Alþýðumaðurinn - 08.10.1963, Side 2
2
RITSTJÓRI: BRAGI SIGURJÓNSSON . BJARKARSTÍG 7 . SÍMI 1604
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUREYRAR . VERÐ KR.
; ■
70.00 Á ÁRI . LAUSASALA KR. 2.00 BLAÐIÐ . SETNING OG
.- ■ '
PRENTUN: PRENTSMIOJA BJÖRNS JÓNSSONAR H.F. . AKUREYRt
HHHBHBBBSBHHBHBHEHHHBBBHBEflHHHBHHBHHBHBHBHHHHflHEHBnHI^HHHHHH
Hlyti lianii fylg:i§tap af
hófsamari malfliitiiin^i?
Það er löngu orðið samróma álit allra óhlutdrægra
manna, að núverandi stjórnarandstaða Framsóknarfl. sé sú
illvígasta og ófyrirleitnasta stjórnarandstaða, sem hér í
landi hafi verið rekin um áratuga skeið. Jafnvel kommúnist-
arnir séu hófsamari. Aðeins stjórnarandstaða Sjálfstæðis-
flokksins gegn vinstri stjórninni geti talizt hafa jaðrað við
ófyrirleitni Framsóknar í málflutningi nú — en hafi þó
verið málefnalegri.
Meðan Sjálfstæðið var í sínum heiftarham gegn vinstri
stjórninni, hafði forysta Framsóknarfl. mjög á orði, að
þannig væri ekki hægt að túlka landstjórnarmál, eins og
Sjálfstæðið gerði, nema fyrir dómgreindarlausar hóp- og
flokkssálir.
Er þá Tíminn — og Dagur — að lýsa áliti sínu á kjós-
endum Framsóknar með málflutningi sínum nú? Óttast þeir
fylgistap hjá „dómgreindarlausum hóp- og flokkssálum“
sínum, ef þeir rangtúlka hlutina ofurlítið minna?
Þannig spyrja nú margir, og þykir satt bezt að segja Fram-
sókn sýna fylgjendum sínum furðulega fyrirlitningu.
Eitt slíkt dæmi getur að líta í blaðinu Degi s.l. laugardag
í rammaklausu, er ber nafnið Þriggja mánaða ganga. Þar
er ríkisstjórnin sökuð um að hafa orsakað eftirfarandi m. a.
undanfarna þrjá mánuði:
1) 600 millj. kr. óhagstæðan viðskiptajöfnuð 8 fyrstu mán-
uði ársins. Ekkert minnzt á, að öll síldarframleiðslan er
ókomin teknamegin í gjaldeyrisviðskiptin.
2) Vinnudeilur, en undan skotið, að þær hafa yfirleitt verið
leystar án alvarlegra verkfalla og án afskipta ríkisvalds-
ins.
3) Verðhækkanir á vörum, en ekki nefnt, að verðhœkkanir
á innkeyptri vöru stafa í nœr öllum tilfellum af hœkk-
unum á heimsmarkaðsverði, hvað ísl. ríkisstjórn ræður
næsta lítið við, en innlend vara — m. a. búvara — hefur
hækkað a. m. k. að meginhluta vegna kauphækkana, sem
ríkisstjórnin liefur varað við, en Framsóknarfl. talið sér
hagkvœmt að stuðla að.
4) Afnám viðskiptafrelsis. Hitt ekki nefnt, að „afnámið“
felst í þrengri lieimild til viðskiptaskuldar erlendis en
verið hefur um skeið, og er þó viðskiptafrelsi áfram
drjúgum meira en var fyrir tíð núverandi ríkisstjórnar.
5) Þá er ríkisstjórnin sökuð um að hafa valdið upplausn í
menningarmálum: „Þjófnaðir, rán, ávísanafals, sjóð-
þurrðir, líkamsárásir, fjöldavitfirring ungmenna, vinnu-
svik og nauðganir,“ eins og segir í grein Dags.
