Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1931, Side 17

Dýraverndarinn - 01.05.1931, Side 17
DÝRAVERNDARINN 43 um lí'Öi betur. i því sambandi dettur mér í hug svo- kölluÖ „beizla-saga“ frá Akri. Eg á bróÖir i Kaupmannahöfn, sem var og er, ein- stakur dýravinur. Hann er lögfræöingur og embættis- maÖur þar í borginni. Á námsárum sínum skrifaÖi hann okkur oft um hitt og þetta, sem hann hafÖi uppgötvaÖ til þess aÖ bæta á ýmsan hátt meÖferÖ dýra. T. d. mintist hann einu sinni á þaÖ i bréfum sínum, aÖ óþolandi væri að láta freðin járnmél upp i hesta. Það yrði að þiða mélin áður. Upp frá því var þess vaudlega gætt á Akri, að þíða mélin, áÖur en hesturinn var beizlaður. Vetrarkveld eitt um háttatíma, i hríð og írosti, kom langferðamaður meÖ fjóra hesta aÖ Akri, til foreldra minna, og baÖst gistingar. Hann þurfti mjög að hraÖa ferð sinni og varð aÖ vera ferðbúinn um miðjan morgun næsta dag. Eóstursonur foreldra minna, Ólafur, fór meÖ manninum aÖ koma hestun- um fyrir og gefa þeim, en gleymdi aÖ halda á beizl- unum beim meÖ sér. Þegar allir vóru háttaðir, nema eg og önnur stúlka, sem vórum eitthvað að dunda i eldhúsinu, tók eg eftir því, að beizlin vóru ekki hjá eldavélinni, en þar var siður að geyma beizli ferÖamanna yfir nóttina, þegar mikið frost var. Eg réðst þá í að sækja beizlin, þó að veðrið væri vont. Morguninn eftir fara þeir Ólafur og gesturinn til hestanna, en þykir undarlega við bregða, þegar beizl- in eru ekki þar sem þeir létu þau. Um sama leyti og þeir eru að æðrast og leita, kom eg út úr bæjar- dyrunum, kalla til þeirra og veifa beizlakippunni. Þegar svo gesturinn kveður mig, segist hann mega til með að fá að vita, hvað eg hafi gert við beizlin. Því kvað eg fljótsvarað, eg hefði aðeins verið að þíÖa freðin járnmélin. Hann varð dálítið hissa við og lét Jiess getið, að hann hefði ekki athugað þetta áÖur, né heyrt það nefnt, en gæti þó vel skilið, aÖ hestunum væri þetta betra. Eg sagði ])á eitthvað á ])á leið, að hann væri vis til, að borga foreldrum mín- um næturgreiðann og okkur Ólafi fyrirhöfnina, meÖ því að taka upp þennan sið, og fá aðra til þess líka. Tók gesturinn þessu vel og hét því þá að verða við þessari ósk minni, og hann efndi það líka vel og trúlega. Löngu síðar, ]>egar fundum okkar bar saman, trúði hann mér fyrir þvi, að þetta litla atvik liefði orðið ])ess valdandi, að hann hefði farið að luigsa af meiri alvöru um vellíðan dýra, og reynt á ýmsan hátt að gera ser betur ljóst, hvað þeim væri fyrir beztu, og sýna þeim meiri nærgætni og betra atlæti. II. Annað dæmi ætla eg að tilgreina, þó að einhverj- um kunni að finnast það óþarflega langt sótt aftur í tímann. Foreldrar minir vóru einstakir dýravinir og að ýmsu leyti langt á undan sínum tíma i þvi efni. í öndverðum búskap þeirra var farið að reka sauð- fé til slátrunar á Skagaströnd. Reyndist þá miklum örðugleikum bundið, að koma þangað fénu langt að úr sýslunni, yíir öll þau óbrúuðu vatnsföll, sem vóru á leiðinni. Þegar svo á aftökustaðinn kom, var allur útbúnaður, slátruninni viðkomandi, mjög af vanefnum gerður; fjárréttin gisnar grindur og horfði féð á blóðbaðið úti fyrir. Foreldrar mínir þóttust sannfærð um það, að skepn unum liði illa i réttinni, væru kvíðnar og hræddar við að horfa upp á það, sem fram færi á blóðvellin- um úti fyrir. Tók móðir mín sig þá til og breiddi á grindurnar, sem vissu út að blóðvellinum. Hafði hún með sér að heiinan ábreiður í þessu skyni, en fékk til viðbótar lánaða poka og annað, sem fyrir hendi var. Þóttist hún þegar verða þess vör, að skepnurnar urðu miklu rólegri í réttinni, er þær sáu ekki út á blóðvöllinn. Siðar reis upp verzlun á Blönduósi, og var þá verzlunarstjóri við Höpfnersverzlun þar, Friðrik Möller, greindur maður og aðgætinn um margt. Frá Akri og öðrum bæjum, nær og fjær, var þá sauðfé rekið til slátrunar á Blönduósi. Var fjárréttin þar i fyrstu gisnar grindur, eins og á Skagaströnd. En móðir mín hélt sinni venju, að breiða á þær, svo að ekki sæist út á blóðvöllinn. Eitt sinn kom Möller verzlunarstjóri þar að, er móðir mín var að breiða á grindurnar og spyr, hvers vegna hún geri það. Hún gefur honum þau svör, að fénu i réttinni liði svo illa, að þurfa að horfa upp á það, sem fram fari á blóðvellinum. Verzlun- arstjóranum ])ótti svarið undarlegt, og lét þau orð falla, að hann hefði haldið að sauðkindin væri til- finningarlaus fyrir slíku, og hefði ekkert vit á hvað verið væri að gera. En þá sárnaði móður minni og hefir vist sitthvað sagt, málstað sínurn til varnar. Að lokum benti hún verzlunarstjóranum á inórauð-

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.