Dýraverndarinn - 01.11.1963, Blaðsíða 7
Bóndinn á Völlum gaf þeim vel. bar fyrir þær bæði
hey og mat, og nóg fengu þær vatnið. En honum
sást yfir það mikilvæga atriði að búa þær vel undir
þessar innistöður. Margar þeirra voru í tveimur
reyfum, og stíurnar þeirra voru blautar, þess ekki
gætt að bera nógu oft og vandlega undir þær; og
þegar lömbin fóru að stækka, lágu þau ofan á mæðr-
um sínum, bleyttu á þeim ullina og báru í hana
skít... Ullin á Golsu var kleprótt á lærunum, og
það var hörð skel af skít ofan á hryggnum á henni,
þar sem lömbin höfðu legið.
Svo leið þá Golsu illa — jafnvel eftir að hún
var komin út á nýgræðinginn.
Það liðu margir dagar, liðu vikur, — það var
komið fram í miðjan júní, og þá var Golsa ennþá
á eyrunum með fram ánni neðst í dalnum. Hún
hafði ekki enn lagt í að fara fram í heiðina. Lengst
hafði hún komizt fram á túnið á Brekku, eyðibýli,
sem er í miðjum dalnum. Þar héldu sig margar
lambær, þó að þar væri ekki miklu eftir að slægjast,
því að stóðið nagaði vorgróðurinn jafnóðum og
hann óx. Golsa sneri því við niður á eyrarnar aftur,
— hún vildi ekki bíta innan um hrossataðið á
túninu.
Oft hafði hún horft fram til heiðarinnar og nusað
á móti norðanandvaranum, sem bar með sér til
hennar ilm frá starartjörnunum í heiðinni hjá Gils-
árvötnunum, þar sem hún liafði gengið á sumrin,
allt frá því að hún var lamb. Æ, Golsa skildi ekki
í sjálfri sér, að hún skyldi dvelja ennþá hér neðra,
— hún hafði verið ákveðin í að halda rakleitt lil
heiðarinnar. en þegar hún var kornin fram á Brekku-
túnið, var eins og eitthvað héldi aftur af henni, og
svo sneri liún við.
VI %
Og núna — þetta fagra júníkvöld — var Golsu
líka svo einkennilega þungt um sporið, þegar hún
stóð upp og lötraði fram mýrarflákana. Hún fór
upp eftir, tók stefnu fyrir ofan túnið á Brekku.
Hún rölti jDetta hægt og bítandi, — lömbin rásuðu
stundum langt fram fyrir hana, hlupu og eltu hvort
annað, fóru í hringi kringum mömmu sína og
stukku svo allt í einu til hennar og fóru að sjúga.
Golsa stóð kyrr á gilbarmi. Fram undan henni
var girðing með þremur strengjum. Neðan úr gil-
inu heyrðist niðurinn í fjallalæknum. Litli mórauði
hrúturinn hennar Golsu var ekki lengi að fara und-
ORÐSENDING
frá afgreiðslu Dýraverndarans.
Nokkrir kaupendur Dýraverndarans eiga ennþá
eftir að borga blaðið, og eru menn vinsamlega beðn-
ir að gera það hið fyrsta. Póstkröfur liafa verið
sendar út um land, en í Reykjavík er innheimtu-
maður á ferðinni. Það tefur mjög innheimtu og af-
greiðslu blaðsins, hve margir kaupendur gleyma að
tilkynna breytingar á heimilisfangi.
Gjörið svo vel að senda slíkar tilkynningar til
afgreiðslunnar í pósthólf 993, Reykjavík, eða sím-
leiðis til undirritaðs.
Afgreiðsla Dýraverndarans á Hjarðarhaga 26 verð-
ur opin eftirleiðis á fimmtudögum kl. 14—18. Sími
Jtar er 12546, en heimasími afgreiðslumanns er
33621.
Ingimar Jóhannesson,
Laugarásvegi 47,
Reykjavík.
ir girðinguna; hann var ósköp forvitinn, vildi fá
að vita, hvað niðri í gilinu væri, og grábotnótta
gimburin fór strax á eftir honum. Og svo hurfu
jná lömbin langt ofan í gil.
Þá stóðst Golsa ekki mátið. Hún tróð sér undir
girðinguna og ætlaði að elta lömbin sín. Hún fann,
að gaddavírinn særði hana í bakið, en samt nudd-
aði hún sér áfram. Þá hrökk neðsti strengurinn í
sundur, og annar lausi endinn flæktist í þykkri ull-
inni. Golsa var komin fram fyrir girðinguna, en
samt sat hún rígföst. Hún heyrði til lambanna, og
hún streitlist við að losa sig. En Jrað varð einungis
til þess, að vírinn flæktist enn meir í ærið Jróf-
inni ullinni.
Golsa jarmaði hátt, krafsaði með öðrurn fram-
fætinum í moldarbarðið. Þarna var svolítið barð,
lítið eitt gróið, og svo brattur melur ofan að læknum.
DÝRAVERNDARINN
Útgcfandi: Samband dýraverndunarfélaga íslands. Ritstjóri:
(luðinundur Gíslason llagalín. Pósthólf 1342, Reykjavík.
Simi 18340. Verð blaðsins er kr. 50.00. Gjalddaginn 1. apríl.
Afgreiðsluinaður er Ingimar Jóliannesson, Laugarásvegi 47,
sími 33G21. Daglega er unnt að greiða hlaðið á Fræðslu-
málaskrifstofunni frá kl. 9—12 f. h, og er æskilegt, að
kaupendur komi þar sem flestir við og greiði andvirði
Dýravcrndarans. Simi er þar 18340.
Prcntsmiðjan Oddi h.f, Reykjavik.
DÝRAVERNDARINN
75