Alþýðumaðurinn - 30.09.1965, Side 5
Það sem háir Reglunni mest, er að hún er
hálfri öld á eftir tímanum
ingi, að honum skuli finnast
Rætt við Magnús J. Kristinsson,
rafvélavirkjameistara
EINS OG blaðið liefur getið um áður, gagnrýndi einn allhvass-
yrtur templari þau ummæli blaðsins, að Goodtemplarareglan
fengi vissar prósentur af drykkjuskap íslendinga og fannst blað-
inu sjálfsagt að leiðrétta þá missögn sína, en falaðist jafnframt
eftir viðtali við templarann og var tekið vel í það af hans hendi.
Og s.l. mánudagskvöld leit templarinn inn á skrifstofu mína —
og mér finnst óþarft að kynna Magnús J. Kristinsson rafvéla-
virkjameistara, — og því skal hefja samtalið.
Þú varst mér anzi reiður,
vegna ummæla minna, Magnús.
Ég veit ekki hvort ég var svo
reiður, en í þeim kom upp sá
draugur, sem ég hélt að búið
væri að kveða niður. Þetta er
hlutur, sem alls ekki er fyrir
hendi, því að fjárveiting Al-
þingis til Reglunnar er ákveð-
in ár hvert og er algerlega
óbundir hverjar tekjur Áfengis
verzlunarinnar verða. Um mörg
ár var fjárveitingin til Reglunn-
ar óbreytt, en varla er hægt að
segja hið sama um tekjur rík-
isins af vínsölunni.
En fjárveitingin til Reglunnar
hefur þó hækkað mikið síðustu
árin.
— Já, en það er vegna ítrek-
aðra umsókna yfirmanna Regl-
unnar, rökstutt með því, að
mikið meira fé þurfti til þess
að halda uppi óbreyttu starfi,
því að Reglan er ekki nógu
fjölmenn til þess að hún geti
haldið uppi nauðsynlegu starfi
af eigin rammleik, af fjárfram-
lögum félagsmanna eingöngu,
m. a. vegna þess, að töluverður
hluti félagsmanna er ekki af-
lögufær, vegna þess að skammt
er síðan þeir sneru af leið óregl-
unnar. Okkur skortir m. a. stór-
lega fé, til að styrkja þessa
menn, því að æði oft er fjár-
skortur undirrót áframhaldandi
drykkjuskapar.
Hefur sett niður fyrir
tízkunni
En þótt þið hafið fengið aukna
fjárveitingu finnst samt mörg-
um, að Reglan hafi sett ofan.
Það hafa nú veigameiri hug-
sjónastefnur sett ofan fyrir
tízkunni, þar á meðal kristin-
dómurinn, og ég vil bæta því
við, að meðan þeir, er bera
ábyrgð á tilveru og framvindu
þessa þjóðfélags, láta sér sæma
að vera ofurölvi á mannamót-
um, þá er við ramman reip að
draga fyrir okkur, sem lægra
erum settir í mannfélagsstigan-
um. Það er varla eins áhrifa-
ríkt, þótt ég eða þú segjum við
náunga okkar, að það sé ósæmi-
legt og mannskemmandi að
iðka brennivínsdrykkju, þar
sem við komum varla svo inn
á veitingastað, að við sjáum
ekki einhvern af forráðamönn-
um ríkis eða bæja, sitjandi yf-
ir drykkju og oft lítið virðu-
legir á að líta, og ég vil gjarn-
an bæta þVí við, að þeir, sem
með löggæzlu eiga að fara, séu
oft ærið tómlátir, og á ég þar
Magnús J. Kristinsson.
ekki einungis við lögregluþjóna
heldur og líka þá, sem ofar
standa, því að ég trúi því, að
ef þessari, að vísu mislukkuðu
áfengislöggjöf sem nú er í
gildi, væri framfylgt, svo sem
þau gefa tilefni til, væri annað
og betra snið á skemmtanalífi
íslendinga.
Er margt ungt fólk innan
Reglunnar?
Við hér á Akureyri þurfum
a. m. k. ekki að kvarta. Ungt
fólk er lífsmeiður Reglunnar,
hún má aldrei eldast með for-
ustumönnunum ?
