Alþýðumaðurinn - 01.04.1965, Blaðsíða 4
4
Iiiii ^ii ■ iinijb iiiii ■■■ iiiuiiiiii rjjpauiiimiimi ihwi^iii vn| m ■ im V ■ mi V1 ■111111111
iiiijras uifikm I Íinl; iiiiiimm#%immmniiimiiiWimi jiiiil m iimmiMflimR 111
iii! I iiji i JTnA'i ■m* iiimim Mnmm immiii Lbb iiiiiiV iiim ■iniE m I im I inV nn I inV mi I im
m ■■■■iii
miBmiii:iii
iiiLmbiii
* Hver annast akstur sjúkrabifreiðarinnar?
* Tveir menn við akstur og talstöð.
:i; Tafarlaustra úrbóta þörf.
HVER ANNAST AKSTUR
SJÚKRABIFREIÐARINNAR?
Ýmsir hafa komið að máli við
Róðstefna um kjaramól
Framhald af bls. 1.
þeirra kjarasamninga, sem gerð-
ir verða við atvinnurekendur.
Þá telur ráðstefnan óhjá-
kvæmilegt, að samningagrund-
völlur við atvinnurekendur verði
byggður á sameiginlegum kröf-
um verkalýðsfélaganna um:
1. Almenna kauphækkun og
samrænxingu kauptaxta.
2. Styttingu vinnuvikunnar í
44 stundir.
3. Vandleg athugun fari fram
á aukinni ákvæðisvinnu og henni
komið á þar sem hagkvæmt telst,
og verði jafnframt tryggt, að
ákvæðisvinna leiði ekki til óeðli-
legs vinnuálags á verkafólki, m.
a. með því að gengið verði frá
heildarsamningum um fram-
kvæmd vinnurannsókna o’g
tryggt að verkafólk , njóti rétt-
mætrar hlutdeildar í framleiðnis-
aukningu.
Ráðstefnan telur rétt að verka-
lýðsfélögin undirbúi sem fyrst
samningagerðir sínar, en frest-
að verði ákvörðun um kröfu um
kauphækkun í krónutölu, þar til
séð verður hversu samningar
takast við ríkisstjórnina. Ráð-
stefnan telur það meginviðfangs-
efni verkalýðshreyfingarinnar,
að í samningunum á komandi
sumri verði tryggð veruleg aukn-
ing rauntekna á tímaeiningu, og
telur að mikill árlegur vöxtur
þjóðarframleiðslu, mjög batn-
andi viðskiptakjör og tækni-
framfarir réttlæti fullkomlega
slíkar raunhæfar kjarabætur, og
telur, að þær séu mögulegar án
verðbólguþróunar, enda séu að-
gerðir til stöðvunar verðbólgu
óhjákvæmilegt skilyrði þess að
nýir kjarasamningar í framan-
greinda átt nái tilgangi sínum.
Þá kaus ráðstefnan 14 manna
samninganefnd, sem ræða á við
ríkisstjórnina. I nefndinni eiga
sæti eftirtaldir menn:
Hannibal Valdimarsson, Björn
Jónsson, Eðvarð Sigurðsson,
Einar Ogmundsson, Guðjón
Sigurðsson, Hermann Guð-
mundsson, Jón Snorri Þorleifs-
son, Jón Sigurðsson, Jóna Guð-
jónsdóttir, Magnús Sveinsson,
Markús Stefánsson, Óskar Éall-
grímsson, Pétur Stefánsson og
Snorri JónsSon.
mig og látið í ljós undrun sína
vegna reksturs sjúkrabílsins á
Akureyri. Virðist svo, sem þau
mál séu ekki í sem beztu formi,
hvað varðar þjónustu þegar á
þarf að halda. Bent hefur verið
á, að bíllinn hafi t. d. verið nú
undanfarið um mánaðartíma á
bifreiðaverkstæði, og ekki til
þess vitað, að nein ákveðin bif-
reið gegni þessum störfum á
meðan, eða að nokkur tilkynn-
ing um þetta efni hafi verið
gefin út af þeim er bílinn reka.
Hefur þá orðið að grípa til
sendiferðabifreiða af bifreiða-
stöðvunum, sem af skiljanlegum
ástæðum hafa takmarkaðan út-
búnað til að annast akstur vegna
sjúkdóms eða slysatilfella.
Sjúkrabíilinn hefur verið stað-
settur við lögreglustöðina, og
venjan er líklega sú, að lögreglu-
þjónar annist akstur lians í slysa-
og sjúkraflutningum, en ekki
virðist það þó vera algilt, því oft
hefur svo borið við, að verið er
að reyna að fá hina og þessa
bifreiðastjóra til að sækja sjúk-
linga, þegar beiðnir hafa um
það borizt. Virðist þannig, sem
enginn ákveðinn eigi að annast
bílinn og akstur hans.
Verður það að teljast furðu-
legt í svo slórum bæ sem Akur-
eyri er orðin, og fullkomlega
ábyrgðarlaust, að ekkert skipu-
lag sé á þessum málum, það hlýt
ur í það minnsta að vera lág-
markskrafa, að einhver ákveðinn
maður eða menn annist akstur
hans, og til þeirra sé hægt að
grípa hvenær sem er, með litl-
um eða engum fyrirvara. Þá verð
ur það að teljast mikilsvert, að
þeir menn, sem annast akstur
bílsins, hafi í þ. m. einhverja
þjálfun í „hjálp í viðlögum,“
því oft er fyrsta sjúkraaðstoð
mikilsverðust ef slys eða annað
ber að höndum.
