Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.03.1930, Síða 11

Dýraverndarinn - 01.03.1930, Síða 11
DÝRAVERNDARINN 5 Hóíust þær á því, a'Ö unni'ð var að endurbótunum á túniu í Tungu. Var það að komast í órækt, og mest vegna raklendis, sem stafaði af að skurðir böfðu sigið saman og komu ekki að því gagni, sem þeim var ætlað. Hafði túnið gefið af sér um 130 hesta sumarið 1928 og stundum minna. Var byrjaS á því í fyrra vor að dýpka gamla skurði og gera aðra nýja. Voru grafnir um 400 teningsmetrar af mold og erlendur áburður borinn á túnið með hús- dýraáburði. Brá þá svo, að töðufall varð með lang- mesta móti, eða um 320 hestar og nýting i bezta lagi. Siðari hluta sumars var svo efnt til gagngerðra breytinga á hesthúsinu og fleiru í þvi sambandi. Hef- ir aðalhesthúsið verið hækkað um 1 meter, gluggar stækkaðir, básum breytt og settar á það tvennar nýj- ar dyr til öryggis ef eldsvoða skyldi bera að hönd- um. Eru nú íernar útidyr á hesthúsinu. Auk þess hefir verið þiljað neðan á sperrur undir, þakinu, en þar var áður einfalt járnþak, sem hélaði i frostum og lak þá ofan á hestana þegar hélan þiðnaði við hitann innan frá. í þessu gamla hesthúsi, sem nú má nýtt kallast, eru básar fyrir 24 hesta, og mun það, hvað birtu og loftrými snertir, vandaðasta og veglegasta hesthús bæjarins. Auk þess er minna hest- hús, sem tekur 10—14 hesta, eða þá aðra gripi eftir því sem á stendur. Þá hefir allstór reitur austan við hesthúsið verið girtur og sandbor- inn. Þar er hestunum ætlað að viðra sig á daginn þegar gott er veður, en framan af vetri og á meðan jörð er frosin, fá þeir að leika sér á túninu. Að vísu er reitur þessi ekki fullgerður enn, en kemur þó þegar að gó'Su gagni. í suðausturhorni bygginganna hefir verið komið upp dýraspitala, þar sem dýralækni er ætlað að geta framkvæmt stærri og minni læknis- aðgerðir á dýrum, en á slíku húsa- skjóli hefir verið mjög tilfinnanleg- ur skortur hingað til. Er þvi hér um mjög merkilegt nýmæli að ræða, sem dýralæknir gerir sér góðar vonir um að verði til mikilla bóta i lækning'astarfi hans.Enda er slík- ur spítali hvergi betur kominn en einmitt í sambandi við verndarstöð- ina i Tungu, þar sem hægt er að geyma dýrin og hjúkra þeirn á meðan á lækningunni stendur. Er klefi þessi bjartur og rúmgóður, og i gólfinu stór baðþró, þar sem ætlazt er til að baðaðir verði hestar bæjar- manna, svo og allar aðrar skepnur þeirra manna, er þess óska. í klefanum er gufuketill, sem hafður er til þess að hita vatnið i baðþróna; geta menn þvi látið baða hesta sina hvernig sem viðrar, og fengið þá geynmda i sérstöku húsi á me'ðan þeir eru að þorna. Er mjög sennilegt, að aðsókn verði mikil að böðum þessum, því að lengi hefir verið þörf á slíkri baðþró, og ekki sízt fyrir þá hesta bæjarmanna, sem kúldrast verða í þröngum og dimmum kofum vetrarlangt.* III. Laugardaginn 8. mars bauð stjórn Dýraverndunar- félags íslands nokkrum gestum sínum a'ð Tungu, til að skoða umbæturnar. Voru það aðallega blaðamenu, formaður Fáks, Daníel Danielsson og Hannes dýra- læknir Jónsson. Létu gestirnir hið bezta yfir breyt- ingum þeim og umbótum, sem nú hefir verið að nokkru lýst, og voru hrifnir af þeim myndarskap, * Um miðjan apríl, þegar verið er að fullprenta blaðið, hafa um 100 hestar verið baðaðir í þrónni. Stjðrn Dýraverndunarfélags Islands. Talið frá vinstri: Leifur Þorleifs- son, Hjörtur Hansson, Þorleifur Gunnarsson, Samúel Olafsson og Sigurður Gislason.

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.