Agaleysi að kenna
En drykkjuskapur unglinga
færist alltaf í aukana.
Jú, ég veit að það er stað-
reynd, að aldurstakmarkið fær-
ist alltaf neðar og neðar. Það er
ekki gott að vita að hverju það
stafar, en ég held að hér komi
til agaleysi, bæði á heimilum og
í skólum, og einnig vildi ég
taka það skýrt fram, að linkind-
in við að refsa þeim, er veita
unglingunum vínið, er enn ein
orsökin. Hér er um vítavert
sinnuleysi af hálfu löggæzlunn-
ar að ræða.
Þú kastar þá ekki sökinni á
æskuna?
Nei, alls ekki. Við fullorðna
fólkið hljótum að bera ábyrgð-
á æskunni á hverjum tíma, og
ég vil taka það skýrt fram að ég
vil ekki hvítþvo Regluna. Segja
að hún hefði ekki getað starfað
betur, en hún hefur gert, en ég
er líka jafn sannfærður um
hitt, að ástandið væri þó enn
verra ef hennar hefði eigi not-
ið við.
En ef ég segði, að ég hefði
sannanir fyrir því, að Good-
templari drykki. Hverju mynd-
ir þú svara því?
Því hefi ég til að svara, að um
leið og félagi í Reglunni hefur
neytt áfengis, þá er hann ekki
lengur Goodtemplari, og því
eigi hægt að segja að Good-
templari drekki, í strangasta
skilningi. Hins vegar neita ég
því ekki, að nokkuð oft kemur
það fyrir, að mönnum verði
fótaskortur á þessu sviði. En
þó er það ekki hin almenna
regla, heldur oftast sömu menn-
irnir. Já, og svo hefur almenn-
ingur alltaf dálítið gaman af að
segja, að þessi eða hinn templ-
ari hafi verið fullur. Fólk virð-
ist ekki geta skilið það, að við
förum ekki til annars á vínveit-
ingastaði, þótt það gjarnan viti
betur. Að við erum þangað
komnir til þess að hjálpa, ef
auðið er, öðrum frá að neyta
víns.
Svo endurreisið þið þá bara,
er falla?
Vitanlega. Reglan er mjög
umburðarlynd og reynir að
setja sig í spor veiklyndra með-
bræðra sinna og systra og vinn-
ur því á grundvelli þeim, er
dæmisagan um Miskunnsama
Samverjann boðar.
En heyrzt hefur, að templar-
ar drekki á laun. Hverju viltu
svara því?
Að almannarómurinn Ijúgi í
þessu tilfelli.
Endurreisa endalaust
Þið endurreisið hina brotlegu
endalaust?
Við hættum að endureisa,
þá, er maðurinn er hættur að
drekka. Þú veist að ein af
grundvallarkenningum Regl-
unnar er kærleikur og bræðra-
þel til allra manna. Og á þessu
sérðu, að við getum ekki setzt
í dómarasæti, þótt einhverjum
verði á að brjóta bindindisheit
sitt, heldur reynum við að
koma þeim sama manni til
hjálpar, og mér þykir það bros-
legur misskilningur hjá almenn
það niðrandi fyi-ir Regluna, að
endurreisa mann aftur og aft-
ur. Hvaða góð móðir rhyhdi
hætta að kyssa á „báttið“ þótt
barnið hennar meiddi sig oft á
dag? •
Þú hefur drukldð sjálfur?,
Já, ég held að ég þekki allar
tegundir af fylliríum.
Svo gekkstu í Regluna, og
hún hefur leitt þig ,á. réttö
braut?
Já, með inngöngu í Regluna
hætti ég öllum drykkjuskap, og
hef ekki bragðað áfengi síðan.
Og þér líður betur?
