Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1931, Side 16

Dýraverndarinn - 01.05.1931, Side 16
42 DÝRAVERNDARINN úr hlöÖunni; þaíS fór hún alt af sjálf, þcgar hún hafði étið nægju sína úr stálinu. Þótti sumum, er sáu, það vera með ólikindum gert, að ær komin fast að burði. færi ]iað jafn léttilega up]) og ofan. ]iví að all-hátt var niður i hlöðuna og mundi, í flestum tilfellum, hafa verið talið sauðhelt upp úr henni. Vor eitt hélt Prýði uppteknum hætti fast að sauð- hurði. Þá mun hún hafa verið 7 eða 8 vetra. En svo var það dag einn, að hún kom ekki heim, og varð eg hennar heldur ekki var í kringum túnið, ]>ar sem þó að allmargar ær mínar héldu sig. Taldi eg þá vist. að hún hefði rásað eitthvað út í hraun til þess að bera, og fór þvi næsta dag út i svonefnd- an Hrúthaga, en þangað er stundargangur að heiman. Bjóst eg helzt við, að þangað hefði Prýði leitað, enda átti eg fleira fé þar, sem eg þurfti að svip- ast eftir. í Hrúthaga er haglendi ágætt, og sækir þangað mjög heimavant fé, en hættur eru þar mikl- ar, vegna holgryf julækja og dýja, svo að varhuga- vert ])ykir að hafa þar lamhfé á vorum. Ekki hafði eg lengi leitað um Hrúthagann, er eg fann Prýði horna, en hurðurinn var ekki eins skemti- legur og venjulega, því að lambið var slagaveikt, eða hafði svonefnda mænusótt, og lá það upp í loft niðri í keldudragi, sem var þó ekki dýpra en svo, að höf- uðið var aðeins upp úr vatninu. Þarna lá lamhið, s])riklandi öllum öngum, og hefði vitanlega dáið hrátt. ef mig hefði ekki borið þar að, enda vóru þarna í kring margskonar hættur, svo að þær eru óvíða meiri eða verri, þar um slóðir. Eg tók lambið og bar það s])ölkorn, þangað, sem eg áleit því óhætt í bili, og reyndi svo þá læknisaðgerð, sem algeng var í ungdæmi minu i samskonar tilfellum: að taka neðan af dindli lambsins og láta dreyra úr. Skildi eg svo ána og lambið eftir, en hélt lengra áfram til þess að skygnast eftir öðru fé, og var eg að því fast að tveimur klukkustundum. Eg hafði hugsað mér að taka Prýði heim með mér, er eg kæmi til baka, en ]>egar á þær stöðvar kom, er eg skildi hana eftir, brá mér heldur en ekki í brún, ])vi að hvorugt var þar að sjá, hana eða lambiÖ. Eg leitaði svo ])arna aftur á bak og áfram og gat þó sízt skilið í þvi, að hún hefði farið sér að voða, þó að lambið hefði að likindum lent ein- hversstaðar ofan í. Að síðustu gaf eg svo upp leit- ina og rölti heim á leið. En þegar eg kom dálítið austur í hraunið, geng eg fram á Prýði i laut einni. Er hún þá þangað komin á alveg öruggan stað, með lambið sitt. En það er mér með öllu óskiljanlegt, enn þann dag í dag, hvernig henni hefir mátt tak- ast að koma lambinu jafn langa leið, og að sneiða hjá öllum þeim hættum, sem á vegi hennar urðu. Að visu var lamhið svo lítið farið að geta vafrað, en valt þó alt af um koll jafnharðan aftur. En þarna í lautinni áleit Prýði lambinu óhætt, og ])egar eg kom þangað, stóð hún yfir þvi sigrí hrósandi, og var að reyna að koma því á spenann. Leyndi sér ekki ástúð og umhvggjusemi móðurinnar vegna litla aumingjans, er svo var veikburða. Eg þóttist sjá og finna með sjálfum mér, að ef lambinu væri líft, mundi þvi óhætt og hvergi betur borgið en í umsjá móðurinnar. Lét eg Prýði þvi vera þar sem hún var komin, og daginn eftir, er eg vitjaði hennar, var hún enn á sama stað og lambið hressara að sjá. Fór svo lambið að smástyrkjast, og lifði til hausts- ins, en þótti ekki á vetur setjandi, enda var það eina gimbrarlamhið sem eg lógaði undan Prýði þau ár, sem eg átti hana. Prýði lógaði eg haustið eftir að eg flutti frá Mið- húsum. Var hún þá 10 vetra og hefði eflaust getaÖ lifað lengur, ])ví að engin ellimörk vórti komin á hana. En eg bjóst við, að hún mundi aldrei kunna við sig á Stóra-Fljóti, eftir að hafa lifað öll sín heztu ár á Miðhúsum. Þórður Kárason, Stóra-Fljóti. Úr endurminningum InRunnar Pálsdóttur frá Akri. I. Það er ágætt, að í Dýraverndaranum birtizt alls konar sögur af dýrum, sem sýna vitsmuni ])eirra og trygð í garð ])eirra manna, sem breyta vel við þau, og gera sér far um að skilja þau. En eg held, að einnig sé nauðsynlegt, að karlar og konur, sem reynslu hafa fyrir sér um góða meðferð dýra, sendi blaðinu greinar um ])að efni. Má ætla, að reynsla slíkra manna geti orðið öðrum til eftirbreytni og stuðli að bættri meðferð húsdýra okkar, svo að' þeim verði sýnd meiri nærgætni og hlýja í allri umgengni. Oft er það smáræði eitt, sem gera þarf til þess að dýrun-

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.