TVEIR MENN Vlt) AKSTUR
OG TALSTÖB
Einnig verður að benda á,
hversu óábyrgt það er, að senda
einn mann með bílinn t. d. að
vetrarlag.i, þegar oft þarf að fara
í erfiðu færi og veðri í aðrar
sveitir nágrennisins, og það, að
bíllinn hefur til þessa verið tal-
stöðvarlaus, og er það eitt eftir-
tektarverl atriði, á sama tíma
sem nauðsyn þykir að setja slík-
ar stöðvar í alla vöruflutninga-
bíla og langferðabíla.
Þótt einhver komi með sjúkl-
ing.i, sem verið er að flytja, er
engan veginn tryggt, að liann
geti veitt bifreiðarstjóranum
nægjanlega aðstoð, ef á þarf að
halda.
TAFARLAUSRA ÚRBÓTA
ÞÖRF
Enendis tíðkast víðast hvar,
að sjúkrabifreiðir séu staðsettar
við sjúkrahús og þar ákveðnir
til þess þjálfaðir menn, sem ann-
ast rekstur þeirra. í Reykjavík
hefur slökkvilið borgarinnar ann
ast rekstur sjúkrabílanna þar,
og hefur ekki heyrzt annað eri
sú þjónusta geng.i vel. Eftir því
sem bezt er vitað, er ekki borið
við að fara svo út úr bænum þar
með sjúkrabíl, að ekki séu tveir
menn með bílnum, jafnvel inn-
anbæjar hefur sá hátlur verið
tekinn upp.
Eg vil því endurtaka það, að
það hlýtur að vera lágmarks-
krafa bæjarbúa og nærsveita-
manna, að þessi mál verði tekin
til gaumgæfilegrar athugunar og
tafarlausrari úrlausnar, þannig
að ekki fari neitt milli mála,
hverjir eiga að annast akstur
sj úkrabifreiðarinnar og því megi
ávallt treysta, að hún sé reiðu-
búin til notkunar og aksturs sam
stundis og beiðni berzt.
Rauðu
Tízku-stígvélin
eru komin.
Sköverzlun
M. H. LYNGDAL
Sími 12399
ÁRSFUNDUR
MJÓLKURSAMLAGS K.E.A.
rerður haldinn í Samkomuhúsi Akureyrar þriðjudag.inn 13.
apríl n.k. og hefst kl. 10 árdegis.
Dagskrá samkvæmt rcglugcrð Mjólkursamlagsins.
Akureyri, 26. marz 1965.
STJÓRNIN.
Haría Dóra Igilaoa niiiiic
Frú María Dóra Egilsson lézt
í Reykjavík hinn- 18. marz s.l.
Hún var fædd í Hafnarfirði 17.
apríl 1916 og því aðeins tæpra
49 ára að aldri. Hún var dóttir-
Þórarins Egilssonar hins kunna
athafnamanns. Ólst hún upp á
heimili foreldra sinna, og hlaul
ágæta menntun, og það sem mest
var um vert hún naut rótgró-
innar heimilismenningar. Bar
hún með sér siðfágun og menn-
ingu ættar sinnar og umhverfis.
Frú María var hæglát í fasi,
ldédræg og ekki fljót að kynn-
ast. En allir, sem mættu henni
hlutu að veita athygli hinni
fríðu, virðulegu konu. Hún var
mikill vinur vina sinna, og þótt
hún væri hlédræg að eðlisfari,
kunni hún vel að gleðjast með
glöðum. En fátt mun henni þó
hafa verið meiri skemmtun en
að ferðast á góðum hestum. Átti
hún löngum góðhesta, og kunni
vel með þá að fara.
Hér á Akureyri dvaldist frú
María um margra ára skeið.
Vinahóp átti hún hér traustan,
en ekkert var fjær skapi hennar
en að trana sér fram eða láta á
sér bera. Þess vegna var fámenn-
ara um hana en annars hefði
mátt vænta eftir stöðu hennar
og mannkostum. En öllum vin-
um sínum verður hún ógleyman-
leg, og þær eru margar og hlýj-
ar kveðjurnar, sem fylgja henni
út yfir landamærin, nú þegar
hún leggur út í förina hinztu,
löngu fyrir aldur fram. En það
er ekki árafjöldinn sem skapar
sögu og minningu einstaklings-
ins, lieldur persónuleikinn, and-
rúmsloftið sem leikur um hvern
og einn. Og frú María átti þenn-
an hlýja, ástúðlega persónuleika,
sem geymist betur í minning-
unni en árafjöldi og umsváf.
St. Std.
S E N D I B íLASTÖÐIN
SENDILL
S í n\a r
1 2940 og 1 294 1
Afgreiðsla
Lönd og Leiðir
SÆLUVIKA
SKAGFIRÐINGA
SAUÐÁRKRÓKI 4.—11. APRÍL
Hópferð fró Lönd og leiðir föstudag 9., laugardag 10.
og sunnudag 11. april.
Úfvegum gisfingu og aðgöngumiða.
Þófttaka tilkynnist fyrir kl. 6 þann 6. april.
FERÐASKRIFSTOFAN
10HD t IBNE
AKUREYRI við Geislagötu
SÍMI 12940
R A U Ð
kvenstígvél
Einnig til í unglingastærðum.
LEÐURVÖRUR H.F.
STRANDGÖTU 5 . SÍMI 12794