Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 13.09.1960, Qupperneq 3

Alþýðumaðurinn - 13.09.1960, Qupperneq 3
Þriðjudagur 13. september 1960 ALÞÝÐUMAÐURINN 3 Höfum opnað útibú að Byggðaveg 92 andspænis Goða- byggð. Auk venjulegra nýlenduvara er þar á boðstólum mjólk og brauð, ýmsar kjöt- vörur og ólegg, tóbak, gosdrykkir og sæl- gasti. KaupféSog verkamanna Frá Gagnfræðaskólanuzn á Akureyri Að gefnu tilefni skal á það bent, að öll þau börn, er fullnaðarprófi luku frá Barnaskólanum á Akureyri síðastliðið vor, skulu skrásett til framhaldancfi skyldunáms, og fer sú skrásetning jram á vegum Gagn- frœðaskólans hér, hvort sem börnin haja í hyggju að Ijúka skyldunámi sínu í jieim skóla eða annars staðar. Að þessu sinni fer skrásetning nýnema samkvæmt ofansögðu fram í skrifstofu minni í skólahúsinu (sími 2398), dagana 14.—16. sept. nk. (þ. e. miðvikudag, fimmtudag og föstudag) kl. 4—7 síðdegis alla dag- ana. Nauðsynlegt er, að allir fyrrgreindir nemendur, — eða forráðamenn þeirra -— mæti á þessum tímum til viðtals. Sama gildir og um skólaskylda unglinga, sem kunna að hafa flutzt í bæinn á þessu ári, enda hafi þeir með sér skírteini sín um fullnaðar- próf úr barnaskóla. — Eldri nemendur, er óska að ráðgast við mig um framhaldsnám sitt í Gagnfræðaskóla Akureyrar, eru hins vegar beðnir að hafa tal af mér á sama stað laugardaginn 17. sept. nk. kl. 4—6 síðd. Samkvæmt auglýsingu fræðsluráðs, er væntanlega mun birt í bæjar- blöðunum samtímis tilkynningu þessari, munu eyðublöð undir beiðnir um undanþágur frá skólaskyldu, þegar sérstaklega stendur á, liggja frammi hjá mér á.sama stað og tímum, er að ofan greinir, til útfylling- ar og undirskriftar jorráðamanna þeirra unglinga, sem slíkrar undan- þágu kunna að óska, enda mun aðstoð veitt, við útfyllingu þessara skil- ríkja, ef þess verður óskað. Akureyri, 12. september 1960. Jóhann Frímann, skólastjóri. KKSOOCKMKHKMHMHMKMHKNN Sendisvein vantar á landssímastöðina nú þegar. SÍMASTJÓRI. Síitiasikráin Ákveðið er að prentuð verði ný símaskrá í byrjun næsta árs. Allar breytingar við skrána óskast sendar skriflega í skrif- stofu mína fyrir 20. þ. m. Símastjórinn. Islenzkt grasmjöl framleitt að ári? Ráðagerðir eru. uppi um að. hefja stórfellda grasmjölsvinnslu • hér á landi, og stendur til að koma upp verksmiðju til framleiðslunn-' ar suður á Rangárvöllum. Það er! Samband íslenzkra samvinnufé- laga, sem gengst fyrir þessum framkvœmdum, en Jean Fontenay, '• búnaðarráðunautur, hefir annazt undirbúning í sumar og mun hafa forstöðu fyrirtœkisins með hönd- um. Sambandið hefir leitað hóf- anna um kaup á allmiklu land- flæmi suður á Hvolsvelli. Land þetta er sunnan þjóðvegarins að j Hvolsvelli, slétt og mjög vel til ræktunar fallið. Er það að mestu í eigu Rangárvallasýslu, en nokk- ur hluti þess er úr landi jarðarinn- ar Vestri-Garðsauka. Ekki mun enn fullráðið um þessi kaup, enda hefir komið til orða að kaupa land til þessara framkvæmda ann- ars staðar á Rangárvöllum. Hefir Jean Fonteany dvalið með köflum í sumar í Rangárvallasýslu til að athuga landgæði, og munu þau vera mjög svipuð á báðum stöð- unum. Gott hróefni. Verði úr þessum framkvæmd- um má ætla að hafin verði fram- leiðsla grasmjöls í stórum stíl, og komið upp verksmiðju til fram- leiðslunnar þar syðra. Grasmjölið er fergt í töflur og notað í fóður- bæti, og má geta þess að íslenzka grasið er talið mjög gott til fram- leiðslu sem þessarar. ÞRJÁR UMSÓKNIR Til þessa liafa horizt þrjár um- sóknir um prestsembætti það, sem laust er hér á Akureyri. Umsækj- endurnir eru Sigurður Haukur Guðjónsson, prestur á Hálsi, Birg- ir Snæbjörnsson, prestur í Lauf- ási, og Jón Hnefill Aðalsteinsson. Umsóknarfrestur er til 20. þ. m. KA vann sundmót Norðurlands Sundmót Norðurlands var hald- ið á Sauðárkróki fyrra laugardag og sunnudag. Mótið var sett af Guðjóni Ingimundarsynir, for- manni TJMSS, sem stjórnaði keppni. Til mótsins mættu keppendur frá þessum félögum: KA, Akur- eyri, 15 keppendur, Þór Akureyri 4, Leiftri Ólafsfirði 3, Iléraðs- sambandi Þingeyinga 11 og Ung- mennasambandi Skagafjarðar 