hafa.
Það, sem mér þótti vel gert,
var frágangur sjálfrar hlaupa-
brautarinnar. Hún var vel merkt
og ágætlega þjöppuð. Fánaskreyt-
ingin var til sóma.
Að þessu sinni skipti það meira
máli en nokkru sinni ella, að mót
þetta færi greiðlega fram og tæk-
ist vel. Ástæðan er sú, að fyrirséð
var, að óvenjumargir áhorfendur
kæmu á völlinn, þar sem um sér-
stök hátíðabrigði var að ræða, og
þess vegna mátti það ekki koma
fyrir, að áhorfendur færu leiðir
og óánægðir þeim. Einmitt hið
gagnstæða. Hér gafst alveg sér-
stakt tækifæri til áróðurs fyrir
frjálsar íþróttir, sem almenning-
ur hér þekkir alltof lítið og met-
ur því einnig lítils. Annars átti
ég fyrir skömmu tal við mann,
sem hefir mjög gaman af þessum
íþróttum, en segist vera alveg að
uppgefast á því að horfa á íþrótta-
mót, vegna þess að ekkert sé gert
fyrir áhorfendur, mótin gangi
seint og upplýsingar vanti, og
þetta er áreiðanlega ekkert eins-
dæmi. — Þessar athugasemdir
Nkrá
yfir tekju- og eignaskatt, tekjuskattsviðauka og stríðsgróða-
skatt, svo og skrá yfir gjöld til Almannatrygginga liggur
frammi í skattstofu Akureyrar frá laugardeginum 30. júní
til föstudagsins 13. júlí að báðum dögum meðtöldum.
Kærum út af skránni skal skilað til skattstofunnar innan
sama tímá.
Akureyri, 30. júní 1951.
Skattstjórinn á Akureyri
Kristinn Guðmundsson.
mannsins eru laukréttar. Hér
vantar fræðandi og fjörugan
kallara á íþróttamót og gott
starfslið, sem skilur, að íþrótta-
mótin eru haldin fyrir áhorfend-
ur, auglýsing til að fá fjöldann
með og auk þess skemmtun.
En nú vildi svo vel til 17. júní
að hlaupkeppnirnar voru reglu
lega skemmtilegar, þó að ann
markar væru á undirbúningnum
Þeir mæddu aðallega á keppend
unum. Hins vegar urðu áhorfend
ur sérstaklega hart úti daginn áð
ur á Þórsvellinum, og vonandi
kemur slíkt aldrei fyrir aftur.
Síri.
Léreftstuskur
kaupum við hæsta verði.
Prentsmiðja
Björns Jónssonar hf.
ÍSLENDINGASAGNA-
ÚTGÁFAN EFNIR TIL
GETRAUNAR
Svo sem auglýst var í síðasta
tbl. Alþm., efnir íslendingaútgáf-
an h.f. til nýstárlegrar og merki-
legrar getraunar, sem búast má
við að marga fýsi að þreyta.
Svo sem alkunnugt er, hefir út-
gáfa þessi verið mjög stórvirk á
útgáfu fornrita vorra, og hefir
þegar komið út á vegum hennar
íslendingasögurnar i 13 bindum,
Biskupasögur, Sturlunga og Ann-
álar, 7 bindi, Riddarasögur, 3
bindi, Eddukvæði, Snorra-Edda
og Eddulyklar, 4 bindi, Karla-
Magnúsarsaga, 3 bindi og Forn-
aldarsögur Norðurlanda, 4 bindi.
Enn má svo geta þess, að nú er
útgáfan með nýjan flokk riddara-
sagna í undirbúningi.
Eins og ljóst er af auglýsingu
útgáfunnar, er getraunin miðuð
við það, að úrlausnir hennar sé
að finna í bókaflokkum þeim,
sem útgáfan hefir gefið út, og eru
verðlaun svo rausnarleg, að mikl-
ar líkur eru til, að bækur þessar
verði kapplesnar á næstunni, og
það er fyrst og fremst tilgangur
útgáfunnar að auka þekkingu
manna á þessum sígildu þók-
menntum vorum, áreiðanlega ekki
sízt meðal unga fólksins.
A |»rikosiii>
Appelisiimr
Sít roiiiii' nýkomnar.
Kaugfélag verkamanna
Nýlenduvörudeild.
jSíMarstúlfuir
vantar Óskar Halldórsson h.f. til Raufarhafnar,
Fríar ferðir og kauptrygging, nýtt íbúðarhús,
— 4 stúlkur í herbergi. — Á Raufarhöfn mega
stúlkur vænta góðrar atvinnu.
Upplýsingar hjá
Helga Pólssyni, síma 1038 og 1538.
TILKYNNING
til sölumanna Laxórvirkjunarbréfa.
Vegna brottfarar Tómasar Árnasonar hdl. úr landinu, hef-
ir Baldri Guðlaugssyni, endurskoðanda, Akureyri, verið fal-
ið söluumboð bréfanna á Norðurlandi í hans stað.
Akureyri, 29. júní 1951.
Sfjórn Laxórvirkjunarinnar.
Gólfrenningur
70, 80, 90, 100 cm. breiður, sex gerðir,
nýkominn.
Kaupfélag verkamanna
Vefnaðarvörudeild.