Alþýðumaðurinn - 21.12.1956, Page 1
XXVI. árg.
Föstudagur 21. desember 1956
39. tbl.
Þáttaskil í íslenzkum stjórnmálum:
Þegar hefir verið samið við úfvegsmenn um
rekstrargrundvöll útgerðarinnar, við sjómenn á
bótaflotanum um kjör þeirra og aflað hefir verið
samþykkis samtaka verkalýðs og bænda við fyrir-
hugaðar aðgerðir í efnahagsmólunum.
Eitt hið mikilvægasta við þær
nýju efnaliagsráðstafanir, sem
ríkisstjórnin hefir nú lagt fyrir
alþingi og ætla má að verði sam-
þykktar nú í vikunni, er það, að
náðst hefir samningur við fram-
leiðslustéttirnar, sem tryggir at-
vinnuöryggið í landinu. Samkomu
lag hefir náðst um ráðstafanir
við • heildarsamtök hænda og
verkamanna og stuðningur þess-
ara samtaka þannig tryggður við
þær. Þegar fyrir jól, og án þess
að til nokkurra stöðvana hafi
lcomið, hefir verið samið við
bátaútvegsmenn, togaraeigendur
og þá, sem reka verkunarstöðvar,
um rekstursgrundvöll fyrir næsta
ár. Og við sjómenn á bátaflotan-
um og togurunum hefir verið
sarnið um kjör þeirra á komandi
vertíð.
Þetta eru ein merkilegustu tíð-
indin, sem gerzt hafa lengi í
efnahagsmálum þjóðarinnar, því
að undanfarin ár hafa milljónir
verðmæta farið í súginn vegna
þess hve seint hefir verið samið
um þessi mál árlega, og nægir
hér að minna á, að bátaflotinn
var stöðvaður í fyrra allan janú-
armánuð, meðan útvegsmenn
voru að þrefa við þáverandi
sj ávarútvegsmálaráðherra, Ólaf
Thors, um rekstursgrundvöll út-
vegsins þá.
Vegna þess að samþykki verka-
lýðs og bænda hefir og fengizt
fyrir ráðstöfunum, er vinnufrið-
ur tryggður og verðlag landbún-
aðarvara fundið jafnvægi, og er
þetta hvorttveggja ómetanlegt fyr-
ir stjórnarvöldin, eigi síður en
allan almenning.
Tekjuöflunin.
Eis og allir vita, tók núverandi
ríkisstjórn við ægilegum skulda-
víxlum frá fyrrverandi ríkis-
stjórn. Nægir þar að nefna upp-
hætur á síldina í sumar, er lofað
var, en ekkert fé var til fyrir.
Skipta þær tugum milljóna. —
Margt fleira má nefna og ekki
sízt hina stórhækkuðu verðbólgu,
er sú stjórn leiddi af sér. Til þess
að tryggja atvinnurekstur lands-
manna, sérstaklega útflutninginn,
greiða skuldavíxlana og afla fjár
til nauðsynlegra framkvæmda
varð ríkisstj órn sú, er nú situr, að
grípa til stórfelldra ráðstafana,
annað hvort gengisíellingar ella
skattahækkana og hækkaðra á-
laga í annarri mynd. Hefir síðari
leiðin orðið fyrir valinu og flokk-
ast liinar nýju álögur ríkisins í
meginatriðum á þessa leið:
I
Neyzluskattur.
I Meginhlutinn af hinum nýju
tekjum er lagður á vöruinnflutn-
ing, og er upphæð þeirra áætluð
ca. 150 milljónir króna. Hefir
I ríkisstj órnin í samráði við verk-
' lýðsfélögin reynt að hlífa almenn-
ustu nauðsynjum við skattheimtu
og leggja lágt gjald á ýmsar al-
gengustu nauðsynjavörur, gagn- j
l legustu vefaðarvörur og bygging-
arvörur. Fer álagið síðan stig-1
hækkandi og er hæst lagt á báta-
1 gjaldeyrisvörur og lúxusvarning.
iHvernig gj aldeyrisheimtan skipt-
I ist í megindráttum má sjá af eftir-
íarandi yfirliti:
36% af innfl. ber ekkert gjald
10% — — — 8%
34% _ _ — 11%
4% — — — 35%
11% — — — 55%
1% 70%
4% — — — 80%
vextir af lánum, kostnaður vegna
skipa og flugvéla erlendis. Hefur
þessi gjaldeyrisnotkun numið
3—400 milljónum á ári að undan
förnu.
