Dýraverndarinn - 15.07.1918, Blaðsíða 14
7g DÝRAVÉRNDARINN
HORSAGNA-ÆFINTÝR
MaSur, sem skrifar til „Lögréttu" úr Skagafirðinum nú
um Jónsmessuleytift, býst viö a'ö ýms horsagnaæf in-
t ý r berist þaöan til f jarlægu sveitanna". Og hann varar viö
aö festa trúnaö á þær sögur.
Já, rétt er til getiö. Sögurnar hafa borist. „Dýraverndar-
inn“ fagnar því aö þurfa ekki aö trúa þeim.
Sögur hafa borist um það, aö mikill fjöldi Skagfirskra hrossa
hafi liðið hræöilegan kulda og hungur á liðnum vetri; að þau
hafi staðið í högum skinhoruð, niöurdregin og magnþrota
aðfram komin, þegar forsjónin miskunnaði sig yfir þau og
sendi sól og hlýindi þeim til bjargar. Fullyröa þessar sögur,
aö horfellir hefði orðiö á þessum margþjökuöu skepnum, og
eins á sauðfénaði, allvíða í Skagafjararsýslu og Húnavatns,
ef sumarbliðan heföi ekki komið. þá dagana, sem hún kom.
Sögurnar bæta því viö, aö nokkrar skepnur í þessum sýslum
— og reyndar viðar, — hafi ekki orkað aö biða eftir vorbat-
anum, heldur hafi sólin skinið á holdlausar beinagrindur fall-
inna skepna, þegar hún kom til að bjarga. Þó að vorbllóan
kæmi í fyrra lagi, og þó að hún kæmi svo vel sem hún kom,
hafi hún þó komið of seint.
Svona bárust sögurnar, og það er nú svo komið, aö farið
er að veita slíkum sögum meira athygli en áður. Margur verð-
ur til að trúa þeim; þeir kippa sér ekki upp við þær. Það
er gamla sagan hérna á íslandi, segja þeir, og hugsa ekki
meira um þaö. Aðrir eru tregir til aö trúa, vilja ekki ætla
bændum það, að þeir skelli skollaeyrum viö lögum urn meö-
ferð fénaðarins og séu hiröulausir um eigin hagsmuni. Allir
góðir menn vona i lengstu lög að sögurnar séu ósannar, eða
að minsta kosti ýktar. Þeir láta þær þó ekki eins og vind
um eyrun þjóta, heldur halda spurnum fyrir um það, hvað
sé rétt og hvaö sé rangt með farið.
„Dýraverndarinn" hefir gert það að þessu sinni, og þykist
hafa fengið sannanir fyrir því, að hross hafi falliö í vor í
Skagafjarðarsýslu, Húnavatnssýslu og Snæfellsnessýslu, þó
að rnikil brögð hafi ekki veriö að. Þaö er hryggilegt, aö slíkt
skuli enn geta komið fyrir, og vænt þætti Dýraverndaranum