Alþýðumaðurinn - 17.03.1966, Side 4
iiiiajimimiiiiiimiiiiiiiiiiminiiiiííiiimimnimiiiiiimimmmmuniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniitmuiiiiiiriiiiiiiiiiiimmiiiiunuiiiiiiimliiMiiminiimiiiimiiiiMiiiiiiimiiiimtHiiiimmmniiir,
AL JVI ÞÝÐ T-* Ritstlprj:. SIGURJÓN JÓHANNSSON (áb.). Utgeíandj: AÍÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR- EYRAR. Afgreiðsla og auglýsingar: Strandgötu 9, II. hæð, sími (96)11399. — [\ Prentvork Odds Björnssonar h.f., Akureyri UMAÐURINN
«iiiiiiiii(iiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
iiiililliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
NY VERKEFNI
■jvrú ER í deiglunni áætlun um uppbyggingu og efl- t
’ ingu atvinnuhátta á \'estfjörðum, Vestfjarðaáætl- I
unin svonefnda. Verði myndarlega á þessum málum |
tekið og haldið, má ætla, að rnikill árangur náist af, t
Vestfirðingum og þjóðinni allri til hagsbóta.
IVrÆST ER ráðgerð Norðurlandsáætlun, og því betur §
sem vér Norðlendingar fylgjum því eftir, því fyrr \
og myndarlegar má ætia að sú áætlun sé gerð og fram- f
kvæmd. Það er því ekki úr vegi, að vér förum að hafa |
uppi ábendingar vorar um, hvernig vér óskum þess- §
ari uppbyggingu háttað, hverjar séu óskir vorar um i
nýjar atvinnugreinar, hvernig vér teljum þeim, sem t
fyrir eru, þurfi að létta sóknina fram, liverjar séu óskir i
vorar í samgöngumálum, heilbrigðismálum og menn- t
ingarmálum. |
¥jAÐ ER þá fyrst, að gæta þess, að hinir ýmsu staðir i
*• hlaupi ekki í kapp hver við annan um þessa eða i
hina nýframkvæmdina. Einum skal ætla þetta, öðrum f
hitt, eftir staðháttum og aðstæðum. Þetta gildir ekki |
sízt um iðnaðarfyrirtæki, sem rétt þætti að koma á fót í
eða efla, en hafa takmarkaðan markað. Má í því sam- |
bandi nefna dráttarbraut og skipasmíði, að oss sýndist |
fráleitt, að þær framkvæmdir yrðu studdar til stórræða i
nema á einum stað á Norðurlandi, og sýnist þar Akur- \
eyri sjálfsagður staður vegna þess, sem fyrir er og að- |
stæðna allra. Öðru máli gegndi um iðnað, sem byggði |
á sjófangi til úrvinnslu og reisa skal frá grunni. Slíkan i
iðnað virtist tilvalið að stofnsetja þar, sem skortur teld- i
ist á atvinnu í sjávarplássi, og koma oss þá í luig allir 1
þeir möguleikar, sem augljóslega hljóta að koma til i
úrvinnslu um næstu ár, hvar sem er á landinu, þ. e. j
matvælaiðnaður, mun rneiri en enn er, úr sjávarafla i
vorum. Nú eru sjómenn að keppast við að búa sig =
undir grásleppuveiði og gera sér miklar vonir um tekj- i
ur af sölu hrognanna. Þau eru hins vegar seld óunnin f
úr landi, en fréttir berast af 10—15 földu verði á þeim, i
þegar þau hafa verið sett í glös eða túbur. Verður oss i
þá á að spyrja: Er hér ekki valin iðnaðárgrein fyrir f
Norðlendinga, svo mikil grásleppugengd og er á mið- i
um norðanlands flest vor, og hvar er nú framtak vort, |
að engir skuli enn hafa prjónað upp á slíku, svo vitað i
sé.- Er hér ekki verkefni fyrir húsvíska, dalvíska, sigl- ;
firzka eða skagfirzka iðnaðarfrömuði?
A Ð ÞESSU sinni nefnum vér ekki önnur verkefni en f
uppbyggingu skipaiðnaðar og fullvinnslu grá- í
sleppuhrogna, en auglýsum eftir hugmyndum manna i
og ábendingum um nýjar iðngreinar og nýja atvinnu- i
háttu, sem eflt gætu byggðarlög vor. Að sjálfsögðu má |
svo ekki vanrækja né vanmeta það, sem fyrir er, held- i
ur efla það og auká. Standa fast við bakið á því, sem I
þegar hefir verið komið myndarlega upp eða er áð rísa |
á legg af þrótti og stórhug. Vér skulum gæta þess, að |
því aðeins verður Norðurlandsáætlunin nýja myndar- i
leg og byggðarlögum vorum til góðs, að vér stöndum i
samhent og manndómslega að lienni, krefjumst hluta i
vors að fullu í uppbyggingunni og bjóðum líka krafta i
vora hviklaust fram, svo að árangur verði mikill.
