Dýraverndarinn - 01.11.1963, Blaðsíða 16
„Nú er lakgt til lijargar bÍessuð rjupan hvíta“
I rækilcgir veiðímeiin valda ójtaegiradum feilma íyrirliiiiir
Jónas Hallgrímsson hlaut ekki þegar í stað vin-
■sældir a£ ljóðum sínum nema hjá stöku mennta-
mönnum, og sum þau fegurstu af ljóðum hans voru
ekki metin að verðleikum fyrr en áratugum eftir
að liann var látinn. En víst er um það, að mjög
snemma varð vinsælt kvæði hans Óhræsið, um
gæðakonuna góðu, sem grípur íegin við, þegar rjúp-
an flýr á náðir herinar undan slagvængjum fálk-
ans. Þó er það sannast mála, að í þann tíð, sem
kvæðið gerist, var víða slík neyð á íslandi, að jafn-
vel ein rjúpa hefur verið sumum heimilum kær-
kominn fengur til að sjóða hana handa hungruðum
börnum, sem hefði jafnvel þótt soðið hinn dýrleg-
asti drykkur.
Nú er öðru til að dreifa. Nú þarf enginn að líða
hungurkvalir á íslandi, og vel er. Hins vegar er
rjúpan dýrt og mjög eftirsótt linossgæti, og ýmsir
hafa a£ því allmiklar tekjur, þegar mikið er a£ rjúpu,
að skjóta hana og selja. Loks eru svo þeir, sem fara
eingöngu á rjúpnaveiðar sér til gamans — eða scr
til hressingar. En víst er um það, að vel geta menn
skemmt sér við útivist í íslenzku fjallalofti og not-
ið hressingar, án þess að skjóta rjúpu, og margir
eru þeir, sem alls ekki geta hugsað sér að bana
hvorki rjúpu né öðrum dýrum sér til yndisauka!
En hvað sem líður gróðasjónarmiðum fuglafang-
ara eða yndisauka andlega fátækra sportveiðimanna,
mundi óhætt að segja, að ekki sé undarlegt, þótt
það veki ærna athygli, þegar státnir sportmenn
leggja af stað í gljáreið sinni, búnir sínum dýru
skotvopnum, og ganga síðan til hinna frækilegu veiða
a£ slíku fyrirhyggju- og gáleysi, að áður en varir eru
þeir orðnir villtir, hafa týnt farkosti sínurn og far-
angri og ráfa síðan eins og vankakindur sitt á hvað,
unz þeir að lokum finnast þrotnir að líkamskröft-
um og andlega aumir, — og þá hetur verið svo
mikið við haft að láta símabjöllur gjalla og útvarp
duna til útboðs heilum lier leitarmanna, fjöldi bif-
reiða stendur búinn til farar og flugvélar innlendar
og erlendar.
Það vakti menn til mikillar íhugunar um for-
sjárlaust ferðaflan, þegar sérleikadintir gamallar
konu ollu tugþúsunda kostnaði, óskaplegum um-
svifum og ærinni fyrirhöfn nú fyrir tæpu misseri,
en væri ekki enn frekar tilefni til slíkrar umhugs-
unar, þegar það ber til, sem lýst er hér að framan?
Er ekki kominn tími til að löggjafinn skerist hér
í leikinn? Auðvitað verður að gera allt, sem unnt
er, hvað sem það kostar, til að bjarga nauðulega
stöddum mönnum, en hins vegar væri ef til vill
ástæða til að láta fara fram á því rannsókn, hve
mjög gáleysi og kæruleysi hefur átt sök á vandanum
og síðan láta þá, sem sekir teljast um slíkt, sæta
nokkurri ábyrgð, ekki greiða allan kostnaðinn og
fyrirhöfnina, sem þeir liafa valdið, en sektir, sem
væru það háar, að menn hugsuðu sig um það tvisv-
ar, þegar þeir ækju úr garði lítilla erinda, hvort
svo væri nú í pottinn búið, að yndisaukinn mundi
borga sig?
Kaupmenn, kaupfélög
Enn sem fyri' höfum vér til sölu úrvals ilmvötn
og kölnarvötn frá
Frakklandi, Englandi, Spáni, Vestur-
I*ýzkalandi, U.S.A., Tékkóslóvakíu, i
llússlandi, Ilanmörku, Austur-I>ýzka-
landi, Monaco og Sviss.
Ennfremur eru ávallt fyrirliggjandi ýmsar tegund-
ir af rakspiritus, hárvötnum og andlitsvötnum.
GERIÐ JÓLAI’ANTANIRNAR TÍMANLEGA.
Áfengis- og fóbaksverzlun
ríkisins
SKRIFSTOFUR: BORGARTÚNI 7
SÍMI: 2 42 80. /
Afgreiðslutimi frá kl. 9—12.30 og 1—16,
nema laugardaga kl. 9—12. i
—------------------—------------------—
8-1
D Ý R A V E R N D A RIN N