Alþýðumaðurinn - 11.09.1951, Side 3
Þriðjudagur 11. seplember 1951
A L Þ Ý Ð U M A Ð U E I N T»
S
Bcejarvetlreðiitgurírn i ndiar-
faðmi Elísabetar oo Eirihs
Einhverra hluta vegna hefir
það komið óþægilega við föður-
tilfinningar kunningja mins,
Eiríks Einarssonar, að ég hefi
deilt á prenti á þá ákvörðun
meirihluta bæjarstjórnar (og
raunar minnihluta þó, þar sem
aðeins 5 greiddu málinu atkvæði)
að ábyrgjast 40 þús. kr. víxillán
fyrir bæjarverkfræðing okkar. En
áður hafði ég sært móðurtilfinn-
ingar Elísabetar Eiríksdóttur með
því að tala gegn því í bæjarstjórn.
Elísabet „þvoði mér um höf-
uðið“, eins og það er stundum
kallað, af sinni alþekktu mælsku
og rökvísi. Eiríkur gerir slíkt hið
sama af ritfimi sinni i síðasta
tbl. Isl. Finnst þeim báðum Eiríki
og El.'sabet, að mér farizt ómann-
úðlega gagnvart bæjarverkfræð-
ingnum, að manni skilst vegna
ýmissa þrenginga hans, en í sann-
leika sagt virðist fleirum en mér,
að sá maður sé ekki með öllu
umkomulaus, sem sólar sig á lík-
an hátt og verkfræðingurinn í
náðarfaðmi þessara ágætu karls
og konu, Eiríks og Elísabetar.
En svo öllum gamburyrðum sé
sleppt, vil ég hér gera örfáar at-
hugasemdir við ritsmíð Eiríks:
/ jyrsta lagi: Það er misskiln-
ingur, að ég hafi gefið bæjarfull-
trúum viðurnefni. Svigayrðin í
grein þeirri, er Eiríkur misskilur
svo, áttu að tákna ástæðurnar
fyrir verknaði bæjarfulltrúanna,
og voru fulltrúar Alþýðufl. ekki
undanskildir, og mun enginn hafa
misskilið þetta nema Eiríkur.
I öðru lagi: Abyrgðin fyrir
bæjarverkfræðinginn er ekkert
afsakanlegri, þótt Jóni Sveins-
syni og Snorra Sigfússyni hafi
verið veittar ábyrgðir. I bezta iil-
felli sýnir það ekki annað en það,
að fyrr hafi setið vitlausar bæjar-
stjórnir að völdum hér en sú, er
nú silur. Einnig hlýtur Eiríkur að
skilja það, að erfiðara er fyrir
núverandi bæjarstjórn að ganga
fram hjá fordæmi, sem hún hefir
skapað en fordæmi einhverrar
fyrrverandi bæjarstjórnar.
1 þriðja lagi: Það er rangt hjá
Eiríki, að Alþm. hafi nokkuð sagt
um það, að bæjarverkfræðingur-
inn þyrfti ekki lán, af því að hann
væri svo hátt launaður. Hitt gaf
blaðið hiklaust í skyn, að Akur-
eyrarbæ væri sæmra og skyldara
að hjálpa fyrr þeim láglaunuðu
og fátæku um húsnæði en hæst-
launuðu gæðingum sínum, og
skal sú skoðun endurtekin hér
kinnroðalaust.
1 jjórða lagi: Það er rangt hjá
Eiríki — nema Vegagerð ríkisins
varðveitt hana, þjáljað og þrosk-
að sér og þjóð sinni til sóma. Og
það sem er kannske allra bezt:
Hann á auðsjáanlega engan kost
annan en halda áfram að þjálfa
hana og þroska, halda áfram að
yrkja. Það finnst mér harla gott.
Br. S.
fari ekki eftir launalögunum —
að bæjarverkfræðingur hafi ekki
hærri laun en lægst launuðu
verkfræðingar hjá Vegagerðinni.
Samkvæmt fjárhagsáætlun Akur-
eyrar og launalögum ríkisins
hefir hann hœrri laun en yfir-
verkfrœðingur vegamála, gerir
sem næst því að miðlunga laun
vegamálastjóra og yfirverkfræð-
ingsins.
/ fimmta lagi: Byggingasjóður
Akureyrar kemur þessum málum
ekkert við. Verkfræðingurinn hef-
ir ekki sótt um lán úr honum,
heldur eftirlaunasjóð starfsmanna
bæjarins. Hitt skal fúslega viður-
kennt, að ekkert mundi gleðja
Alþýðuflokksmenn hér á Akureyri
meira en það, ef hægt yrði að
efla Byggingasjóð Akureyrar og
lána hærri lán úr honum. Til slíks
mun liðssinni Eiríks Einarssonar
alitaf vera þegið og hiklaust
þakkað, eins og sjálfsagt væri.
Hitt er sjálfsagt að láta ekki ó-
mótmælt, að sjóðurinn hafi ekk-
ert gagn gert. Vissulega hefir
hann verið betri en ekki, og þarf
Eiríkur ekki annað *en líta á sum
húsin í Rauðu- og Grænumýri til
að sannfærast um slíkt.
/ sjötta lagi: Bæjarverkfræð-
ingur bað vissulega um bifreiðar-
styrk eða að bærinn ætti og ræki
að öðrum kosti jeppa hans. Hann
lagði fram yfirlit í bæjarráði,
hvað rekstur jeppans hafði kost-
að árinu fyrir og lét liggja að
því, að rekstur hans yrði drjúgum
hærri í ár. Hvað stóð í bréfi verk-
fræðingsins, játa ég, að ég man
ekki, efa að það hafi verið lesið
upp í bæjarráði. Verkfræðingur-
inn mætti þar sálfur og rak erindi
sitt. Ég man í höfuðdráttum,
hvernig hann gerði það.