Eðncðarvörur.
Þá er ákveðið með lögunum að
leggja á innlenda framleiðslu og
þjónustu gjald, sem nemur sam-
tals um 20 milljónum króna. Af
innlendum tollvörum, þ. e. sæl-
gæti, gosdrykkjum o. þ. h., skal
taka 5,5 millj. kr. aukagjald. Sam
tals nemur þessi upphæð rúmum
25 milljónum króna.
Bifreiðar og
ferðagjaldeyrir.
Þá er ákveðið að hækka enn
leyfisgjald á bifreiðum og ferða-
gjaldeyri, og nemur sú upphæð
sem þannig á að taka tæpum 12
milljónum króna. Verður nú tek-
ið 160% gjald af bifreiðum og
60% álag á ferðagjaldeyri í stað
25% álags áður.
Bankarnir.
Þá er nú í fyrsta skipti tekið
af gróða bankanna til stuðnings
framleiðslunni. Á skatturinn af
bönkunum að nema 10 milljónum
króna.
Sfóreigrtaskaffur.
Ríkisstjórnin hefir ákveðið að
leggja á stóreignaskatt, sem fyrst
og fremst á að taka kúfinn af
verðbólgugróða braskaranna í
Reykjavík. Á skatturinn að nema
a. m. k. 80 milljónum króna, og
a. m. k. 15 milljónir verða inn-
Ríkisstjórnin boðar nýja lög-
gjöf til að styðja efnahags-
aðgerðir sínar
Lækkun á ófagningu milliliða, lög um sfóreigna-
skaft-, endurskipulagningu fisksölu og bankamóla,
aukinn skaftfródróffur ó lógtekjur.
Jafnhliða því, sem ríkisstjórnin ákvað að beita sér fyrir efnahags-
ráðstöfunum þeim, sem felast í frv. hennar, er nú er fyrir alþingi,
samþykkti hún að hafa frumkvæði að eftirtöldum ráðstöfunum, sem
miða skulu að því að styðja þessar aðgerðir og stuðla að því, að
þær nái tilgangi sínum:
Frv. um eftirtalin efni lögð fyr-
ir Alþingi:
1. Skatt á stóreignamyndun. Inn-
stæður í lánsstofnunum og inn-
lánsdeildum sem og opinber
verðbréf verða undanþegin
skattinum. Skattálagningin
miðist við, að skatturinn nemi
a.m.k. 80 millj. kr., sem greið-
ist að nokkru við álagningu,
en að öðru leyti á nokkrum ár-
um. (
2. Lækkun tekjuskatts af lágum
tekjum.
3. Aukinn skattfrádráttur fyrir
fjölskyldumenn.
4. Endurskipulagning fisksölunn-
ar til útlanda.
5. Endurskipulagning bankamál-
ánna.
6. Húsaleiga.
Eftirfarandi verði og tryggt:
Álagning milliliða verður
lækkuð verulega.
Byggingarsjóði verkamanna
verður tryggt aukið fé.
Ilækkuð verði ræktunarfram-
lög til þeirra bænda, sem ekki
hafa náð tiltekinni túnastærð og
aukinn stuðningur við nýbýla-
stofnun og frumbýlinga.
Þrátt fyrir þessa stigbreytingu
á sköttunum legst hátt gjald á
ýmsar vörur sem eftirsóknarverð-
ar eru almenningi; má þar t. d.
nefna að rafknúin heimilistæki
lenda í flokki með lúxusvörum.
Duldar greiðslur.
