Dýraverndarinn - 01.12.1940, Blaðsíða 11
DYRAVERNDARINN
n
skepna. Sóti er hesta mestur vexti, 56 þuml. á hæ8,
fallega vaxinn og glæsilegur, svarar sér vel, prúöur
á fax og tagl, sótrauöur aö lit, eins og nafniö bendir
til. Hann er rnikill fjörhestur, skapþungur nokkuö
og ofsafenginn, en ljúfur og góöur i skiftum viö
eiganda sinn. Fer löngum vel á meö þeim Siguröi,
en ekki mun öllum hent viö hann aö kljást og þó
síst, ef beita vilja ofríki. Hann er skörungur aö
öllu og snillingur, hefir allan gang, annálaöur tölt-
ari og skeiðvargur. — Á annari myndinnj situr eig-
andinn á honum, en á hinni er hann laus og liöugur.
Sóti er vitur hestur og hefir þaö komiö í ljós meö
ýmsum hætti. Hefir Siguröur Gíslason i huga, aö
segja lesöndum Dýraverndarans fáeinar sögur af
honum viö tækifæri.
VerðlauFiakeppni.
Samkvæmt skipulagsskrá MINNINGARSJÓÐS
JÓNS ÓLAFSSONAR BANKASTJÓRA, veröa á
árinu 1941 veitt tvenn verðláun úr sjóönum, að upp-
hæð 50 krónur og 25 krónur, fyrir ritgerðir um
dýraverndunarmálefni. Þeir, sem keppa vilja um
veðlaun þessi, sendi ritstjóra Dýraverndarans rit-
gerðir sinar fyrir lok marsmánaðar 1941, einkendar
meö sérstöku merki, og fylgi nafn höfundar, ásamt
einkennismerki greinarinnar, í lokuöu umslagi.
Stjórn Dýraverndunarfélags íslands dæmir um rit-
geröirnar og ákveður hverjir hljóta skuli verö-*
launin.
Ritgeröirnar veröa birtar i Dýraverndaranum á
árinu 1941.
Stjórn Dýraverndunarfélags íslands.
Áheit á Dýraverndunarfélag íslands,
aflient Morgunblaöinu, frá 1. I’. og krökkum, að
upphæö kr. 16.00.
Meö þökkum meðtekið. 7. des. 1940.
Hjörtur Hansson.
Sóti er Skagfirðingur aö kyni, fæddur í Hofstaöa-
seli voriö 1926. Hann er ágætlega kynjaöur, kominn
í móöurætt af Hóla-Gránu Jóns Benediktssonar, er
mjög þótti ágæt á sinni tið, en i fööurætt af Reyk-
hóla-Brunku svo nefndri, er verið haföi snildar-
Sóti
Sigurðar Gíslasonar lögregluþjóns.