Oss verður aðeins á að spyrja: Hvers konar þjóð er það,
sem ein ríkisstjórn getur snarbrjálað svo sem Dagur segir
Hver d oð bera kostnoðinn a{ ouglýs-
ingum og uppsetningn merkja!
Ntrætisvagfnanefnd ikilar álifi
Hinn 5. febr. s.l. kaus bæjar-
stjórn Akureyrar þriggja manna
nefnd til að gera tillögur til bæjar-
stjórnar — í samráði við for-
stjóra Strætisvagna Akureyrar —
um betra skipulag ferða og bætta
þjónustu vagnanna.
I nefndina voru kjörnir: Arn-
þór Þorsteinsson, Arni Jónsson
og Jón Ingimarsson, og hinn 1.
þ. m. komu tillögur hennar fyrir
bæjarstjórn, og hljóðaði bréf
nefndarinnar til bæjarstjórnar um
hlutverk sitt, starf og tillögur
þannig:
„Strætisvagnanefndin, sem kos-
in var á bæjarstjórnarfundi 5.
febrúar s.l. til þess að gera tillögur
til bæjarráðs, um bætta strætis-
vagnaþjónustu í bænum, hefur
haldið nokkra fundi, rætt við
framkvæmdastjóra strætisvagn-
anna, Jón Egilsson, og ennfremur
kynnt sér flest, sem að rekstri
vagnanna lýtur.
Nefndin gerir eftirfarandi til-
lögur til bæjarráðs:
1. Að MýrarvÉigur verði gerður
akfær á milli Norðúrbyggðar
og Vanabyggðar, til þess að
hægt verði að taka upp nýja
leið á suðurbrekkunni.
2. Að athugaðir verði möguleik-
ar á því að endurbæta veginn,
meðfram Lundgarði í Glerár-
hverfi.
3. Að sett verði upp um 40 skilti
(sem munu vera til) á þeim
stöðum, sem strætisvagnarnir
hafa viðkomu.
4. Að strætisvagnaleiðirnar séu
auglýstar vel í blöðum, enn-
fremur með því að gefin verði
út sérstök auglýsingaspj öld,
í karton stærð, þar sem til-
greindar séu ferðir vagnanna,
og þeim dreift til bæjarbúa.
5. Nefndin hefur samið ferða-
áætlun fyrir strætisvagnana
frá 1. okt. þ. á. í samráði við
framkvæmdastjóra vagnanna,
Jón Egilsson. Er í þessari nýju
áætlun leitast við að koma til
móts við óskir þær, sem nefnd-
inni hafa borizt og nefndin
telur að horfi til bóta. Má þar
m. a. benda á kvöldferðir alla
daga til kl. 11. Vagnarnir
verða nú við sjúkrahúsið 5
mínútur yfir þrjú og 5 mínút-
ur yfir 4 daglega, og á flest-
um leiðum eru nýjar götur
teknar inn í leiðirnar o. fl.
o. fl.
6. Nefndinni hefur verið ljóst,
að eitt stærsta málið varðandi
bætta strætisvagnaþjónustu í
bænum væru vagnarnir sjálfir,
og væri því mikils um vert, að
strætisvagnarnir séu af full-
komnustu gerð á hverjum
tíma. Nefndin hefur rætt þessi
mál m. a. nokkrum sinnum við
Jón Egilsson, framkvæmda-
stjóra. Hefur hann sýnt mik-
inn áhuga og skilning á þessu
máli, og er árangurinn sá, að
nú hefur f ramkvæmdastj óri
strætisvagnanna fest kaup á
tveimur nýjum vögnum af
Volvo-gerð, annar með sæti
fyrir 36 farþega og stæði fyrir
24 eða fyrir 60 manns, hinn
með sæti fyrir 30 manns og
stæði fyrir 30, einnig samtals
60 manns. Er fyrri vagninn
væntanlegur um n.k. áramót,
en liinn á fyrrihluta næsta árs.
