Alþýðumaðurinn - 17.03.1966, Page 1
*
Opið öll kvöld til kl. 20.00
VERZLUNIN BREKKA
Skipuleggjum íerð- | Fyrir hópa og
ir endurgjaldslaust | einstaklinga
LÖND O G LEIÐIR. Sími 12940
I
ÁSKRIFTARSÍMI
ALÞÝÐUMANNSINS
ER 1-13-99
ALÞYÐUmAÐURINN
Skákþing Norðurlands haldið á
/
Jónas Halldvórsson, skákmeistari Norðurlands
XXXVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 17. marz 1966 — 10. tbl.
OKÁKÞING Norðurlands var
haldið hér í Sauðárkróki
dagana 1.—6. marz að Hótel
Mælifelli. Teflt var í þremur
flokkum, meistaraflokki og
fyrsta og öðrum flokki. Efstur
í meistaraflokki og þar með
skákmeistari Norðurlands varð
AMbýSur nýju sÉmstjórahjónin velkomin
UM SL. MÁNAÐAMÓT urðu
símstjóra skipti hér á Akur
eyri. Gunnar Schram lét af
störfum og tók við starfi rit-
símastjóra í Reykjavík en við
starfi hans hér tók Marías Helga
son póst- og símstjóri á ísafirði
og var hann einnig umdæmis-
stjóri pósts og síma yfir Vest-
firði, en póst og símstjórastarfi
hafði Marías gegnt á ísafirði í
tæp 10 ár. Hinn nýi símstjóri
okkar hefur tekið virkan þátt
í starfsemi S.Í.B.S. og var for-
seti samtakanna um skeið.
Kvæntur er Marías Bergþóru
Eggertsdóttur, ættaðri frá Akur
eyri. AM býður hinn nýja sím-
stjóra og frú hans velkomin til
bæjarins og óskar honum vel'-
farnaðar í starfi.
■Tv
Marías Helgason og frú.
Ljósm.: N. H.
Jónas HalldórsSðn og hlaut
hann 5 vinninga. Röðin á næStu
mönnum varð þessi: 2—3 Hall-
dór Einarsson og Hjörleifur
Halldórsson með AVz v. 4—6
Baldvin Kristjánsson, Björgúlf-
ur Einarsson og Hjálmar Theo-
dórsson með 4 v:
f fyrsta flokki urðu úrslit
þessi: 1. Valgarð Valgarðsson
41/2 v. 2. Hjálmar Pálsson 4 v.
3. Þorsteinn Sigurjónsson 2V2 v.
Úrslit í öðrum flokki urðu:
1. Rögnvaldur Árnason ÍV2 v.
2. Sölvi Sveinsson 4 v. og 3.
Friði'ik Hansen með 3 vinninga.
Á sunnudag var haldið hrað-
skákmót og sigraði Jónas Hall-
dórsson og hlaut hann 8% v. af
9 mögulegum. Urn kvöldið var
haldið samsæti og verðlaun af-
hent. Skákstjóri var Árni Þor-
björnsson.
Nýlega var stofnað félag Ung
templara hér og hyggur það á
aljmikla starfsemi á næstunni
m. a. að Kaía opjð hús fyrir ýmis
konar tómstundastarfsemi og
dægradvöl, svo sem tafl, spil,
borðtennis, bob o. s. frv. Þá eru
fyrirhuguð ferðalög í sumai',
íþróttastarfsemi o. fl. Formaður
félagsins er Jens Guðmundsson,
ritari Oli Olafsson og gjaldkeri
Elísabet Ögmundsdóttir.
Aðalfundur Alþýðuflokksfé-
lagsins vai' haldinn 23. febi’úar.
Á fundinum var m. a. rætt um
bæjarstjórnakosningarnar í vor
og kom greinilega í ljós mikill
(Framhald á blaðsíðu 2.)
\WV
N
BROTIZT m IHEIMAVIST H.A.
F
''YRIR hádegið í gær var
brotizt inn í heimavist MA
og stolið um 800 kr. Hafði inn-
brotsþjófurinn heimsótt 8 her-
bergi. Grunur féll fljótt á há-
seta af brezka togaranum Luc-
ida H 403 frá Hull, en togar-
inn kom til Akureyrar í fyrri-
nótt. Hafði hásetinn leigt sér
herbergi að Hótel KEA. Játaði
hann á sig verknaðinn og munu
réttarhöld hafa farið fram í
málinu í gærkveldi.
í gær varð þriggja ára krakki
fyrir bíl við Hafnarstræti 20. —
Var barnið á magasleða og
renndi sér fyrir bílinn, er var
á hægri ferð og urðu því
-meiðsli barsins eigi alvarleg.
ALLIR JAFNAÐARMENN í EINUM FLOKKI
Avarp til íslendinga samþykkt á flokksstjórnarfundi Alþýðuflokksins 13. marz 1966
Alþýðuflokkurinn er 50 ára.
