Alþýðumaðurinn - 17.02.1966, Page 1
ÁSKRIFTAKSÍMI
ALÞÝÐUMANNSINS
ER 1-13-99
»' ............. 1
XXXVI. árg. - Akureyri, fimmtudaginn 17. febrúar 1966 - 6. tbl.
NORÐLENZKT FRAMTAK: MERK-
UR ATBURÐUR í SÖGU AKUR-
EYRAR OG NORÐURLANDS Æ
Stærsta stáískipi er smíðað hefur verið á íslandi fram
Allir starfsmenn Slippstöðvarinnar hf
á Akureyri sanna snilli og hagleikni
norðlenzkra handa
CJÍÐASTLIÐINN þriðjudag var flotað stærsta skipinu er
^ smíðáð hefur verið á íslandi til þessa, og er það Slipp-
stöðin h.f. er sá um framkvædir, en eigandi skipsins er
Magnús Gamalíelsson útgerðarmaður í Ólafsfirði. Kona
hans frú Guðfinna Pálsdóttir gaf skipinu heitið Sigurbjörg
ÓF 1 og skírði hún upp úr sjó er tekinn var á Grímsevjar-
sundi. Sigurbjörg ÓF 1 er 335 brúttósmálestir. Slippstöðin
h.f. hefir þegar samið um smíði á enn stærra stálskipi, 460
smálesta. Þessar staðreyndir finnst AM gleðilegar og gefur
blaðinu von um að fyrir hendi sé hugur um norðlezka sókn.
Skapti Áskelsson.
Það' var margt um manninn i
Slippstöðinni er Sigurbjörg
ÓF 1 hljóp af stokkunum, og
fagurt veður gaf fyrirheit um
heill og hamingju skipinu til
handa, þá er frú Guðfinna lét
sjó úr Grímseyjarsundi freyða
um kinnung þess. AM átti stutt
tal við Skapta Áskelsson for-
stjóra og tók hann fram að hann
þakkaði starfsfólki öllu er hér
hcfði lagt hönd á plóginn, og
kvað hann fyrirtækið hafa full-
an hug á því að bæta aðbúnað
starfsfólks síns, með því að
byggja yfir athafnasvæði Slipp-
stöðvarinnar, svo að vinnuskil-
yrði yrðu betri í framtíðinni en
til þessa.
Um kvöldið var starfsfóiki og
gestum boðið til fagnaðar að
Hótel KEA.
AM þykir ástæða til að senda
eigendum og Ólafsfirðingum öll
um lieillaóskir með þetta glæsi-
lega skip og einnig sendir AM
beztu kveðjur sínar til allra er
hér hafa að unnið með huga og
hendi.
Og nú er það mjög áriðandi
fyrir Akureyringa og raunar
Norðlendinga alla, að öflug sókn
verði þegar hafin fyrir fullkom-
inni aðstöðu til stórskipasmíði
hér á Akureyri. íslendingar geta
byggt sín eigin fiskiskip sjálfir.
Starfsmenn Slippstöðvarinnar
h.f. hafa sýnt það og sannað, að
Islendingar geta verið sjálfum
sér nógir í þessum efnum sem
öðrum, ef góð starfsskilyrði eru
AM segir
UM LEIÐ og AM fagnar fyrsta stálskipinu, og sendir heilla-
óskir til allra, er hér lögðu liönd að verki, vill AM skýrt
og ákveðið minna enn á þá skoðun jafnaðarmanna á Akur-
eyri, að of smátt sé hugsað varðandi nýju dráttarbrautina,
og tekur heils hugar undir þau ummæli Hersteins Tryggva-
sonar formanns F.U.J. á Akureyri í Alþýðublaðinu sl. þriðju-
dag, þar sem hann leggur áherzlu á það, að 500 tonna drátt-
arbraut sé alls ónóg. Hersteinn segir orðrétt: „Taka verður
stærra skref, byggja verður a. m. k. 1000 tonna dráttarbraut,
svo togarar bæjarins og hin stærri fiskiskip þurfi ekki að
leita suður til viðgerðar. Skapa verður Akureyri aðstöðu til
þess, að hún geti orðið miðstöð skipasmíða fyrir Norðurland“.
Þetta er kjami málsins og munu ekki allir Akureyringar
sameinast um það a. m. k. 1000 tonna dráttarbraut verði
byggð, og ekki megi smærra hugsa.
að þessu var flotað sl. þriðjudag
fyrir hendi. Að því þarf að
vinna og það íljótt og vel. Sigur
björg ÓF 1 er flotað var í fyrra-
dag er glæsilegur vegvísir á leið
til öflugrar atvinnuaukningar
cg norðlenzkrar. sóknar.
„Árið 1952 þann 22. nóvember
var stofnfundur Slippstöðvar-
innar haldinn og í fundargerðar
bók frá þeim tima má lesa eftir-
farandi.
„Tilgangur félagsinserað reka
dráttarbraut og skipaviðgerðir
í því sambandi, og hefur í þeim
tilgangi tekið^á leigu Dráttar-
braut Akureyrarbæjar á Odd-
eyrartanga." ,
(Framhald á blaðsíðu 7.)
Frú Guðfinna Pálsdóttir framkvæmir skírnina. Ljósm.r N. H.
Þau munu öll biðja skipinu heilla. Ljósm.: N. H. Hann tók einnig
myndina af skipinu hér fyrir ofan.
LEIÐARI: GRÓANDI ÞJÓÐLÍF
Rætt við Jóhannes Sigvaldason, sjá bls. 5
Opið öll kvöld til kl. 20.00
VERZLUNIN BREKKA
Skipuleggjum ferð-
ir endurgjaldslaust
L Ö N D O G
I
Fyrir liópa og
einstaklinga
LEIBIR. Sími 12940