Að lokum viljum við taka fram,
að þótt oss sé ljóst, að við ýmsa
örðugleika sé að etja í sambandi
við rekstur strætisvagna hér í
bænum og öll vandamál verða
eigi leyst með skjótum hætti, þá
lítur nefndin hins vegar svo á, að
ef bæjarráð og bæjarstjórn tekur
þær tillögur til greina, sem nefnd-
in hefur orðið sammála um, þá
teljum við, að þessi strætisvagna-
mál komist í betra horf.
Við teljum svo hér með að
nefndarstarfi okkar sé lokið.
Virðingarfyllst.
Arnþór Þorsteinsson.
Jón Ingimarsson.
Um lið 3 og 4 í tillögunum
urðu nokkrar umræður. Spurðist
Ingólfur Árnason fyrir um það,
hver ætti að sjá um uppsetningu
merkja og kosta það verk, svo og
auglýsingar. Bæjarstjóri kvaðst
telja, að það ættu Strætisvagnar
h.f. að gera, enda mundu þeir
hafa gert svo fyrr varðandi merki
og auglýsingar, er snertu rekstur
þess.
Jón Ingimarsson dró í efa, að
þetta væri rétt, og raunar skipti
ekki máli, hvor aðilinn gerði
þetta, bara að það væri gert. Bær-
inn styrkti fyrirtækið Strætis-
vagna Akuröyrar h.f. hvort eð
væri, eins og allir vissu nánast
eins og það bæði um og „kontrol“-
laust.
Ingólfi Árnasyni þótti það
furðuleg skoðun, að sama væri,
hvort bærinn eða fyrirtækið bæri
ca. 30—40 þús. kr. kostnað. Bær-
inn fyndi kannske engin ósköp
fyrir þessu, en fyrirtækið munaði
verulega um að losna við nefnd
útgjöld, og að sínu áliti kæmi
ekki annað til greina en að það
ætti að bera þennan kostnað.
• Arnþór Þorsteinsson sagði, að
nefndin hefði ekki talið í sínum
verkahring að kveða á um, hver
bæri kostnað af úrbótum, heldur
gera tillögur um þær. Það hefði
hún gert og skilað góðu starfi að
sínu áliti.
Stefán Reykjalín lagði til, að
ágreiningsliðunum yrði vísað til
bæjarráðs með heimild til úr-
lausnar. Var svo samþykkt.
Ritstjórasbipti við
Alþýðublalið
Gísli J. Ástþórsson, sem verið
hefur ritstjóri Alþbl. nokkur und-
anfarin ár við ágætan orðstír, hef-
ur nú látið af ritstjórn þess, en
við tekið Gylfi Gröndal, ritstjóri
Fálkans undanfarið, snjall og
hugkvæmur blaðamaður.
Þá hefur Björgvin Guðmunds-
son, aðstoðarritstjóri við Alþýðu-
bl. nokkur undanfarin ár og áður
mörg ár fréttastjóri þess, fjölhæf-
ur og duglegur blaðamaður,
einnig hætt störfum við blaðið.
Fréttastjóri verður Árni Gunnars-
son, sem undanfarið hefur verið
blaðamaður við Alþbl., en rit-
stj órnarfulltrúi verður Eiður
Guðnason.
Þá hefur Sunnudagsblaðið aftur
hafið göngu sína, og nú í nýju
broti.
Ritstjóri þess er Högni Egilsson.
Árni Jónsson.“
með þriggja mánaða göngu? Ætli þeir séu ekki fáir annars
meðal hugsandi manna þjóðarinnar, sem afgreiða framan-
greindar þjóðfélagsmeinsemdir á jafneinfaldan hátt og ritari
Dagsrammans: Bara að ásaka ríkisstjómina!
Spurningin er: Fyrir hvaða fávita er blaðið að skrifa?
Ber að skilja þessi skrif svo, að það sé skoðun Fram-
sóknarforystunnar, að flokkurinn tapaði fylgi, ef hann ræddi
viðfangsefnin málefnalega?