Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1940, Page 10

Dýraverndarinn - 01.12.1940, Page 10
;o DÝRAVERNDARINN undir Ógöngufjalli, út aS Hellisflös, sem er forvaði undir norSurhorni Litlufjörutorfu. Þá tekur vi’ð Hellisvík og StóraurS, milli víkurinnar og ForvaSa. Sæta verSur sjávarföllum til a’S fara þessa lei'S, einkanlega ef brimrót er, sem oftast er nieira en litiS á haustin. Þá vakir norSaustan áttin úti í hafinu og sendir sífelt kveSju sina ströndinni. Önnur leiS í Torfuna frá Björgum liggur upp i Bæjarfjall, urn ÓgöngufjalliS, upp i SkarS um SkarSsmýrar, norSur Kotamýradal vestan viS Bak- ranga, sem er vesturhlíS Ógöngufjalls og aS Purk- árbrú, þar sem uppgangan hefst í Litlufjörutorfu. Þessi vegalengd frá Björgum nemur fjögurra tima gangi, í góSu færi, en hin leiSin er helmingi fljót- farnari, einkanlega ef riSiS er frá bænum út undir Torfuna. Nú var þaS ráS notaS og ferSin miSuS viS fjöru, enda brimgangur viS forvaSana. Roskinn rakki er á Björgum, Snati aS nafni, ef eg man rétt. Kom þangaS af refilstigum. eins og Gangleri forSum og Gestumblindi, var hirtur og trygSur aS fólkinu. Nú varS tilrætt um þaS, aS rakkinn, sem er rosk- inn, mundi eigi duga i þessari svaSilför. Snjór var kominn í TorfnskriSurnar og á Kotadalinn, sem hlaSist gat á lappir rakkans og gert hann farlama. Og var þaS ráS tekið, aS loka hundinn inni og hamla honum á þann hátt frá því, aS elta gangnamennina. Nú segir eigi af ferS fjárleitarmannanna — sem voru tveir -— annaS en þaS, aS þeir stikluSu í brimi fyrir Hellisflös og ForvaSa. En þegar þeir komu aS Purká (Svíná), mætir Snati þeim. Hann hefir hlaupiS efri leiSina og tekiS viturlegt ráS: losnaS viS a'S lenda í flóSi og brimi, sem leiSin um fjör- urnar, fyrir forvaSana, hafSi aS bjóSa. Hundinum var slept út, þegar svo langur tími var liSinn frá brottför gngnamannanna frá Björgum, aS örugt þótti, aS hundurinn hefSi ekki veSur af þeim. Ef hann hefSi hlaupiS í spor þeirra, myndi hann hafa lent í brimróti. Svo virSist, sem hann liafi skynjaS þetta, og lagt á fjalliS, til þess aS hafa þurt og fast undir fótum. En hvernig vissi hann, aS mennirnir ætluSu i Jtessa ferS? ÞaS gat hann ekki vitaS öSrn vísi en af umtali fólksins. Ef rakkinn hefSi hlaupiS í snor hestanna, sem gangnamennirnir riSu út undir Hellisflös og rekiS sig þar á brimgarSinn, snúiS viS og hlaupiS heim að bæ og þaSan fjallveginn, gat hann meS engu móti veriS svo fljótur, aS mætt gæti mönnunum vi'S Bakrangasporðinn, þar sem fjöruleiSin og Kota- dalsvegleysan koma saman. Heima þar aS Björgum var rætt um ferSina fyrir- huguSu á ýmsar lundir, t. d. útbúnaS mannanna. MaSurinn frá mínu heimili lét þess t. d. getiS viS foreldra unglings, sent þau lögSu til í ferSina, og búinn var gúmmískóm, að óstætt mundi á þeint í krapinu, sem falliS var á urðir og hrapstigu þá, sem klifa varS til Torfunnar og úr henni. ÞaS reyndist rétt. Sveinninn varS aS taka af sér skóna og ganga á sokkaleistum, sem svo voru vel gerSir, aS þeir dugSu. Þeir voru búnir broddstöfum, sem þeir riSu á af egginni ofan i Torfuna, — því líkt sem Þorgeir gerSi Hávarsson, þegar hann rendi sér niSur hjarnbrekkuna aS Butralda og frá er sagt í FóstbræSrasögu. 17 kindur voru í Torfunni og rak þar lestina fullorSinn hrútur, sem torvelt var aS koma upp, og gapti hann af mæSi. Menn eru tregir til þessarar farar og þarf fót- fima menn og höfuSstyrka til aS fara á þessa flug- stigu. Hengiflug, á annaS þúsund feta hátt, er niS- ur í flæSarmál frá egginni, og leita sauSkindurnar þar undan brekkuöxlinni, og er þar jafn auSveld leiS til Heljar: niSur i Torfuna og á hinn bóginn niSur í flæSarmál. í þetta sinn voru gangnamennirnir í förinni 7 klukkustundir, — þeir Njáll FriSbjarnarson og Grímur Sigurbjarnarson. 1 Læt eg svo þessari frásögu lokiS. 8. okt. '40. Guðmundur Friðjónsson.

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.