IHÁLFA ÖLD hefur Alþýðuflokkurinn verið í far-
arbroddi í baráttunni fyrir íullkomnara lýðræði
á Islandi, meiri mannréttindum, vaxandi velmegun,
auknum jöfnuði og æ fjölskrúðugri menningu. Fyrir
fimm áratugum hófu framsýnir menn og konur
merki jafnaðarstefnunnar hátt á loft með stofnun
íslenzkra allsherjarsamtaka jafnaðarmanna og verka-
lýðssinna, Alþýðuflokksins. Undir hans forystu var
hafin sú barátta, sem fært hefur íslenzkum almenn-
ingi aukið frelsi og ný réttindi, bætt kjör og betra líf.
Sú kynslóð, sem byggir ísland í dag, stendur í þeirri
þakkarskuld við alla brautryðjendurna, sem aðeins
verður goldin með því að hefja merkið enn hærra á
Joft í framtíðinni og unna sér engrar hvíldar í bar-
áttunni fyrir því, að íslenzkt þjóðfélag verði fyrir-
myndarríki frelsis og öryggis almennrar velmegunar
og þjóðfélagslegs réttlætis.
Áhrifanna af störfum Alþýðuflokksins í fimmtíu
ár hefur gætt mikið og víða. Barátta hans fyrir al-
mennum kosningarétti og bættri kjördæmaskipun
> setur svip sinn á íslenzkt lýðræði. Forysta hans um
almannatryggingar á íslandi og margskonar félags-
málalöggjöf á meiri þátt í því en nokkuð annað, að
ísland er nú velferðarríki. Barátta hans fyrir opin-
berri forystu um stórframkvæmdir og aukna heild-
arskipulagningu í atvinnumálum og fjármálum hefur
haft stórfellda þýðingu fyrir vöxt þjóðarframleiðsl-
unnar og bætt lífskjör. Forysta hans í jákvæðri hags-
munabaráttu launþegasamtaka hefur stuðlað að já-
kvæðum árangri hennar. Barátta hans fyrir bættri
menntun og jafnri menntunaraðstöðu hefur orðið
öllum almenningi bæði til menntunarauka og hags-
bóta. Frá upphafi sínu hefur Alþýðuflokkurinn tekið
þátt í baráttunni fyrir óskoruðu fullveldi fslands og
stutt það, að á alþjóðavettvangi stuðlaði fsland að
varðveizlu friðar og frelsis og gæzlu öryggis í þeim
heimshluta, þar sem landið liggur.
Alþýðuflokkurinn mun á næstu árum leggja á það
megináherzlu, að stuðla að því, að grundvöllur ís-
lenzks atvinnu- og viðskiptalífs verði sem traustastur
og fjölbreyttastur, þannig að velmegun alls almenn-
ings verði sem mest og batni sem örast. Að þessu
marki vill hann að verði keppt með náinni samvinnu
ríkisvalds, Iaunþega og atvinnurekenda og með
fyllsta stuðningi tækni og vísinda. Jafnframt mun
Alþýðuflokkurinn leggja höfuðáherzlu á eflingu fé-
lagslegs réttlætis á fslandi, fyrst og fremst með setn-
ingu heildarlöggjafar um lífeyri fyrir alla • lands-
menn. og ennfremur mun flokkurinn leggja ríka
áherzlu á eflingu íslenzkrar menningar með bættu
skólahaldi frá bamaskólum til háskóla og öflugum
stuðningi við hvers konar menningarstarf og list-
sköpun er geri líf þjóðarinnar rikara og fegurra.
Ef kjördæmaskipun á fslandi hefði ekki verið
ranglát, þegar Alþýðuflokkurinn var stofnaður og
raunar haldist ranglát til skamms tíma, og hefðu
skammsýnir menn ekki klofið Alþýðuflokkinn þrí
vegis í fimm áratuga sögu hans, þá væri Alþýðu
flokkurinn hér svipaðrar stærðar og jafnaðarmanna
flokkar nágrannalandanna og hefði þá í nánu sam
starfi við ósundraða verkalýðshreyfingu getað komið
enn meiru góðu til leiðar en honum hefur tekizt
Þann lærdóm má draga af hálfrar aldar sögu Alþýðu
flokksins, að sundrungin hefur reynzt til ófarnaðar,
að þeir sem hurfu úr röðum Alþýðuflokksins og
hugðu sig geta náð markmiðum flokksins í samstarfi
við önnur öfl og aðra menn en þá, sem störfuðu í
Alþýðuflokknum, reyndust fara hörmulega villir
vegar. Nú á 50 ára afmæli Alþýðuflokksins, er þess
vegna tími til að draga af þessum mistökum hina
einu réttu ályktun:
fslenzkir jafnaðarmenn eiga allir að fylkja sér í
einn flokk, eins og stofnendur Alþýðuflokksins vildu
fyrir fimmtíu árum. Alþýðuflokkurinn býður vel-
komna til starfa í flokknum alla þá íslendinga, sem
vilja efla jafnaðarstefnu og lýðræði á íslandi. Innan
Alþýðuflokksins eiga nú allir þeir að sameinast, sem
berjast vilja fyrir frelsi og lýðræði á íslandi, fyrir
velmegun, jöfnuði og menningu með íslenzkri þjóð.
Alþýðuflokkurinn lieitir á fslendinga að efla flokk-
inn í því skyni, að þjóðinni megi miða sem örast
áfram á braut alhliða framfara og frjálsrar menn-
ingar.
LEIÐARI: NÝ VERKEFNI Rætt við séra Birgi Snæl íjörnsson, sjá 1 ils. 5