Á lið þann, sem nefndur er
duldar greiðslur er lagt ca. 31
millj. kr. gjald. Er þarna um að
ræða gjaldeyrisgreiðslur til út-
landa, sem ekki fara fyrir vöru-
innflutning, t. d. afborganir og
heimtar á næsta ári og eru reikn-
aðar með í þessum ráðstöfunum.
Á þessi stóreignaskattur fyrst og
fremst að fara til framkvæmda í
húsnæðismálum. Innstæður í láns
stofnunum og innlánsdeildum og
opinber verðbréf verða undan-
þegin skattinum.
Hér er svo rétt að bæta við, að
bátagjaldeyrisfyrirkomulaginu á
að hætta, og sömuleiðis er sölu-
skattur af smásölu felldur niður.
Hvernig nota skal
íekjumor.
Hin auknu gjöld, sem lögð eru
á þjóðina eru hagnýtt sem hér
segir:
Aukin útgjöld vegna bátaúts-
vegins ca. 38 millj.
Aukin útgjöld vegna togara-
flotans ca. 38 millj.
Aukin útgjöld vegna fiskverk-
unarstöðva 9,5 millj.
Vegna skuldar framleiðslusjóðs
frá yfirstandandi ári 21 millj.
Vegna verðlækkunar á olíu og
yfirtöku á bátagjaldeyriskerfinu
37,5 millj.
Samtals vegna sj ávarútvegsins
144.3 mill.
Aukin greiðsla vegna útflutn-
ings á landbúnaðarafurðum ca.
20 millj.
Samtals vegna framleiðslunnar
164.3 millj.
■ Þá er gert ráð fyrir að afla rík-
issjóði aukinna tekna m. a. vegna
niðurgreiðslu á sex vísitölustig-
um, sem ekki komu til fram-
kvæmda í hækkuðu landbúnaðar-
verði sl. haust (samtals 24 mill-
jónir) og vegna ýmissa verklegra
framkvæmda, atvinnujöfnunar o.
fl. samtals ca. 75 millj.
AIls 239,3 millj.
Vegna þess að hætta á báta-
gj aldeyrisfyrirkomulaginu, koma
útflutningsuppbætur í staðinn og
styrkur til togaranna er liækkað-
ur, nema þegar þeir sigla á út-
lönd, þá lækkar hann nokkuð frá'
því sem nú er, og er það m. a.
gert til þess að ásókn verði minni
eftir því að sigla með aflann út
óunninn.
Þá eru uppbætur á útfluttar
landbúnaðarafurðir auknar, svo
að þær samsvari heildarhlunnind-
1 |
um þeim, er bátaútvegurinn nýt-
ur á þorskveiðum.
VINABÆRINN RAN-
DERS SENDIR
AKUREYRI JÓLATRÉ
Síðastliðinn laugardag var
kveikt á stóru og fögru jólatré,
sem sett hefir verið upp á Ráð-
hústorgi. Er tré þetta gjöf frá
vinabænum Randers í Danmörku.
Viðhafnarhátíð var engin, enda
ekki eftir því óskað, en Akurevr-
arbúar skilja og meta þann hlý-
hug, sem að baki þessari fögru
jólagjöf felst.
___*___
LAXÁRRAFU RMAGN
í HRÍSEY
Á sunnudaginn var fengu Hrís-
eyingar Laxárrafurmagnið til sín.
Var þá hleypt straumi á sæstreng
þann er tengir rafveitukerfi Hrís-
eyjar við rafveitukerfið á Ár-
skógsströnd, en það fær rafur-
magn sitt frá Laxá, svo sem
kunnugt er.
Þetta er í fyrsta sinn, er rafur-
magn er leitt um sæstreng hér-
lendis.
Hríseyingar fögnuðu þessum
merka áfanga í rafurmagnsmálum
sínum með fjölsóttri skemmtun.
___*___
Skyndihappdrættið.
Vinningsnúmerið í skyndihappdrætti
Alþýðuflokksfélags Akureyrar reyndist
nr. 189. Vinningsins, kr. 3000.00, vitj-
ist til Braga Sigurjónssonar.