Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1972, Blaðsíða 8

Dýraverndarinn - 01.09.1972, Blaðsíða 8
Hreindýr í Sœdýrasafninu. Þegar burðurinn hefst á vorin, hverfa tarfarnir frá hjörðinni nema þeir ársgömlu, sem fylgjast með aðal- hjörðinni sumarlangt. Með stjórn þessarar hjarðar fer vanalega gömul geldkýr, og stjórnar hún sínum þegn- um af ráðvendni og reynslu. Meðgöngutími kúnna er 8 mánuðir og fæðast kálfarnir frá apríllokum og út júnímánuð. Það er óvanalegt, að hver kýr fæði meira en einn kálf. Hann getur fljótlega gengið og fylgt hjörðinni eftir. Það vekur furðu, að kýrnar leita ávallt á sama staðinn ár eftir ár til burðar og er sá staður valinn þannig, að þær verði fyrir sem minnstri áreitni og fái sem mesta ró. Kálfarnir eru svo á spena fram til haustsins og verða kynþroska á hálfu öðru ári. Utbreiðsla hreindýranna er oftast bundin heim- skautahéruðum, en þó hafa þau frá alda öðli fundizt á Hardangervidda í Suður-Noregi, og þar hafa fund- izt merkar leifar steinaldarmanna, sem sýna, að hrein- dýr hafa verið aðalfæða þeirra og allt þeirra líf hefur raunverulega byggzt á þessari þarfaskepnu. I því sam- bandi hafa fundizt víða dýragryfjur, sem dýrin voru rekin niður í og þeim síðan slátrað. Staða þessara gryfja sýnir, að jafnvel á þessum tímum hefur mann- skepnan kynnt sér háttu dýranna og hagað veiðum sínum þar eftir. Lappar, sem búa í nyrztu héruðum Noregs, Svíþjóðar, Rússlands og Finnlands, fá allt af þessum dýrum, bæði fæði og skæði, þótt nú á tímum sé hreindýrahald á þessum slóðum meira rekið sem aukaatvinnugrein. A þeirri forsendu, að hreindýr gætu orðið okkur Islendingum að sama gagni, voru þau flutt hingað til Hreindýr eru félags- lynd og sfást yfirleitt fleiri saman. 50 DYRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.