Dýraverndarinn - 01.03.1930, Side 20
14
DÝRAVERNDARINN
Á me'San síÖasta Alþingi sat á rökstólum, sótti
stjórnin um styrk til þingsins, félaginu til handa.
LyktaÖi því máli á þá lei'ð, a'ð Dýraverndunarfélagi
ísalnds var veittur 1800 króna styrkur í fjárlögum
1930.
Um aðra málaleitun, sem beint var til þingsins,
verður einnig að geta, þó að önnur yrSu þar mála-
lok, en búist var við. í samráði vi'ð Einar ritstjóra
Þorkelson sendi eg Alþingi frumvarp til laga um
vönun hesta, þar sem mælt var svo fyrir, að hesta
mætti ekki vana án þess a<5 svæfing væri viðhöf'ð.
Undirtektir þeirra þingmanna, sem eg átti tal við
um málið, voru hinar beztu, svo að eg gerði mér þá
þegar góðar vonir um skjóta afgreiðslu málsins. En
það komst aldrei lengra en til landbúnaðarnefndar
neðri deildar og sofnaði þar.* En að sjálfsögðu
verður ekki látið hér staðar numið, málið tekið upp
að nýju og sent til þingsins. Er þá vonandi, að Al-
þingi sjái því þann veg borgið, að allir dýravinir megi
vel við una.
Þá ræddi stjórnin um, að nauðsyn bæri til, að
styrkja mann til þess að ferðast austur um sýslur, og
jafnvel vestur á land, til þess að flytja þar fyrir-
lestra um dýraverndun, og ef kostur væri, að stofna
á þeim slóðum félög á svipuðum grundvelli og Dýra-
verndunarfélag fslands, en samhliða vinna að út-
breiðslu Dýraverndarans með því að afla blaðinu
nýrra kaupenda. Var Einar ritstjóri Þorkelsson val-
inn til fararinnar, og honum veittar í því skyni
300 krónur úr félagssjóði. Hefir Einar lofað að birta
skýrslu um ferðalag sitt og árangur þess í Dýra-
verndaranum.
Siðastliðið haust bárust stjórninni mjög alvarlegar
kvartanir um dúfur í bænum og nágrenni hans, sem
enga aðhlynningu hefðu, hvorki húsaskjól né matar-
björg, og ekki lægi annað fyrir en að veslast upp í
kuldum og hörkum komandi vetrar. Réði stjórnin
mann til þess að fara um bæinn og nágrennið og
reyna að handsama það sem hægt var af þessum
hirðulausu vesalingum, og um leið að'líta eftir með-
ferð á öðrum alifuglum hjá þeim, sem hafa þá und-
ir höndum. Var þetta gert með samþykki og í um-
boði lögreglustjóra. Verður ekki annað sagt, en að
árangurinn af þessari eftirgrenslan megi góður telj-
* Sjá frekari greinargerð ritstjórans í 4.—5. bl.
Dýraverndarans 1029, bls. 43—44.
ast, eftir atvikum, en það hefir haft dálítinn kostnað
í för með sér fyrir félagið.
Þá hafði stjórnin ekki allfá kærumál með höndum
um illa meðferð á dýrum. Er sumra þeirra að
nokkru getið í Dýraverndaranum, og því ekki ástæða
til að telja þau öll upp að þessu sinni. Aðeins skal
það tekið fram, að stjórnin leysti úr málum þessum
eftir föngum og á þann hátt, sem hún taldi bezt viS
eiga. Þó skal drepa lítilsháttar á eitt þessara mála:
í Alþýðublaðinu birtist í haust grein um illa með-
ferð á stóðhrossum, sem rekin voru úr Rangárvalla-
sýslu og hingað til bæjarins.* Var lýsingin á þessum
hrossarekstri þann veg, að stjórnin áleit sjálfsagt
að kæra yfir honum til yfirvaldanna og heimta rann-
sókn í málinu, og eftir atvikum, dóm í því. Kom
málið fyrst fyrir lögreglustjórann í Reykjavík, sem
hóf þegar að rannsaka það. Þeirri rannsókn lauk þó
skjótt, og sendi högreglustjóri málið rétta boðleið til
sýslumannsins í Rangárvallasýslu. Hann hélt einnig
rétt í málinu austur þar, sendi mér síðan málskjölin
og bréf með, þar sem hann fer þess á leit, að eg taki
kæruna aftur og að málið verði látið falla niður.
Réttarhald og vitnisburður viðkomandi manna var
á þann veg, að eg taldi með öllu ástæðulaust að verða
við tilmælum sýslumanns. Sendi eg því málskjölin
og bréfið til dómsmálaráðuneytisins til frekari úr-
lausnar og veit ekki hvar því er komið nú, eða hver
endalok þess muni verða.
Að lokum vil eg aðeins drepa lauslega á lang-
stærsta og umsvifamesta málið, sem stjórnin hefir
haft með höndum síðastliðið ár, og er þó ekki að
fullu lokið enn; á eg þar við hinar margþættu lireyt-
ingar og umbætur, sem gerSar hafa verið á eign fé-
lagsins í Tungu. Þó sé eg ekki ástæðu til að skýra
það mál frekar nú fyrir fundinum, enda hefir verið
um ])að skrifað mjög rækilega í ýmsum blöðum bæj-
arins og verður siðar frá því skýrt nánar í Dýra-
verndaranum. Aðeins má taka það fram að endingu,
að allar þessar umbætur hafa mælst hvarvetna vel
fyrir.“
Skýrsla gjaldkera.
Þá gaf gjaldkeri skýrslu yfir þau dýr, sem fóðruð
hafa verið og geymd í verndarstöðinni i Tungu síð-
ari helming starfsársins.
* Grein þessi var tekin orðrétt upp í siðasta blað
Dýraverndarans og fylgir henni aths. ritstjórans.