9. — Keppt var í öllum greinum sunds í flokkum karla og kvenna, drengja og telpna. Árangur móts- ins varð allgóður. Sérstaka at- hygli vakti skriðsundsafrek Rak- elar Kristj ánsdóttur frá Ólafs- firði. Synti hún 100 m. á 1:18.1 mín. og 50 m. skriðsund á 33.4 sek. Einnig var árangur Valgarðs Egilssonar frá HSÞ í 400 m. bringusundi eftirtektarverður; fór hann vegalengdina á 6:17.3 mín. Fiskiðjan á Sauðárkróki gaf bikar, sem keppt skal um á'Norð- urlands sundmóti og féll hann að TiSkymiiiig’ Vegna þrengsla á frystihúsi voru, verða engin matvæli tekin til geymslu utan hólfa fyrr en eftir 5. okt. næstk. FRYSTIHÚS KEA. þessu sinni í hlut KA. Stigatala félaganna í keppninni var þessi: KA 87, HSÞ 24, Leiftur 15, Þór 15, UMSS 7. Að lokinni keppni sátu gestirnir kaffiboð UMSS. ■ooooooooocooooocooooooo* Slátur Eins og undanfarin ár, selj- um við sláturafurðir á slát- urhúsinu á Oddeyri á kom- andi sláturtíð, en sendum slátrin ekki heim til kaup- enda. SLÁTURHÚS KEA. >sooocos>oo>ooooooooooooco> Aéiérun UM SKÓLASKYLDU O. FL. Að gefnu tilefni viljum vér benda forráðamönnum ungmenna hér í skólahverfinu á ákvæði gildandi laga um skólaskyldu allra barna og unglinga á aldrinum 7—15 ára, en þar er m. a. tekið fram, að heimilis■ faðir skólaskylds barns beri ábyrgð á, að það hljóti lögmæta fræðslu og sæki lögskipuð próf, enda varðar það dagsektum, ef barn kemur að á- stæðulausu ekki til innritunar í viðkomandi skóla, þegar það er skylt. Lögin gera þó ráð fyrir, að hægt sé að veita undanþágu frá skóla- skyldu, þegar sérstaklega stendur á, en að sjálfsögðu verður þá að sækja um slíkar undanþágur til fræðsluráðs í tæka tíð og hlíta úrskurði þess, hvort umsóknin skuli tekin til greina eða ekki. Vegna unglinga þeirra, er eiga samkv. framangreindum ákvæðum að sækja unglingadeildir framhaldsskólanna hér næsta skólaár, en telja sig hafa ástæðu til að æskja undanþágu frá þeirri skólaskyldu, höfum vér látið gera eyðublöð fyrir slíkar umsóknir, og munu þau liggja frammi til útfyllingar og undirskriftar lijá skólastjóra gagnfræðaskólans hér á þeim tímum, sem tilgreindir eru í auglýsingu hans um skrásetningu nýnema, og birtast mun í bæjarblöðunum samtímis aðvörun þessari. Þá viljum vér og í þessu sambandi benda atvinnurelcendum á þau ákvæði gildandi barnaverndarlaga, að stranglega er bannað að ráða skólaskyld börn eða unglinga til vinnu, t. d. í verksmiðjum og á skip- um, og mun þar þó einkum átt við þá árstíma, þegar skólarnir eru starf- andi, enda liafi engin undanþága verið veitt frá skólaskyldu. Virðist því sjálfsagt, þegar vafi kann að leika á um þetta, að atvinnurekendur krefjist skriflegra heimilda fyrir undanþágunni frá réttum aðiljum, áð- ur en ráðning fer fram. Vér teljum oss skylt að hlutast til um það með öllum tiltækum ráð- um, að framangreindum ákvæðum laga um skólaskyldu og barnavernd verði, nú og framvegis, framfylgt hér í skólahverfinu, ekki síður en tíðkast annars staðar á landinu. .. J Akureyri, 12. september 1960. Fræðsluróð Akureyrar. Frá Tónlistarskóla Akureyrar Tónlistarskóli Akureyrar tekur til starfa 1. október næstk. Umsóknir um skólavist sendist skólastjóra, Jakob Tryggva- syni, Byggðaveg 101 A, sími 1533, fyrir 25. sept. — Eldri nemendur eru einnig beðnir að tilkynna áframhaldandi skóla- vist. Tónlistarbandalag Akureyrar. Skélifélk, itkiiii Höfum hentug og þægileg húsgögn fyrir ykkur, svo sem: SKRIFBORÐ STÓLA BÓKAHILLUR SVEFNBEKKI. Ver*l. AaHbjörk Geislagötu 5. — Sími 2420. Frá kartöHugeymsIum bæjarius Kartöflum verður veitt móttaka í Grófargili frá 15. sept. til 22. okt. nk. á þriðjudögum og föstudögum kl. 5—7 e.h. og verða afhentar eftir að móttöku lýkur á sömu dögum og sama tíma. Þeir, sem hafa haft geymsluhólf áður, verða að hafa greitt geymslugjald sitt fyrir 22. sept., annars verða hólfin leigð öðrum. Tekið verður á móti greiðslu fyrir hólfin í kartöflu- geymslunni alla virka daga frá 15.-—22. september kl. 5—7 eftir hádegi. Akureyri, 5. sept. 1960. Garðyrkjuráðurcautur bæjarins. Auglýsið í Alþýðumanninum

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.