Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.03.1930, Side 19

Dýraverndarinn - 01.03.1930, Side 19
DÝRAVERNDARINN 13 endur að sjá marga gæðinga keppa saman í staðinn fyrir fáa. Þar sem sprettinum lýkur er nóg undan- færi áfram með hlíðinni og upp i Básinn, til þess að stöðva hestana eftir sprettinn. Nú er það metnaðarmál allra Fáks-félaga, að kapp- reiðar jjessar megi verða með þeim myndarskaj), að land og þjóð hafi sóma af. En þó að félagið láti einskis ófreistað, og sjái litt i kostnað, um að vanda sem bezt til kappreiða þessara, ])á veltur þó alt á því, að á skeiðvellinum í Bola1)ás verði um nógan og góðan hestakost að ræða, og að þangað verði send- ir gæðingar úr sem flestum sveitum landsins. Þetta hefir félagið lika hugsað sér að tryggja með því, að ákveða margfalt hærri og fleiri verðlaun á þessum kappreiðum, en tíðkast hefir áður. Hafa verðlaunin þegar verið auglýst, og verða þau 1000 — 400 — 250 — 150 og 100 krónur fyrir hvorttveggja, skeið og stökk. Hér er þvi ekki til svo lítils að slægjast fyrir þá, sem liklega hesta eiga, en þeir eru eflaust margir út um sveitir landsins, ef vel er leitað. En auk pening- anna, sem í boði eru, l)ætist svo við heiðurinn fyrir það að eiga gæðingana, er snjallastir reynast og sig- ur bera af hólmi á veglegustu kappreiðunum, sem enn hafa verið háðar í landi hér. Og sá heiður er ekki lítils virði, hvorki fyrir hestana sjálfa né eig- endur þeirra. Nú er þess að vænta, að sem flestir leggist á eitt með Hestamannafélaginu Fák um það, að vanda sem bezt til kappreiða þessara, svo að þær megi vel takast. Er þá fyrst því að treysta, að allir þeir, sem vita sig eiga góða hesta og kunna að skjótleik, að ])eir mæti með þá í Bolabás á vori komanda og leggi þá fram á kappreiðarnar þar. Þó er aðalskilyrði fyr- ir þátttöku í kappreiðunum, að hestarnir séu vel með- farnir, feitir og óþústaðir, enda er vonandi að allir kunni sóma sinn í því, að koma ekki meö magra eða meidda hesta á Þingvöll í þetta sinn. Gera skal aðvart um hesta þá, er keppa eiga, for- manni Fáks, Daníel Daníelssyni, dyraverði í stjórn- arráðinu (sími 306) eigi síðar cn fimtudaginn 5. júní n. k., en allir verða kappreiðahestarnir að vera komn- ir í Bolabás laugardaginn næstan áður en Alþingis- hátíðin hefst, og verður þar tekið við þeim til geymslu og þeim séð fyrir haga fram yfir kappreið- arnar. Dýraverndunarfélag íslands. Skýrsla um áðalfund og starf stjórnarinnar síðastliðið ár. Aðalfundur félagsins var haldinn miðvikudaginn 12. marz, samkv. auglýsingu, sem birt hafði verið í dagblöðunum. Formaður félagsins setti fundinn og mintist látins félaga á starfsárinu: fyrrum bankastjóra Sighvatar Bjarnasonar, sem jafnframt hafði verið einn af stofn- endum félagsins. Tóku fundarmenn undir ])að með því að standa upp. Nokkurir nýir félagar bættust í hópinn. Gjaldkeri las upp endurskoðaða ársreikninga fé- lagsins, Tryggasjóðs og „Dýraverndarans". Voru þeir síðan bo'rnir undir atkvæði, allir i einu lagi, og sam- ])yktir. Ef til vill gefst tækifæri til þess síðar, að birta sumt úr reikningum þessum i blaðinu, lesend- um þess til fróðleiks. Skýrsla formanns. Þá gaf formaður skýrslu um starfscmi félagsins á milli aðalfunda, og birtist hér hrafl úr henni: „Haldnir voru á starfsárinu 25 stjórnarfundir, þar semm að rædd voru ýms mál, sem félagið varðar. — Auk ])ess hélt stjórnin fund með nemendum Kenn- araskólans skömmu áður en skólanum var sagt upp. Voru þar rædd ýms stefnumál félagsins, og um blað- ið og útbreiðslu þess. Sýndu nemendur skólans lofs- verðan áhuga á dýraverndun og hétu fylgi sínu við það mál, og lofuðu oð styðja að útbreiðslu blaðsins, þegar ])eir kænm til sinna heimkynna.* Ritstjóraskifti urðu við blað félagsins, eins og kunnugt er. Lét Grétar Ó. Fells af því starfi, en við tók Einar Þorkelsson, formaður Dýraverndunarfé- lagsins í Hafnarfirði. Hefir Einari farist ritstjórnin myndarlega, eins og vænta mátti. Þá hafa og orðið mannaskifti í ráðsmannsstöð- unni í Tungu. Sagði Stefán Pálmason starfi sínu lausu í fyrra vetur, en í stað hans réði stjórnin Odd Kristjánsson, ættaðan úr Dýrafirði. Tók hann við ráðsmannsstarfinu 1. maí, og virðist hann sérstaklega riákvæmur og góður skepnuhiröir. * Sjá 2. blað Dýravemdarans 1929, bls. 16.

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.