Vissulega líður mér betur á
allan hátt, en þá er ég gekk í
Regluna, var ég mjög ókunnug-
ur siðum hennar, og því sagði
ég svona við sjálfan mig: „Far
vel fagra veröld, nú skemmti
ég mér aldrei meir.“ En aðeins
hálfum mánuði seinna stóð ég
sjálfan mig að því, að dansa af
fjöri polka, ræla og valsa á
stúkuballi, — og hafði aldrei
skemmt mér betur. Það er ein
hættulegasta blekkingin, sú
firra, að ekki sé hægt að
skemmta sér án áfengis, og
vissulega bera þeir fullorðnu
sökina á þeirri blekkingu. Það
er lítið sannfærandi, að segja
með staup í hendi, glitrandi af
víni: „Þetta er áhætta og hættu
legur fjandi, sem þú skalt
aldrei eiga neitt við.“ Eina
tryggingin fyrir því, að verða
aldrei drykkjumaður, er að
taka aldrei fyrsta sopann.
Hvað viltu svo segja að lok-
um, Magnús?
Já, það sem háir Reglunni
einna mest, að mínu áliti, er,
að hún er hálfri öld á eftir
tímanum, en það sýnir þó styrk
hennar í sjálfu sér, að þrátt
fyrir þetta, eru þó jákvæð
áhrif hennar á menningarlíf
landsins ótrúlega mikil.
Hér lýkur hinu formlega við-
tali okkar Magnúsar, sem ég
þakka honum hér með innilega
fyrir. Við ræddum að vísu
margt meira, og mér fannst gott
að skiptast á skoðunum við
Magnús. Hann baráttuglaður,
en hikar þó ekki við að játa
yfirsjónir þeirra samtaka, er
hann þó hyllir, og mér finnst
það jafnan virðingarvert, og þá
síður hætta á því, hvort félagið
heitir Gootemplararegla eða
eitthvað annað, verði stöðnuð
samtök gamalmenna, er líta til
baka og eygja aðeins dýrð
sinna eigin afreka, en gæta eigi,
að tíma fleygir fram.
Ég vænti þess, að Magnús og
skoðanabræður hans kippi
Gootemplarareglunni inn í nú-
tímann, svo að hún verði enn
virkari í baráttunni gegn þeim
öflum, er varða veg sinn með
„lifandi“ líkum. s. j.
STAKAN
okkar !
VIÐ Þökkum fyrir allar vís-
urnar er blaðinu hafa borizt,
en væntum áframhaldandi lið-
veizlu kvenna og karla, sem víð-
ast að, og það er gleðilegt að
finna að stakan okkar á enn,
sterk ítök hjá þjóðinni þótt
atomöld ríki.
Við skulum kalla fyrstu vísu
okkar í dag Horft yfir bæjarlæk-
inn og er eftir Þorkel Vigni.
Geisli sumarsólar hlýr
signir jarðarveginn.
Sko, hve blómin brosa hýr
á bakkanum hinumegin.
Einganga, kallar Rósberg G.
• Snædal þessar stökur sínar:
Einn eg sveima undir liaust,
öllum gleymi kvíða.
Læt um heiminn hömlulaust
huga dreyminn líða.
Djásn eg finn og fögur söfn
forn er kynni sanna.
Flýtur inn á friðarhöfn
floti minninganna.
Það er dapurt sinni Alenófs,
; er hann kveður þessa stöku.
Yfir sumum vættir vaka,
verma og lilýja sálarglóð.
En eg er einn á köldum klaka
kalinn á hjarta, frosið blóð.
Einnig er hálfgerður haust-
hreimur í þessari stöku Þorvald-
ar Þórarinssonar frá Hjalta-
bakka.
í draumi bý eg lienni hjá
hugann flýja daprar sorgir.
Eg vakna að nýju og ekkert á
annað en skýja hrundar borgir.
Þótt ég hafi ekki fengið leyfi
hins kunna hagyrðings, Harald-
ar Zophoníassonar, um birtingu
þessarar vísu, læt ég hana samt
fara, en hún er mér jafnan hug-
stæð og fylgja henni kveðjur til
æskustöðva minna.
Græddu mein hjá meyju og
svein
man þig sprund og halur.
Sjónarsteina unun ein
ertu Skíðadalur.
Og við látum Þorkel Vigni
hafa stíðasta orðið að þessu
sinni:
Vonarfylling fæstir ná
fjarri hillingunni.
Margir villast einatt á
ytri gyllingunni.
Hittumst svo heil í næsta
blaði og við kveðjum að Kvar-
ans-hætti. Verið þið sæl að sinni.
^f#############################*