Alþýðumaðurinn - 08.10.1963, Page 1
ALÞÝÐU
MADURINN
Shélarnír tcknir til storfo
Rúmlega 3500 nemendur í skólum bæjarins
Fundnr kjördœmísrdðs Alþýðuflokksins
í Rorðurlandskjördsmi eystru vottur
rdðherrum flokksins þnkkir tg traust
Hvetur til framhaldandi stjórnarsamstarfs
Skólar bæjarins hafa nú allir
verið settir nema Gagnfræðaskól-
inn, sem settur verður í dag. Nem-
endur allra hinna starfandi skóla
eru samtals um 3500—3550, og
hafa aldrei verið fleiri.
Menntaskólinn var settur að
venju 1. okt. Nemendur eru 420.
Tveir nýir fastir kennarar starfa
við skólann: Þórir Sigurðsson og
Eyjólfur Kolheins, og tveir nýir
stundakennarar: Helgi Hallgríms-
son og Jón Margeirsson. Sigurður
L. Pálsson hefur leyfi frá störfum
vegna veikinda.
Gagnfrœðaskólinn verður settur
kl. 2 í dag í Akureyrarkirkju.
Sverri Pálssyni hefur verið f'alin
skólastjórn hans í veikindafor-
föllum Jóhanns Frímanns. Nem-
endur verða um 630 í 24 bekkjar-
deildum. Tvær deildir skólans
verða til húsa í Oddeyrarskólan-
um. Björn Bjarman, Guðmundur
Mislitar fanir
eftir Kristin Reyr
Efni bókarinnar er safn af gam-
anvísum, revýusöngvum og skop-
kvæðum frá ýmsum tímum. —
Skiptist bókin í þrjá kafla, sem
heita: Kvartélaskiptastemmningar,
Keflavíkursöngvar og Kómíkur-
tímaspeglanir.
Kristinn Reyr birti um skeið
gamankveðskap sinn undir dul-
nefninu Fuglinn, svo sem í Spegl-
inum, Faxa og fleiri ritum. Er
þann kveðskap að finna í þessari
bók, en annað efni hennar hefur
hvergi birzt áður.
Mislitar Fanir eru sjötta bók
höfundar, en þær fyrri eru: Suð-
ur með sjó, Sólgull í skýjum,
Turnar við Torg, Teningum kast-
að, Minni og menn.
Mislitar fanir hafa að geyma 42
kvæði. Bókin er 112 blaðsíður,
prentuð í Alþýðuprentsmiðjunni
h.f. Myndamót: Litróf, bókband:
Félagsbókbandið. Höfundur gerði
kápu- og kaflateikningar.
Þorsteinsson, Héðinn Jónsson,
Jensína Jónsdóttir og Þórður
Gunnarsson hverfa sem kennarar
frá skólanum, en nýir fastakenn-
arar við skólann verða Jens
Sumarliðason, Gylfi Garðarsson,
Árni Óláfsson og Magnús Aðal-
björnsson, auk sex nýrra stunda-
kennara. Alls verða 37 kennarar
við skólann.
Barnaskóli Akureyrar var settur
1. okt. I skólanum eru í vetur um
800 börn. Bekkjardeildir eru 28.
Nýir kennarar eru Halldóra Þór-
hallsdóttir og Hulda Árnadóttir.
Handavinnu drengja kenna Þórð-
ur Friðbjarnarson og Jens Halse.
Oddeyrarskólinn var settur s.l.
laugardag. Þar eru um 350 börn
við nám í vetur, og skólahúsið
hefur nú allt verið tekið til notkun-
ar og umsjónarmaður ráðinn að
skólanum, Torfi Vilhjálmsson.
Glerárskólinn var settur 1. okt.
Nemendur eru 108. Kennaralið
óbreytt.
Iðnskólinn var settur 1. okt.
Nemendur eru 140—150. Kennsla
4. bekkjar fer fram í Húsmæðra-
skólanum til áramóta, en 3.
bekkjar eftir áramót. Kennsla 1.
og 2. bekkjar fer aðallega fram í
Gagnfræðaskólanum.
T œkniskólinn, undirbúnings-
deild, ný skólastofnun hér, var
settur 3. okt. Skólastjóri er skóla-
stjóri Iðnskólans, Jón Sigurgeirs-
son, auk hans kenna við skólann
Aðalgeir Pálsson, rafmagnsverk-
fræðingur, Aðalsteinn Jónsson,
efnaverkfræðingur og Skúli
Magnússon, gagnfræðaskólakenn-
ari. Nemendur eru 13, kennt er
í Geislagötu 5.
Tónlistarskólinn var settur s.l.
föstudag. Nemendur eru 50—60,
og aðalkennarar þeir sömu og s.l.
ár.
Karlakór Akureyrar óskar eftir nýjum
söngmönnum í hópinn. Hafiff samband
viff Jónas Jónsson, Hrafnagilsstræti 23,
sími 2138.
Kj ördæmisráð Alþýðuflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi eystra
hélt fund á Húsavík s.l. sunnudag.
Mæt'tir voru fulltrúar af Akureyri,
Húsavík, úr S.-Þing. og Raufar-
höfn, en fulltrúar af Dalvík, Ólafs-
firði og Þórshöfn gátu ekki komið
því við að mæta. .
Formaður kjördæmisráðs,
Bragi Sigurjónsson, setti fundinn
og nefndi til fundarstjóra Einar
M. Jóhannesson, Húsavík, og
fundarritara Sigursvein Jóhannes-
son, Akureyri.
I ályktunarnefnd voru til-
nefndir Friðjón Skarphéðinsson,
Steindór Steindórsson, Tryggvi
Sigtryggsson, Guðmundur Hákon-
arson og Einar F. Jóhannesson.
