Alþýðumaðurinn - 08.10.1963, Síða 4
KjMum tMhfcalar reittor
stuinmflir i tlMskjör
Á fundi kjördæmisráðs Alþýðuflokksins á Húsavík s.l. sunnudag
var einróma samþykkt svofelld ályktun:
„Fundur kjördæmisráðs Alþýðuflokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra, lialdinn á Húsavík 6. okt. 1963, færir kjósendum flokksins
beztu þakkir fyrir starf og stuðning í alþingiskosningunum s.l. vor.
Fundurinn harmar hins vegar að sjálfsögðu og telur mikinn skaða
fyrir kjördæmið, að Alþýðuflokkurinn fékk eigi kjörinn þingmann
í kjördæminu, og skorar á alla flokksmenn og velunnara flokksins
að leggja fram enn aukið starf, svo að við næsta alþingiskjör hljóti
flokkurinn þingmann úr kjördæminu."
Níkil ufsneiij víi OríimeT i nmar
3477 býli aí 4550 býlii
alls höfðn verið
í árslok 1962
Uppgripaafli af ufsa var við
Grímsey í sumar, en annar afli
hefur að verulegu leyti brugðizt.
Þannig liafa þorskveiðar við
eyna brugðizt að mestu í sumar.
Rauðmagaveiðar brugðust einnig
að verulegu leyti, meðal annars
vegna gæftatregðu í vor. Þá er
svipaða sögu að segja af síldar-
vertíðinni. I sumar var aðeins
saltað í 1077 tunnur í Grímsey en
í fyrra nam söltun þar nær fer-
földu magni, eða um 4 þús. tunnur
samtals.
Sýslunefnd Eyjafjarðar-
sýslu mælir með sfofnun
héraðsskóla í sýslunni
Á fundi sýslunefndar Eyja-
fjarðarsýslu þessa árs var sam-
þykkt svofelld ályktun:
„Sýslufundur Eyj afj arðarsýslu
1963 lýsir. eindregnum stuðningi
sínum við tillögu þá til þings-
ályktunar, sem fram kom á síðasta
Aþingi um héraðsskóla í Eyja-
fjarðarsýslu. Telur sýslunefndin
þetta brýnt nauðsynjamál og skor-
ar á Alþingi og ríkisstjórn -að
hrinda því í framkvæmd svo fljótt
sem auðið verður.“
Flutningsmaður þingsályktunar-
tillögu þeirrar, sem hér er vitnað
til, var Ingvar Gíslason, alþm.
Alþýðumaðurinn vill taka und-
ir það álit sýslunefndar, að hér
sé nauðsynjamáli hreyft, og æski-
legt sé, að því verði hið fyrsta
komið í framkvæmd, þar eð mik-
ill hörgull er á skólarými fyrir
ungmenni sýslunnar og oft um
langan veg að sækja til úrlausnar,
stundum meiri og minni bið á, að
hún fáist.
Fullvíst er, að afkoma Gríms-
eyinga hefði orðið bágborin, ef
ufsaveiðarnar hefðu ekki bjargað
vertíðinni hjá þeim. Tólf Gríms-
eyjarbændur lögðu stund á ufsa-
veiðar í vor og sumar og öfluðu
samtals um 900 lestir. Að afla-
verðmæti nemur það nokkuð á 2.
millj. króna.
I vor keyptu Grímseyingar tvo
stóra snurpiboðarbáta með vél-
um, nælonnótum og öðru tilheyr-
andi, sem áður hafði tilheyrt Snæ-
fellinu á Akureyri, og notuðu þá
m. a. til ufsaveiðanna. Örstutt var
á miðin, og eins og fyrr segir,
uppgripaafli í allt vor og sumar.
Til þess að koma aflanum frá
sér leigðu Grímseyingar 15 lesta
hót frá Húsavík, „Hrönn“, sem
flutti ufsann ýmist til Hjalteyrar,
Ólafsfjarðar, Siglufjarðar, Húsa-
víkur eða Sauðárkróks, þar sem
fiskurinn var seldur fyrir kr. 2.36
pr. kg. Stundum barst það mikill
afli á land í Grímsey, að eyjar-
skeggjar urðu að fá fleiri báta til
flutnings.
Galdrameistarann norður
við heimskaut
kallar hann sig, er norskur og
gengur undir nafninu Bobby.
Hann er frá bænum Skien og
skemmtir þessa viku á Hótel KEA.
Bobby kveður sig víða hafa
sýnt galdrabrögð sín, fyrst og
fremst í Noregi og allt norður á
Svalbarða.
Meðal töfrabragða sinna nefn-
ir hann könnu, sem aldrei tæmist,
en forvitnum er bezt að sjá með
eigin augum, hvort hann skýrir
þar rétt frá.
í árslok 1962 töldust 5450 býli
hér á landi, og höfðu 2.458 þeirra
þá hlotið rafmagn frá samveitum,
Séra Fjalar Sigurjónsson
hverfur fró Hríseyjar- og
Árskógsprestakalli
Að því er Alþm. hefur fregnað,
mun séra Fjalar Sigurjónsson,
sem um allmörg ár hefur gegnt
Hríseyjar- og Árskógsprestakalli
við ágætar vinsældir, hverfa frá
því brauði nú á haustdögum og
taka Kálfafellsstað í Suðursveit.