UNDIRSKRIFTIR OG MÓTMÆLI
ÞAÐ ER nokkur tízka að fá mótmæli samþykkt gegn |
hinu og öðru á fundum og mannamótum, sem i
haldin eru um allt önnur mál en mótmælin snerta. f
Enn er talsvert gert að því að safna mótmælaundir- f
skriftum, sem síðar á að flagga með í einhverju póli- |
tísku augnamiði. Þessar aðferðir eru andstæðar lýð- f
ræðislegri skoðanamyndun, því að við svona aðstæður |
gefst sjaldnast tóm til athugunar mála, svo sem þarf f
með og móti. |
41IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII*
<■ -... ■:
EKKI virðist rista djúpt
traust Framsóknar til unga
fólksins. AM hefur fregnað það,
að einn af helztu forustumönn-
um ungra framsóknarmanna á
Húsavík og Þingeyjarsýslum
hafi verið með öllu sniðgenginn
af ráðamönnum Framsóknar á
Húsavík við niðurröðun á lista
við bæjarstjórnarkosningarnar í
vor, þótt 2 af 4 efstu sætunum
losni. Þessi ungi maður hefur
gegnt ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir unga frainsóknarmenn m.
a. verið formaður í samtökum
þeirra í N.-Þingeyjarsýslu og
einnig á Húsavík, átt sæti í
kjördæmisráði o. fl.
ER ÞAÐ rétt að dyraverðir í
Sjálfstæðishúsinu taki við
greiðslu samkomugesta við dyrn
ar eftir að aðgöngumiðar eru
uppseldir. Hvað verður um
skemmtanaskattinn af slíkri
þjónustu?
ZSENDIR okkur eftirfarandi.
Fyrir skömmu þurfti ég að
velja tækifærisgjöf og komst í
allmikinn vanda, þar sem okk-
ar ágætu verzlanir hafa upp á
mikið að bjóða, en að marghugs
uðu máli hvað myndi gleðja við
takanda mest keypti ég hlut,
sem mér fannst bæði fallegur og
hentugur. En þegar ég kom í
samkvæmið, varð raunin sú að
4 samskonar hlutir höfðu verið
gefnir. Varð mér þá á að hugsa
livort möguleiki væri á því að
verzlanir tækju upp þá nýjung
að hafa gjafakort, þannig að
kaupandinn greiddi vissa upp-
hæð fyrir þau, en viðtakandi
gæti síðan valið eftir eiginn geð
þótta. Þessi kort þyrftu að vera
mjög smekklega útbúin, með
hamingjuósk t. d. fermingar-, af
mælis- og brúðkaupsóskir svo
eitthvað sé nefnt, svo að sjálf-
sögðu hvers virði kortið er og
frá hverjum. AM finnst Z koma
hér með mjög athyglisverða
hugmynd, sem vert er að sé
gaumur gefin, eða hvað segja
okkar ágætu verzlunarmenn?
Nýsý-----
0' KUMAÐUR hringdi í blaðið
og kvaðst hann vilja koma
því á framfæri, að sér fyndist
það í mesta máta einkennilegt
og vart afsakanlegt að Vega-
gerð ríkisins skuli ekki fá sér
snjóplóg með blásara til að
ryðja af vegum. f slíkri snjóa-
tíð sem hér hefur ríkt í vetur
hefur hinn gamla mokstursað-
ferð oft aðeins reynzt til bölv-
unar, því að um leið og skafið
liefur aftur hafa göngin fyllzt
á augabragði og engu farartæki
HEYRT
SPURT
r
HIFRAH
fært í gegn um þau göng er
snjómoksturstæki Vegagerðar-
innar hafa skilið eftir. Viðhorf-
ið væri annað ef þróttmikið
tæki með snjóplóg og blásara
ryddi veginn. Þá mynduðust
engin göng meðfram er lokuð-
ust um leið og aftur hvessti. Ég
held að hægt væri að spara
milljónatugi með þessu móti a.
m. k. yrði peningunum ekki al-
gerlega á glæ kastað, eins og átt
liefur sér stað í vetur og reynd-
ar oft áður. AM þakkar öku-
manni fyrir spjallið og beinir
orðsendingu hans til réttra
aðila.