Á fundinum voru mörg mál
Leikfélag Akureyrar er nú að
hefja vetrarstarfsemi sína og
standa nú yfir æfingar á Þrett-
ándakvöldi eftir W. Shakespeare.
Þetta er í fyrsta skipti sem L.A.
ræðst í að sýna leikrit eftir Shake-
speare og er það nú gert til að
minnast 400 ára afmælis þessa
höfuðsnillings enskra bókmennta,
en verk eftir hann verða á þessu
leikári sýnd víða um heim. Leik-
urinn er í 5 þáttum og eru hlut-
verk 17 talsins.
Með stærri hlutverk fara Björg
Baldvinsdóttir, Þórhalla Þor-
steinsdóttir, Brynhildur Stein-
grímsdóttir, Guðmundur Gunn-
arsson, Jóhann Ögmundsson, Jón
Kristinsson, Sigtryggur Stefáns-
son, Haraldur Sigurðsson o. fl.
Búningar eru fengnir að láni
frá London og eru í þeim klass-
iska stíl sem tilheyrir Shakespeare-
sýningum. Stjórnandi söngva og
undirleiks er Guðm. Kr. Jóhanns-
son. Leikstjóri er hinn kunni leik-
ari og leikstjóri Ágúst Kvaran, en
hann lék eitt stærsta hlutverkið,
fíflið, í Reykjavík árið 1926 við
rædd, bæði flokksmál og landsmál
og gerðar ályktanir um ýmis þau
mál, sem nú eru efst á baugi.
Verður heildarályktun fundarins
birt í næsta blaði.
Eftirfarandi tillaga kom fram
á fundinum og var samþykkt ein-
róma:
„Fundur kjördæmisráðs Al-
þýðuflokksins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, haldinn á Húsavík
6. okt. 1963 þakkar ráðherrum
flokksins giftudrjúg störf í ríkis-
stjórn og örugga forystu þeirra í
þeim höfuðmálum, sem undir
þeirra ráðuneyti lúta, svo sem
félags- og menningarmálum, hafn-
ar- og sjávarútvegsmálum og ut-
anríkismálum.
Telur fundurinn rétt að halda
hina ágætustu dóma. Frumsýning
er ráðgerð seint í þessum mánuði.
Aðalfundur L.A. var haldinn í
Samkomuhúsinu s.l. sunnudag og
var þar rætt um fjármál L.A. og
vetrarstarfið. Eðvarð Sigurgeirs-
son sýndi kvikmyndir af gömlum
leiksýningum hér, Gamla Heidel-
berg og Lénharð fógeta 1945.
Félagatala L.A. er nú 53 og hef-
ur aldrei verið meiri í sögu fé-
lagsins. Félagið hefur í samráði
við húsvörð Samkomuhússins,
Jón Kjartansson, látið lagfæra og
mála æfingasal og búninga-
geymslu L.A. í Samkomuhúsinu.
Þá hefur félagið einnig í hyggju
að konia upp lítilli skrifstofu í
Samkomuhúsinu, sem verði opin
hálfsmánaðarlega fyrir félags-
menn og aðra leiklistarunnendur,
sem vildu kynna sér leikrita- og
myndasafn félagsins. Stjórn L.A.
skipa nú Jóhann Ögmundsson
form., Haraldur Sigurðsson rit-
ari, Kristján Kristjánsson gjald-
keri.
(Frétt frá L.A.).
núverandi stj órnarsamstarfi
áfram, meðan reynslan sýnir, að
hægt er að þoka þar fram stefnu-
málum Alþýðuflokksins og auka
þannig velmegun þjóðarinríar.
Treystir fundurinn því, að ráð-
herrar flokksins haldi, svo sem
þeir hafa gert, fast og vel á mál-
stað hans.“
Stjórn kjördæmisráðsins skipa
nú: Bragi Sigurj ónsson, Akureyri,
formaður, Steindór Steindórsson,
Akureyri, ritari og Einar M. Jó-
hannesson, Húsavík, gjaldkeri.
Varastjórn skipa: Kristján Jó-
hannesson, Dalvík, Magnús E.
Guðjónsson, Akureyri, og Sig-
urður Guðjónsson, Ólafsfirði.
Hásetahlutur á Ólafi
Magnússyni nær 130
þús. kr.
Ólafur Magnússon, eitt af skip-
um Valtýs Þorsteinssonar, Akur-
eyri, varð með aflahæstu síld-
veiðiskipunum í ár.
Hásetahlutur mun hafa orðið
tæpar 129 þús. kr. að því er einn
hásetinn hefur skýrt Alþm. frá.
Stöðumælar settir upp
í Hafnarstræti
I gærmorgun komu til notkun-
ar nær 20 stöðumælar í Hafnar-
stræti hér í bæ. Gjald fyrir 30 mín.
stöðu kostar þar nú 2 kr., og er
þessi háttur á hugsaður til öryggis
og auðveldunar í umferðinni.
Stöðumælarriir eru settir upp
að ósk umferðarnefndar og sam-
þykkt bæjarstjórnar, en koma
seinna í notkun en til var ætlazt
vegna óviðráðanlegra tafa við út-
vegun og uppsetningu mælanna.
Bæjarstjórn hefur samþykkt
reglugerð fyrir stöðumælana, og
það er von hennar og stjórnenda
umferðamála í bænum, að al-
menningur taki þessari nýbreytni
vel. Bifreiðarstjórar gæti þess að
leggja rétt við mælana og allir
bæjarbúar verði samtaka um að
forða skemmdum á hinum dýru
tækjum, mælunum.
Leikfélag Akureyrar æfir
Þrettándakvöld