Auk sálusorgarstarfs síns hefur
séra Fjalar haft á hendi fyrir Hrís-
eyjarbúa margháttuð félagsmála-
störf, svo sem löngum hefur verið
hlutskipti góðra presta, og er sókn-
arbörnum hans mikil eftirsjá að
honum og f j ölskyldu hans úr Hrís-
ey-
Tryggvi Helgason athugar
ný kaup á flugvélum
Tryggvi Helgason flugmaður á
Akureyri dvelur vestan hafs um
þessar mundir, og er að athuga
um kaup á litlum flugvélum hjá
bandaríska hernum, er heppilegar
þættu til styttri flugferða hér á
landi. Vélar þær, sem fyrst komu
til athugunar voru tveggja hreyfla
og eitthvað notaðar.
Tryggvi Helgason á 3 kennslu-
flugvélar fyrir og sjúkraflugvél-
ina, sem er þeirra stærst og tekur
5 manns.
flaug frá Akureyri fyrra föstudag
tilReykjavíkur. Var hann frúHall-
dóra Jónsdóttir, kona Karls
Magnússonar, járnsmiðs hér í bæ,
en systir Björns Jónssonar, al-
þingismanns. Með henni tóku sér
og far maður hennar og dóttir, en
er suður kom, tók forstjóri F.Í.,
Örn Johnsen, móti frú Halldóru
og færði henni fagran blómvönd
frá félaginu og bauð henni, manni
hennar og dóttur í Þjóðleikhús-
kjallarann og að sjá leikritið Gísl
í Þjóðleikhúsinu. Fargjöld þeirra
en 1019 frá einkarafstöðvumyeða
alls 3477 býli verið rafvædd.
Samkvæmt rafvæðingaráform-
um 1963 og 1964 eiga 571 býli til
viðbótar að hafa fengið rafmagn
í árslok 1964, eða alls ættu þá
um 4050 býli af 5450 býlum að
hafa verið rafvædd.
Ef gert er ráð fyrir, að rafvæð-
Eins og Alþmi hefur sagt frá,
tekur senn til starfa nýr heima-
vistarbarnaskóli að Laugalandi á
Þelamörk. Er hann ætlaður fyrir
börn úr Glæsibæjar-, Skriðu- og
Öxnadalshreppum.
Skólastjóri hefur verið settur
Tveir guðfræðingar
útskrifasf'
í gær luku tveir guðfræðingar
prófi við Háskóla íslands, þeir
Bolli Þ. Gústavsson, Akureyri, og
Lárus Þ. Guðmundsson frá ísa-
firði. i
Bolli og Lárus eru báðir stúd-
entar héðan úr Menntaskólanum.
SNORRI ÁSKELSSON
setjari, andaðist 1. okt. s.l. Varð
bráðkvaddur við vinnu sína í
prentsmiðjunni Gutenberg í Rvílc.
Snorri heitinn var lengi starfs-
maður í Prentverki Odds Björns-
sonar, annálsfær vélsetjari og
öndvegismaður að dómi allra, er
kynntust honum.
hjóna og dótturinnar voru endur-
greidd.
Þess skal hér getið, að fyrsti far-
þegi F.í. var Ingólfur Kristjáns-
son, bóndi á Jódísarstöðum. Sú
ferð var farin 4. júní 1938. Frá
þeim degi, unz frú Halldóra Jóns-
dóttir steig um borð í farkost F.Í.,
hefur það flutt 734.683 farþega
innanlands og 265.317 farþega
landa milli.
Eftir 21 árs starf hafði F.í. flutt
500 þús. farþega, en 51/? ári betur
milljón. Hröð þróun má segja í
loftsamgöngum.
rafvædd
ing hvers býlis, sem þá er eftir —
um 1400 talsins -—- kosti ríkið 100
þús. kr., sem mun algert lágmark,
eða alls um 140 millj. kr., hlýtur
sú spurning að vakna, hvort ekki
sé hagkvæm lausn fyrir alla aðila,
að sum þessara býla séu lögð nið-
ur, en ríkið aðstoði bændur á
þeim með myndarlegum hætti til
að kóma sér upp nýju býli, þar
sem allar aðstæður væru hag-
felldar.
Jóhannes Óli Sæmundsson, áður
námsstj óri á Austurlandi, en kenn-
arar Sæmundur Bjarnason, mörg
ár skólastjóri í Hrísey, og Guð-
rún Jónsdóttir, kona hans.
Þá er risið að Litlu-Laugum í
Reykj adal nýtt barnaskólahús,
sem taka á til notkunar í vetur.
Skólastjóri þar er Dagur Sig-
urjónsson, en kennari Ingigerður
Jósefsdóttir.
K. A.
sigraði
Meistaramóti Norðurlands í
knattspyrnu lauk fyrra sunnudag
hér á vellinum með leik KA og
Þórs. Sigraði KA með 1:0 og
hlaut miestaratignina. Aðeins
þrjú félög tóku þátt í mótinu að
þessu sinni. Hið þriðja var HSÞ.
Fyrri leikirnir fóru þannig, að
Þór vann HSÞ með 4:2 og KA
vann HSÞ með 7:3. Vann KA því
mótið á 4 stigum.
RISÁSKJALDBAKA
Hinn 1. okt. fannst á reki á
Steingrímsfirði vestur skjald-
baka, sem reyndist rúml. 2 m á
lengd, og breiddin. var 1,4 m og
bægslin auk þess um 1 m. Hún
vóg yfir 700 pund.
Fundur skjaldböku þessarar er
að því leyti merkur, að slíkt er
einsdæmi hér við land. Skjald-
bökur þessarar tegundar eiga
heimkynni sín í mun heitari höf-
um.
ALÞÝÐU
MAÐURINN
miljóiiasiti farþegri
_
Flagfélags Islauds
Tveir nýir skólar