UNGIR templarar á Sauðár-
króki hafa í hyggju að reka
opið hús fyrir æsku kaupstað-
arins og er sagt frá þessu í
fréttabréfi frá Sauðárkróki í
dag. AM vill vekja atliygli á
þessari frétt og þá jafnframt
benda templurum á Akureyri á
»ÍM~' ......
s
þetta fordæmi ungra templara
vestan Öxnadalsheiðar.
KLÓI skrifar. Megið þið blaða
menn leyfa ykkur allan
skrattann, já svo ég noti svo
stórt orð. Ég er bullandi vond-
ur yfir framkomu Dagsritstjór-
ans þá er hann sló því upp á
forsíðu um daginn hvað til
stæði varðandi paradís okkar
Hlíðarfjall, degi áður en for-
seti Í.S.Í. kunngjörði ráðamönn-
um Akureyrar og blaðamönn-
um ákvörðun Í.S.Í. um að gera
Akureyri að miðstöð vetrar-
íþrótta á íslandi. Þetta finnst
mér svo mikil ósvífni að rit-
stjóri Dags ætti að sjá sóma
sinn í því að biðjast afsökunnar
á frumhlaupi sínu. Honum hefði
kannski verið svolítil vorkuna
að lilaupa á sig, ef staðreynd
hefði verið sú að alls útilokað
hefði verið að hans blað hefði
getað orðið fyrst með fréttim-
ar, en því var alls ekki til að
dreifa og því er framkoma hans
enn óskiljanlegri og vítaverðari.
MHEFUR heyrt að hin
skelegga afstaða skóla-
stjóra og kennara Gagnfræða-
skólans gegn aðsókn nemenda í
sjoppu í nágrenni skólans, hafi
vakið allmikið umtal í bænum.
Birtir blaðið hér bréf frá G. M.
um málið. Hvað segja foreldrar
spyr G. M. í upphafi? Hafa þeir
ekki að verðugu þakkað skóla-
stjóra og kennurum fyrir fram-
takið? Mér býr efi í brjósti að
svo sé. Ég hefi hitt þrjár mæður
er tónað hafa á háa c-inu yfir
afskiptasemi skólans um það
livernig börnin verja frístund-
um sínum á milli kennslu-
stunda. Mega nú ekki blessuð
börnin fá sér eitthvað í svang-
inn, úr því að þau fara glor-
hungruð fyrir allar aldir heim-
anað í skólann og svo hafa þær
dæst af vandlætingu, en sjálf-
sagt kysst Austmar ef hann
liefði verið í kossfæri. Þannig
(Framhald á blaðsíðu 7.)
•*
• AF NÆSTU GRÖSUM#
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 2
e. h. Séra Ágúst Sigurðsson
Möðruvöllum predikar. Jóns
Vídalíns biskups minnzt. —
Sálmar nr.: 223 — 218 — 221
— 203 — 675. B. S.
ÉFRÁ SJÁLFSBJÖRG:
Félags- og skemmti-
fundur verður haldinn
sunnudaginn 20. marz
- alþjóðadag fatlaðra -
kl. 3 e. h. í Bjargi. Fundar-
efni m. a.: Minnzt alþjóða-
dagsins. Kosning fulltrúa á 8.
þing Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra. Kvikmynd o.
fl. Stjórnia.
ZION: Sunnudaginn 20. marz.
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. —
Oll börn velkomin. Samkoma
kl. 8.30 e. h. Þar verður sýnd
kvikmyndin „Trúin sigrar“.
Halla Bachmann kristniboði
talar. Allir velkomnir.
SUNNUDAGASKÓLI Akureyr
arkirkju er á sunnudaginn
kemur kl. 10.30 árd. í kirkj-
unni og kapellunni. Síðasta
skipti á þessum vetri. —
Sóknarprestar.
HJÓNAEFNI. Nýlega hafa opin
berað trúlofun sína ungfrú
Anna Guðmundsdóttir og
Sölvi Heiðar Matthíasson, vef-
ari, Gefjun.
IÐNNEMAR. Aðalfundur Iðn-
nemafélags Akureyrar verð-
ur haldinn að Hótel KEA
sunnudaginn 20. marz n. k.
kl. 3 e. h. Fundarefni: Venju-
leg aðalfundarstörf. Á fundin
um mætir fulltrúi I.N.S.Í.
Væntir stjórnin þess, að allir
iðnnemar mæti á fundinum.
AKUREYRINGAR! Veitið at-
hygli auglýsingu frá Barna-
skóla Akureyrar um skóla-
skemmtunina. Vegna mikillar
aðsóknar á sunnudagssýning-
arnar undanfarin ár, skal
mönnum bent á að nota vel
laugardagssýningar.