Sjálfsagt er að minna Eirík á,
að séu bifreiðastyrkir yfirleitt
réttlætanlegir, þá er eðlilegt að
greiða hærri styrk í IJeykjavík en
hér, þar er yfirferð um borgina
langt um meiri en hér.
/ sjöunda lagi: Það er alrangt
hjá Eiríki, að til þess liggi
persónulegar ástæður af minni
hendi, að ég tel rétt, að núverandi
bæjarverkfræðingur verði ekki
mosagróinn í starfi sínu. Til þess
liggja einfaldlega þær ástæður,
að mér finnst hann ekki hafa þá
eiginleika til að bera, sem ég tel
að verkfræðingur bæjarins þurfi
að hafa: ekki nógu úrræðagóð-
ur, ekki nógu röggsamur, ekki
nógur skörungur. Ég er því á
móti honum af alveg sömu ástæð-
Um og bæjarstjóranum okkar, en
persónulega finnst mér báðir
mennirnir, jiað sem að mér hefir
snúið, elskulegustu menn. Ég er
bara einu sinni svo gerður —
gagnstætt Eiríki að mér skilst —
að mér finnst það skipta höfuð-
máli, hvernig maður stendur í
stöðu sinni, en ekki hvernig mér
líkar persónulega við mann þar
fyrir utan. Og hreinskilnislega
sagt læt ég mig engu skipta, hvaða
ástæður liggj a til jress, að Eirík-
ur er svo viðkvæmur fyrir verk-
fræðingnum. Samkvæmt ályktun-
um hans um mig hljóta þær að
snerta hann eitthvað persónulega.
En það má vera þeirra einkamál
fyrir mér.
I áttunda lagi: Það er enn rangt
hjá Eiríki, að ég hafi viljað níð-
ast á verkfræðingnum í húsnæðis
leysi hans með afstöðu minni
gegn 40 þús. kr. ábyrgðinni. I
bæjarstjórn benti ég meira að
segja á úrræði, sem hefði getað
leyst vandrœði hans strax í haust.
Nýbyggingin gerir það ekki fyrr
en að hausti. Þar er því um enga
tilraun að ræða til „að koma fyr-
ir kattarnef“, þótt ég vildi ekki
„festa hann í sessi“ með húseign
af áðurgreindum ástæðum.
Og loks þetta: I mínurn augum
er það engin goðgá að vera komni-
únisti, hvað ég veit, að verkfræð-
ingurinn er, meðan þeirri sann-
færingu fylgir engin spellvirki
gegn eigin þjóð og viðleknum
mannréttindum. Hefi ég enga á-
stæðu til að væna verkfræðinginn
um slíkt og er því ekki andvígur
langsetu hans hér af þeim sökum.
Ég get meira að segja gert þá
játningu fyrir Eiríki Einarssyni,
að ég virði og met marga konnn-
únista fyrir ýmis störf þeirra og
hæfileika, og þarf ekki út fyrir
bæjarstjórn okkar til þess, alveg
á sama hált og ég t. d. virði og
met Jakob Frímannsson og Þor-
stein M. Jónsson fyrir dugnað
jreirra og manndóm, Jón Sólnes
og Eirík Einarsson fyrir hrein-
skilni jreirra og liispursleysi,
Helga Pálsson fyrir lipurð hans
og sanngirni i tillögum o. s. frv.,
o. s. frv. Samt sem áður leyfi ég
mér að deila á alla þessa menn
hiklaust og hlífðarlaust, ef mér
býður svo við að horfa.
Og höfum við ekki þá talað
hreint út, Eiríkur?
Br. S.
FRUMSKÓGA-
S T Ú L K A N
(Jungle Girl)
1. IlLUTl
Mjög spennandi og viðburða-
rík ný amerísk kvikmynd, gerð
eftir samnefndri skáldsögu eft-
ir höfund Tarzan-bókanna Ed-
gar Rice Burrough.
Aðalhlutverk:
Frances Gifford
Tom Neal
Sdpuverksiiijai Sjöfn
TMistarski Akureyrar
tekur til starfa 1. október næstkomandi.
Kennslugreinar: Píanó, orgel, fiðla, klarinett, söngur og
tónfræði. Ennfremur verður veitt kennsla í saxofónleik.
Umsóknir um skólavist sendist sem fyrst til skólastjórans,
Jakobs Tryggvasonar, Helgamagrastræti 15, sími 1653.
Tónlistarbandalag Akureyrar.
Gagnfræðaskóli Akureyrar
011 þau börn, er luku prófi síðastliðið vor frá Barnaskóla
Akureyrar og eru skólaskyld í Gagnfræðaskólanum, eru beð-
in að koma til viðtals við mig — eða aðstandendur þeirra
fyrir þeirra hönd — hið allra fyrsta, til að ákveða í samráði
við mig, hvort þau skuli setjast í bóknáms- eða verknáms-
deild skólans. Ég verð venjulega til viðtals heima kl. 5—7 s.d.
Akureyri, 10. september 1951.
Þorstesnn M. Jónsson, skólastjóri.
Reiðhjóladekk
og slöngur
Nýja Bíó
A miðvikudag kl. 9:
I SURRENDER
D E A R
Aðalhlutverkin leika:
Gloria Jean
David Streel
Mjólkurbrúsar
3, 4, 5, lítra.
Kaupfélag verkamanna
Nýlenduvörudeild